VÆRI EKKI NÆR AÐ ALÞINGISMENN FJÖLLUÐU UM MÁL SEM SKIPTA EINHVERRJU MÁLI?????

Ég get ekki séð að þessi ummæli Sigurðar Inga  skipti nokkru einasta máli (auðvitað verður ráðherra að passa sig hvað hann lætur út úr sér en aðrir verða líka að passa uppá hvaða ummæli þeir hneykslast á og gera að stórmáli).  Ef ekki má segja að einhver sé SVARTUR má þá nokkuð segja að einhver sé HVÍTUR? Ég man eftir að það  var umfjöllun um Lewis Hamilton formúlu 1 ökumann, í fréttaþættinum 60 mínútum og þar var hann meðal annars spurður að því hversu margir SVARTIR ökumenn væru í formúlunni, ekki man ég eftir því að þessi spurning hafi  farið fyrir brjóstið á nokkrum manni,eða að slagorðið "BLACK LIVES MATTER" hafi vakið nokkur viðbrögð.  ÉG VIL BARA HVETJA "BAKBORÐSSLAGSÍÐULIÐIÐ" á Alþingi, sem alltaf er að elta uppi einhvern "tittlingaskít" og gera úr einhver stórmál, að fara að snúa sér að málum sem skipta einhverju máli og fara að vinna almennilega fyrir þjóðina eins og það var kosið til að gera........ 


mbl.is Sigurður Ingi neitaði að tjá sig við fjölmiðla
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 5. apríl 2022

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband