"HÆKKUM BARA STÝRIVEXTINA"

Nú hefur eldsneyti verið að LÆKKA á heimsmarkaði undanfarið en samt sem áður bólar ekkert á verðlækkunum hér á landi.  Venjan hér hefur verið sú að um leið og verður hækkun á heimsmarkaðsverði, þá hækkar verð á eldsneyti hér og þá helst daginn áður og alltaf hittist þannig á að þegar heimsmarkaðsverð á eldsneyti hækkar þá er ekki til einn einasti dropi af eldsneytisbirgðum í landinu en þegar heimsmarkaðsverðið lækkar, þá eru til alveg heimspekilegt magn af eldsneytisbirgðum í landinu að það tekur marga mánuði að vinna birgðirnar niður.  Og eitthvað svipað virðist vera í gangi varðandi GENGIÐ, þegar gengislækkun verður þá hækkar almennt vöruverð í landinu með það sama en þegar gengisstyrking verður, gengisstyrkingin virðist ALDREI hafa nein áhrif á vöruverð.  Og þá er komið að því alvarlega:  Í morgun voru stýrivextirnir hækkaðir, þrátt fyrir að gögn séu til um það að stór hluti verðbólgu hér á landi sé vegna erlendra verðhækkana.  Eru menn virkilega svo "tregir" að halda það  að vaxtahækkun á Íslandi slái eitthvað á verðbólgu erlendis??  Fyrir utan það búið er að afsanna það í hagfræðinni að tengsl séu á milli stýrivaxta og verðbólgu en peningastefnunefnd virðist ekki hafa eina einustu hugmynd um þessa uppgötvun og margt fleira nýtt sem hefur verið að koma fram í hagfræðinni.............

 


mbl.is Stýrivextir hækkaðir um 0,75 prósentur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 24. ágúst 2022

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband