SKATTAR OG MEIRI SKATTLAGNIG.....................

Er það eina sem kemst að hjá þessum "fæðingarhálfvitum" í VG (WC).  Það er fyrir löngu búið að sýna fram á það að ekki er hægt að skattleggja sig út úr kreppu.  Það VERÐUR að fara að koma hjólum atvinnulífsins af stað og að gera eitthvað af viti svona til tilbreytingar.  Ég er ekki alveg á því að Lilja Rafney Magnúsdóttir sé ofarlega á vinsældalistum á Vestfjörðum núna eins og hún var fyrst eftir kosningar, þá var talað um að þar færi manneskja sem þekkti af eigin raun baráttu landsbyggðafólks................
mbl.is Allt á suðupunkti á fundi VG
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Já ég hélt það líka.  Ég hef að vísu ekki hitt neinn eftir þennan fund, en það mætti segja mér að Lilja Rafney væri ekki vinsælasti alþingismaðurinn hér eftir.  Að hún skuli voga sér að tala svona.  Við höfum alltaf þurft að berjast fyrir öllu, þó eru fáir landshlutar sam hafa lagt jafn mikið til samfélagsins og einmitt Vestfirðingar. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 17.4.2012 kl. 10:36

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

Ég er alveg sammála þér þarna Ásthildur og það er alveg með ólíkindum viðsnúningurinn hjá Lilju Rafneyju eftir að hún fór á þing. Hún ætti að hafa í huga orð Bobs Dylans þegar hann sagði: "Vertu almennilegu við fólk, sem þú hittir þegar þú klifrar metorðastigann því þú hittir það aftur á leiðinni niður" (lausleg þýðing ég man ekki nafnið á laginu).  Ég held að það verði ekki mjög þægilegt fyrir hana að hitta þetta sama fólk þegar hún er dottin af þingi.

Jóhann Elíasson, 17.4.2012 kl. 11:37

3 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Nákvæmlega, þennan vísdóm Dylans ættu fleiri að hafa í huga. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 17.4.2012 kl. 11:57

4 Smámynd: Jón Kristjánsson

Nú er verið að fela stefnuna um FISKVEIÐIstjórnunina með kjaftæði um skattlagningu. Átti ekki að stokka upp kvótakerfið? Tekjur þjóðarinnar af fiskveiðum hafa alltaf komið í gegn um skattgreiðslur. Tekjur af sjávarútvegi verða að fá að renna um æðar þjóðfélagsins en ekki enda beint í svartholi Ríkisins. Umræðan um veiðgjaldið er - smjörklípa.

Jón Kristjánsson, 17.4.2012 kl. 13:03

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband