"SÉRTRÚARSÖFNUÐURINN" SEM KALLAR SIG VIÐREISN OG HELDUR SIG VERA STJÓRNÁLAFLOKK FÆR HELDUR ORÐ Í EYRA....

Og þá sérstaklega Ole Anton Bieltveit, sem opinberaði slaka vitsmuni sína með því að far út í ritdeilur við Ragnar Önundarson fyrrum bankastjóra og viðskiptafræðing.  Eins og flestum ætti að vera kunnugt, þá eru FÁIR sem standast Ragnari Önundarsyni snúning þegar um er að ræða efnahagsmál hvort sem er í landsmálum eða á alþjóðavettvangi.  Því verður ekki hægt að segja annað en að Ole Anton Bieltveit slái algjört "vindhögg" með því að ætla sér að fara í ritdeilur við Ragnar Önundarson.  Svargrein Ragnars er á blaðsíðu 16 í Morgunblaðinu í dag og þar fer hann vel yfir muninn fljótandi gengi Íslensku krónunnar og fastgengi evrunnar og muninn sem þetta hefur á efnahagslífið.  Ragnar Önundarson nýtur mikillar virðingar og er alveg sérstaklega tekið tillit til þess sem hann skrifar og þekking hans á því sem hann skrifar er alveg gríðarlega mikil og engum nema Ole Anton Bieltveit hefur hingað til dottið í hug að REYNA að andmæla honum.  En margir í þessum Sértrúarhópi virðast hafa eitthvað furðulega trú á eigin ágæti og TRÚ sinni því varaformaðurinn, sem er víst menntaður hagfræðingur, virðist finnast það allt í lagi að fara á svig við hagfræðireglur þegar kynntur er "ábati" landsins af að tengja gengi Íslensku krónunnar við evru.......


EINHVERJIR ERU TILBÚNIR TIL ÞESS AÐ LÁTA ATKVÆÐI SITT DETTA NIÐUR "DAUTT"

MEÐ ÞVÍ AÐ KJÓSA SÓSÍALISTAFLOKK ÍSLANDS Í KOSNINGUNUM TIL ALÞINGIS NÆSTA LAUGARDAG.  Að verða vitni að þessu er alveg ótrúlegt, flokkur sem stendur ekki fyrir neitt annað en að hafa það sem sitt helsta stefnumál að KOMA Á EINRÆÐI HÉR Á LANDI (fólk er hvatt til að horfa á viðtal við Gunnar Smára Egilsson í "Dagmálum á mbl.is), það verður ekki séð að þessi flokkur geti unnið með einum eða neinum flokki, sem er í framboði til Alþingis í kosningunum á laugardaginn.  En það er tæp vika ennþá til kosninga og enn er von til að einhverir sjái að sér.........


mbl.is Framsóknarflokkur í lykilstöðu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 20. september 2021

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband