"HÆKKUM BARA STÝRIVEXTINA"

Nú hefur eldsneyti verið að LÆKKA á heimsmarkaði undanfarið en samt sem áður bólar ekkert á verðlækkunum hér á landi.  Venjan hér hefur verið sú að um leið og verður hækkun á heimsmarkaðsverði, þá hækkar verð á eldsneyti hér og þá helst daginn áður og alltaf hittist þannig á að þegar heimsmarkaðsverð á eldsneyti hækkar þá er ekki til einn einasti dropi af eldsneytisbirgðum í landinu en þegar heimsmarkaðsverðið lækkar, þá eru til alveg heimspekilegt magn af eldsneytisbirgðum í landinu að það tekur marga mánuði að vinna birgðirnar niður.  Og eitthvað svipað virðist vera í gangi varðandi GENGIÐ, þegar gengislækkun verður þá hækkar almennt vöruverð í landinu með það sama en þegar gengisstyrking verður, gengisstyrkingin virðist ALDREI hafa nein áhrif á vöruverð.  Og þá er komið að því alvarlega:  Í morgun voru stýrivextirnir hækkaðir, þrátt fyrir að gögn séu til um það að stór hluti verðbólgu hér á landi sé vegna erlendra verðhækkana.  Eru menn virkilega svo "tregir" að halda það  að vaxtahækkun á Íslandi slái eitthvað á verðbólgu erlendis??  Fyrir utan það búið er að afsanna það í hagfræðinni að tengsl séu á milli stýrivaxta og verðbólgu en peningastefnunefnd virðist ekki hafa eina einustu hugmynd um þessa uppgötvun og margt fleira nýtt sem hefur verið að koma fram í hagfræðinni.............

 


mbl.is Stýrivextir hækkaðir um 0,75 prósentur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þorsteinn Briem

Stýrivextir Seðlabanka Íslands eru og hafa verið mun hærri en Seðlabanka Evrópu, sem ákveður stýrivexti á öllu evrusvæðinu.

Stýrivextir Seðlabanka Evrópu eru nú 0% en Seðlabanka Íslands 5,5%.

9.3.2022:

Um helmingur Íslendinga hlynntur aðild að Evrópusambandinu og einungis þriðjungur mótfallinn cool

4.10.2018:

"F
leiri landsmenn eru fylgjandi því að taka upp evru eða 46% á móti ríflega 36% sem eru því á móti." cool

Vaxandi stuðningur við aðild að Evrópusambandinu

Vextir eru og hafa verið miklu lægri á evrusvæðinu en hér á Íslandi og það á sem sagt að vorkenna þeim sem vilja halda í mörlensku krónuna. cool

28.8.2020:

"Varaseðlabankastjóri segir mikilvægt að fólk sem tekur óverðtryggð lán geri sér grein fyrir að 1% stýrivextir Seðlabanka Íslands séu ekki komnir til að vera.

Afborganir lána gætu hækkað verulega þegar stýrivextir Seðlabankans hækka á ný."

"Greiðslubyrði af 35 milljóna króna láni til 40 ára við fyrstu kaup á húsnæði gæti farið úr ríflega 140 þúsund krónum á mánuði í rétt yfir 210 þúsund ef vextir hækkuðu í það sem telja má eðlilegt ástand hér á landi." cool

Greiðslubyrði af 35 milljóna króna láni gæti hækkað úr 140 þúsund krónum á mánuði í 210 þúsund


28.8.2020:

"Greiðslur af óverðtryggðum hús­næðislán­um gætu hækkað veru­lega ef stýri­vext­ir Seðlabank­ans þokast aft­ur upp á við.

Á þetta bend­ir Rann­veig Sig­urðardótt­ir vara­seðlabanka­stjóri í sam­tali í Morg­un­blaðinu í dag.

Sí­fellt fleiri taka óverðtryggð lán með breyti­leg­um vöxt­um, bæði þeir sem standa í hús­næðis­kaup­um og þeir sem end­ur­fjármagna eldri skuld­ir.

Rann­veig seg­ir ánægju­efni að fólk nýti sér lækk­andi vaxta­stig en ít­rek­ar að fólk þurfi að gera ráð fyr­ir því að greiðslur geti hækkað um­tals­vert. cool

Þannig hafi til dæmis komið fram að "hlut­laus­ir" stýri­vext­ir [Seðlabanka Íslands] væru um 4,5%, eða 3,5% hærri en nú­ver­andi meg­in­vext­ir bank­ans.

Í út­reikn­ing­um, sem Morg­un­blaðið hef­ur látið taka sam­an og birt­ir eru í blaðinu í dag, gætu greiðslur af meðal­hús­næðisláni hæg­lega hækkað um 50% ef vaxta­stig myndi hækka með fyrr­greind­um hætti." cool

Afborganir gætu hækkað um 50%

Þorsteinn Briem, 24.8.2022 kl. 12:47

2 Smámynd: Þorsteinn Briem

19.8.2018:

"Dómsmálaráðherra birti á dögunum svar við fyrirspurn Ólafs Ísleifssonar, þingmanns Flokks fólksins. cool

Þar kemur fram að á tíu árum var árangurslaust fjárnám gert 117 þúsund sinnum hjá einstaklingum.

Um þrjú þúsund voru lýstir gjaldþrota og 8.800 eignir einstaklinga voru seldar á nauðungaruppboði.

Þar bætast reyndar við um 400 fasteignir sem seldar voru á nauðungarsölu eða sölu vegna greiðsluaðlögunar skuldara, eins og kom fram í fyrra svari félagsmálaráðherra við fyrirspurn Ólafs.

"Ég er nýkominn frá Færeyjum. Þar fjármagna menn íbúðarhúsnæði með föstum vöxtum, 1,7% til 20 ára," segir Ólafur Ísleifsson." cool

Færeyska krónan er jafngild dönsku krónunni.

Gengisbinding dönsku krónunnar við evruna nær því einnig til Færeyja - og Grænlands. cool

Þorsteinn Briem, 24.8.2022 kl. 12:48

3 Smámynd: Tómas Ibsen Halldórsson

Heill og sæll Jóhann.

Vaxtahækkanir koma fjármagnseigendum vel og þeim sem skulda illa. Punktur og basta.

Vaxtahækkanir koma ungum fasteignakaupendum illa auk gengdarlausrar hækkunar íbúðaverðs sem knúin er af þeim sem hagnast mest á þeirri óráðsíu sem græðgin knýr áfram.

Tómas Ibsen Halldórsson, 24.8.2022 kl. 13:08

4 Smámynd: Jóhann Elíasson

Þorsteinn Briem, þú ert ekki að segja neinar fréttir þegar þú segir að vextir séu hærri hér á landi en í ESB.  Það er heldur ENGIN lausn fyrir Ísland að ganga í ESB því við höfum ENGA tryggingu fyrir því að vextir hér myndu LÆKKA hér í kjölfarið.  Nú gerðist það í fyrsta skipti í gær að evran er LÆGRA skráð en dollarinn og alltaf sígur á ógæfuhliðina fyrir evruna.  Með því að "ÓVERÐTRYGGÐ" lán eru með BREYTILEGA VEXTI er hægt að segja að þessi lán SÉU Í RAUNINNI "VERÐTRYGGÐ".  þessi AUKNI stuðningur landsmanna við aðild að ESB eru "GAMLAR FRÉTTIR", sem ekki er hægt að uppfæra vegna þess að stuðningurinn við aðild er alltaf að minnka...... cool wink

Jóhann Elíasson, 24.8.2022 kl. 14:08

5 Smámynd: Jóhann Elíasson

Heill og sæll Tómas, Þessi vaxtahækkun er bara tómt rugl og á eftir að  valda meiri skaða en hitt..... undecided

Jóhann Elíasson, 24.8.2022 kl. 14:11

6 Smámynd: Magnús Sigurðsson

Þarfur pistill Jóhann, hagfræði Seðlabankans og þess opinbera er fyrir auðróna.

Magnús Sigurðsson, 24.8.2022 kl. 14:55

7 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Húsnæðislánavextir eru mjög misjafnir í löndum á evrusvæðinu, í Eystrasaltslöndunum eru þeir til dæmis á svipuðu róli og hér á Íslandi.

Aðild að ESB og EMU myndi ekki breyta Íslandi í Þýskaland, heldur er miklu líklegra að aðstæður hér yrðu svipaðar og í Eystrasaltslöndunum.

Guðmundur Ásgeirsson, 24.8.2022 kl. 14:59

8 Smámynd: Jóhann Elíasson

Þakka þér fyrir innlitið Magnús, já það er margt sem bendir til þess að þarna sé unnið meira af kappi en forsjá...... undecided

Jóhann Elíasson, 24.8.2022 kl. 15:01

9 Smámynd: Jóhann Elíasson

Þakka þér fyrir innlitið Guðmunur, Ég er sko algjörlega sammála þér þarna og enn einu sinni ítreka ég það að Ísland hefur EKKERT til ESB að sækja og Þar fer enginn heilvita maður inn, ekki einu sinni ef maðurinn sé haldinn SJÁLFSEYÐINGARHVÖT.............

Jóhann Elíasson, 24.8.2022 kl. 15:06

10 Smámynd: Sigurður Kristján Hjaltested

Þetta er algjört rugl.

En þingmenn og rádherra druslur kætast því laun þeirra hækka og

hækka og munu ekki lækka þó vextirnir færu aftur nidur.

Meðan svo er, er að það hagur þessara vonlausu 63 viðriðna á þingi

að vextir hækki. Heyrist ekki múkk frá þeim enda allir að vinna

í þágu þjóðarinnar ekki satt.

Hringrás andskotans.

Sigurður Kristján Hjaltested, 24.8.2022 kl. 22:13

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband