18.3.2016 | 10:43
ALLIR ÞESSIR FORSETAFRAMBJÓÐENDUR VERÐA AÐ FARA AÐ TAKA NÚMER Í RÖÐINA.
Ég er alls ekki að gagnrýna þennan mann neeitt sérstaklega, enda þekki ég engin deili á honum. En ég get nú ekki orða bundist, mér finnst allir mögulegir og ómögulegir menn/konur, vera að tilkinna forsetaframboð. Að einhverju leiti finnst mér að með þessu sé verið að gjaldfella forsetaembættið og það sem það stendur fyrir. Það er engu líkara en að fólk haldi að það geti bara hver sem er gegnt þessu embætti.
Bæring býður sig á Bessastaði | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
« Síðasta færsla | Næsta færsla »
Bloggvinir
- annabjorghjartardottir
- arnarthorjonsson
- skagstrendingur
- formula
- reykur
- flinston
- asthildurcesil
- bjarnijonsson
- bjarnimax
- westurfari
- bjornaxelsson
- bokin
- dagsol
- contact
- einarbb
- einarvill
- einarorneinars
- finnur
- fritzmar
- georg
- gislim3779
- gudbjornj
- gutti
- elnino
- manix
- zumann
- gmaria
- noldrarinn
- tilveran-i-esb
- gthg
- gunnsithor
- gunnlauguri
- gustafskulason
- godurdrengur
- halldorjonsson
- hallurhallsson
- hbj
- hallibjarna
- heimssyn
- formannslif
- diva73
- helgatho
- helgigunnars
- hordurhalldorsson
- ingagm
- ingolfursigurdsson
- thjodfylking
- astromix
- fun
- jensgud
- ezuz
- joiragnars
- johannvegas
- jaj
- fiski
- jonerr
- bassinn
- jonsnae
- jonvalurjensson
- thjodarskutan
- juliusvalsson
- ksh
- kolbrunerin
- kristinn-karl
- kristinthormar
- stinajohanns
- keh
- kristjan9
- lifsrettur
- magnuss
- magnusthor
- marinogn
- mal214
- njallhardarson
- odinnth
- solir
- olafurjonsson
- os
- oskareliasoskarsson
- pallvil
- frisk
- ragnar73
- rosaadalsteinsdottir
- hughrif
- fullveldi
- seinars
- nafar
- holmarinn
- sigurdurig
- siggiflug
- siggith
- sigurjonth
- summi
- stormsker
- timannatakn
- tibsen
- valdimarjohannesson
- skolli
- valur-arnarson
Nýjustu færslur
- "ÚLFUR Í SAUÐAGÆRU"??????
- HVAÐA "PABBABRANDARI" ER EIGINLEGA Í GANGI??????
- ÞVÍ MIÐUR VIRÐAST LANDSMENN ÆTLA AÐ LÁTA "BLEKKJA" SIG........
- ÞESSI MANNESKJA STOPPAR EKKI NEMA HÚN VERÐI STÖÐVUÐ........
- "ENDURSKOÐUN" EES SAMNINGSINS ÞÝÐIR Í RAUNINNI "UPPSÖGN" SAMN...
- EN "GAGNSÆIÐ" Á EKKI VIÐ UM PÍRATANA.........
- BENSÍN - OG OLÍUGJALD HÆKKA UM 2,5% UM NÆSTU ÁRAMÓT.........
- "ÞAÐ ER EKKI EIN BÁRAN STÖK Í 12 VINDSTIGUM"...........
- ÞETTA MÁL VIRÐIST ÆTLA AÐ HAFA AFLEIÐINGAR ENDA ER ÞAÐ VÍST...
- HANN ER ÞÁ "TÍKARSONUR" (SON OF A BITCH).................
- EF GRANT ER SKOÐAÐ ÞÁ ERU PRÓFKJÖR EKKERT ANNAÐ EN "GRÓF FÖLS...
- OG ÞESSI FLOKKUR BÆTIR VIÐ FYLGI SITT SAMKVÆMT SKOÐANAKÖNNUNU...
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Evrópumál
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Formúla 1
- Heilbrigðismál
- Heimspeki
- Íþróttir
- Kjaramál
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Löggæsla
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Pepsi-deildin
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Sveitarstjórnarkosningar
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Eldri færslur
2024
2023
2022
2021
2020
2019
2018
2017
2016
2015
2014
2013
2012
2011
2010
2009
2008
2007
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 82
- Sl. sólarhring: 238
- Sl. viku: 2259
- Frá upphafi: 1837625
Annað
- Innlit í dag: 50
- Innlit sl. viku: 1298
- Gestir í dag: 46
- IP-tölur í dag: 46
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Ég er hættur að fylgjast með fjöldanum. Erum við ekki komin yfir tuginn? Þetta þýðir veikt umboð hver sem verður fyrir valinu
Sæmundur Ágúst Óskarsson, 18.3.2016 kl. 11:09
Við hljótum að fara að gera þá kröfu, að Alþingi taki sig til og breyti stjórnarskrárgreininni um forsetaembættið og móti sömuleiðis reglur um kjör forseta landsins, svo að sú manneskja, sem kjörin verður, hafi öruggan meirihluta kjósenda að baki sér, annars er hætt við, að sá, sem kjörinn verður til embættisins, hafi ekki nema örfá prósent á bak við sig og þar með slakt umboð til að gegna embættinu, sem væri afleitt. Þess vegna er bráðnauðsynlegt, að alþingismenn bretti upp ermarnar og fari að vinna í þessu, enda var Ólafur Ragnar að kalla sjálfur eftir þessu fyrir nokkrum árum, þegar hann var að setja þingið. Við verðum að fara að kalla eftir þessum breytingum. Annað gengur ekki.
Guðbjörg Snót Jónsdóttir (IP-tala skráð) 18.3.2016 kl. 11:19
Auðvitað er þetta hárrétt hjá ykkur báðum. Þetta er bara orðinn farsi.
Jóhann Elíasson, 18.3.2016 kl. 11:29
Þekki Bæring vel, hann er sveitungi minn og þekki ég fjölskyldu hans vel. Ég tel hann vera frambærilegan í þetta starf, betri heldur en taglhnýtingur SjálfstæðisFLokksins, Halla Tómasdóttir
Helgi Jónsson (IP-tala skráð) 18.3.2016 kl. 11:40
Helgi, mér finnst nú ekki rétt að vera með eitthvað svona "skítkast", er þá ekki alveg hægt að spyrja: "HVERRA TAGLHNÝTINGUR ER HANN"?
Jóhann Elíasson, 18.3.2016 kl. 11:56
Ég sakna að sjá ekki orðin Landráðafylking eða ferkantaður leðurhaus
Ómar Gíslason, 18.3.2016 kl. 12:20
Ég skal bæta úr þessu í framtíðinni Ómar...
Jóhann Elíasson, 18.3.2016 kl. 12:53
Tek undir þetta Ómar, sakna þessara orða mikið. Hef ekki verið kallaður "Leðurhaus" af honum Jóhanni lengi, þekki hann ekki fyrir sama mann.
Helgi Jónsson (IP-tala skráð) 18.3.2016 kl. 14:25
Ég er farinn að taka inn Asperin yfir að sjá ekki þessi orð :(
Ómar Gíslason, 18.3.2016 kl. 14:34
Ég get glatt þá Ómar og Helga á því að ég á örugglega eftir að koma þessum orðum að í framtíðinni og INNLIMUNARSINNUM líka.
Jóhann Elíasson, 18.3.2016 kl. 15:25
"Það er engu líkara en að fólk haldi að það geti bara hver sem er gegnt þessu embætti."
Þetta er ekki eitthvað sem fólk heldur, því það stendur einfaldlega í stjórnarskránni: "4. gr. Kjörgengur til forseta er hver 35 ára gamall maður, sem fullnægir skilyrðum kosningarréttar til Alþingis, að fráskildu búsetuskilyrðinu."
Eina sérstaka skilyrðið er að hafa náð 35 ára aldri. Þannig er t.d. ekkert sem myndi banna mér sjálfum að bjóða mig fram í forsetakosningum ef ég fengi þá hugdettu, þar sem ég uppfylli öll skilyrðin. Sennilega gerir þú það líka Jóhann.
Guðmundur Ásgeirsson, 18.3.2016 kl. 15:49
Skilyrði í lögum er ekki alltaf það sama og raunveruleikinn, Guðmundur. Sennilega uppfyllum við báðir lagaskilyrðin fyrir framboði en ég held að flestir séu sammála um það að það eru nokkur "óskrifuð" skilyrði, sem þarf líka að uppfylla.....
Jóhann Elíasson, 18.3.2016 kl. 16:34
Vissulega. Maður þarf að uppfylla það skilyrði að hafa fengið flest atkvæði kjósenda í forsetakosningum. Það er hinsvegar kjósendunum í sjálfsvald sett hvaða skilyrði frambjóðandi þarf að uppfylla til að hljóta atkvæði þeirra.
Guðmundur Ásgeirsson, 18.3.2016 kl. 16:43
Þessi færsla er rökleysa! Á að takmarka fjölda frambjóðenda? Fyrstir koma, fyrstir fá? Hvað er hæfilegur fjöldi frambjóðenda að þínu mati Jóhann - 1, 2 eða jafnvel 3 ?
Er það skítkast að tala um taglhnýting? En uppnefni og aðrar meiðandi nafngiftir þínar um menn, margendurteknar, eru auðvitað ekki skítkast.
Axel Jóhann Hallgrímsson, 18.3.2016 kl. 20:19
Axel, þessi athugasemd hjá þér er algjör rökleysa eins og við var að búast frá þér. Hvernig er það eiginlega með þig kemur ekkert frá þér nema skítkast og uppnefni??????
Jóhann Elíasson, 18.3.2016 kl. 20:46
"Þetta þýðir veikt umboð hver sem verður fyrir valinu"
Ég tel, að þetta vandamál hefði átt að leysa fyrir löngu með því að breyta kosningalögunum (það næst auðvitað ekki fyrir þessar kosningar), þannig að ef enginn frambjóðandi fær yfir 50% atkvæða, þá verði kosið aftur tveim vikum síðar milli tveggja hæstu frambjóðendanna. Þetta er gert í fjölmörgum löndum og hefur gefizt vel. Þá er ábyrgzt að kosinn forseti hafi a.m.k. 50% greiddra atkvæða á bak við sig. Og þá skiptir ekki máli hversu margir eru í framboði í fyrstu umferð. Því að eins og Axel gefur í skyn, þá er ólýðræðislegt að takmarka fjölda frambjóðenda til forsetaembættisins sem að öðru leyti uppfylla skilyrðin tvö.
Þannig ákvæði hefði getað verið beitt 1980 milli Vigdísar og Guðlaugs. Þá er alls ekki er víst að Vigdís hefði farið með sigur af hólmi.
Aztec, 18.3.2016 kl. 20:55
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.