NEI, NÚ ER HANN FARINN AÐ GANGA ANSI LANGT Í VIÐLEITNI SINNI VIÐ AÐ LOSNA VIÐ FLUGVÖLLINN ÚR VATNSMÝRINNI

Hefði hægri maður gert sig sekann um svona framgöngu og hunsað algerlega vilja kjósenda, væri "vinstri hjörðin" fyrir löngu búin að boða til mótmæla við Ráðhúsið og léti í sér heyra berjandi potta, pönnur og tómar tunnur og hrópandi slagorð um það hversu ÓHÆFUR VIÐKOMANDI VÆRIÁ virkilega að láta manninn komast upp með þessi vinnubrögð?????


mbl.is Stofni félag um nýjan flugvöll
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

En hvað með að borgarstjórinn í Reykjavík vilji hafa forgöngu um stofnun nýs flugvallar í allt öðru sveitarfélagi? Eða telur hann sig kannski hafa öll yfirráð yfir flugvellinum. Skiptir vilji viðkomandi sveitarfélags engu?

Sigurður Geirsson (IP-tala skráð) 16.7.2015 kl. 16:01

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

Finnst mönnum það virkilega eðlilegt að borgarstjórinn í Reykjavík skipti sér af stofnun félags til að byggja samgöngumannvirki í öðru sveitarfélagi og ég tala nú ekki um þegar hugmyndin er bara á frumstigi og alls ekki eining um hana?

Jóhann Elíasson, 16.7.2015 kl. 16:07

3 Smámynd: Jón Valur Jensson

Já, þú ert vel að merkja að ræða hér um sjálft skrapatólið Dag­ B. Eggerts­son, borg­ar­stjóra Reykjavíkur -- eða eins og hann kýs að kalla sig sjálfur: drusluna Dag.

Ótrúlegt hvernig þessi maður hagar sér þvert gegn þjóðarvilja og mikils meirihluta Reykvíkinga.

Og hvað var hann að vilja í þessa Rögnunefnd? Setti það ekki druslusvip á nefndina? Og var yfirhöfuð nokkuð að marka þá nefnd? Nei, heldur betur ekki, sbr. hér (með uppl. frá sérfróðari manni en okkur öllum til samans):  

Hvassahraun er mun verri kostur en Rögnu­nefndin vill vera láta; ísing og snjókoma algengari en í Rvík

Jón Valur Jensson, 16.7.2015 kl. 16:56

4 Smámynd: Eyjólfur Jónsson

Lestarstjórinn er ekki eins og fólk flest er!

Eyjólfur Jónsson, 16.7.2015 kl. 16:58

5 identicon

Ekkert heyrist í Sjálfstæðisdruslunum.  

Elín Sigurðardóttir (IP-tala skráð) 16.7.2015 kl. 17:21

6 identicon

Af hverju heyrist ekkert í Sjálfstæðisdruslunum Jóhann?  Finnst þér þessi þögn þeirra ekkert æpandi?

Elín Sigurðardóttir (IP-tala skráð) 16.7.2015 kl. 18:06

7 Smámynd: Jóhann Elíasson

Ég er nú eiginlega búinn að afskrifa þessar druslur, sem sitja fyrir Sjálfstæðisflokkinn í borgarstjórn.  Það virðist vera nokkuð sama hvar þetta lið heldur sig........

Jóhann Elíasson, 16.7.2015 kl. 18:47

8 identicon

Þetta er eins og að hlusta á 78 snúninga plötur að heyra smá rispu frá Kjartani Magnússyni um Hörpu en þögn um Þjóðleikhúsið vegna þess að vinur hans er þar.  Hálf lúið og úrelt allt saman ...

Elín Sigurðardóttir (IP-tala skráð) 16.7.2015 kl. 19:13

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband