"SÉRTRÚARSÖFNUÐURINN" SEM KALLAR SIG VIÐREISN OG HELDUR SIG VERA STJÓRNÁLAFLOKK FÆR HELDUR ORÐ Í EYRA....

Og þá sérstaklega Ole Anton Bieltveit, sem opinberaði slaka vitsmuni sína með því að far út í ritdeilur við Ragnar Önundarson fyrrum bankastjóra og viðskiptafræðing.  Eins og flestum ætti að vera kunnugt, þá eru FÁIR sem standast Ragnari Önundarsyni snúning þegar um er að ræða efnahagsmál hvort sem er í landsmálum eða á alþjóðavettvangi.  Því verður ekki hægt að segja annað en að Ole Anton Bieltveit slái algjört "vindhögg" með því að ætla sér að fara í ritdeilur við Ragnar Önundarson.  Svargrein Ragnars er á blaðsíðu 16 í Morgunblaðinu í dag og þar fer hann vel yfir muninn fljótandi gengi Íslensku krónunnar og fastgengi evrunnar og muninn sem þetta hefur á efnahagslífið.  Ragnar Önundarson nýtur mikillar virðingar og er alveg sérstaklega tekið tillit til þess sem hann skrifar og þekking hans á því sem hann skrifar er alveg gríðarlega mikil og engum nema Ole Anton Bieltveit hefur hingað til dottið í hug að REYNA að andmæla honum.  En margir í þessum Sértrúarhópi virðast hafa eitthvað furðulega trú á eigin ágæti og TRÚ sinni því varaformaðurinn, sem er víst menntaður hagfræðingur, virðist finnast það allt í lagi að fara á svig við hagfræðireglur þegar kynntur er "ábati" landsins af að tengja gengi Íslensku krónunnar við evru.......


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður I B Guðmundsson

Hef ekki kynnt mér þetta mál en eitthvað segir mér að þú hafir rétt fyrir þér!

Sigurður I B Guðmundsson, 21.9.2021 kl. 09:34

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

Hann Ragnar Önundarson útskýrir gengismuninn á Íslensku krónunni og evrunni mjög vel í grein ´blaðsíðu 16 í Morgunblaðinu í gær Sigurður og hvet ég þig eindregið til að lesa það.  Ragnar Önundarson útskýrir allt sem hann skrifar og útskýringarnar hjá honum eru mjög einfaldar góðar.  Ég les allt sem hann skrifar og oftar en ekki opnast hjá mér nýr skilningur á viðkomandi málefni............

Jóhann Elíasson, 21.9.2021 kl. 10:09

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband