ÞETTA ER MJÖG SAMBÆRILEGT ÞVÍ SEM HANN ÆTLAÐI SÉR MEÐ ÞVÍ AÐ "LAUMA" LANDINU Í ESB

Menn eru fljótir að snúast um 180 gráður eftir því hvort þeir eru í ríkisstjórn eða stjórnarandstöðu.  En aftur á móti er þetta alveg rétt hjá honum að þetta er algjörlega óásættanlegt afsal á valdi og er ekki heimilt samkvæt stjórnarskrá.


mbl.is Meira framsal en nokkur dæmi eru um
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóhann Kristinsson

Hvenær hefur Rikisbaknið og þá aðallega ráðuneytisstjórar farið eftir stjórnaskrá Íslands, nema þegar það hentar þeim?

Ríkisbáknið gerir það sem því sýnist og ef einhverjum dettur í hug að mótmæla og taka ákvarðanir ríkisbáknins og fer með málið fyrir dómstóla, þá eru dómstólarnir með dómara sem að eru algjörlega á mála hjá ríkisbákninu og dæma ríkisbákninu í hag. Algjör kengúrudómstólar.

Svona er nú stjórnár og dómstólakerfið á Islandi.

Þetta er svo sem ekkert einstakt vandamál á Íslandi svona er þetta í USA, sem að eg þekki nokkuð vel. Og mér dettur það í hug að svona sé þessu háttað í allflestum löndum.

Kveðja frá Houston

Jóhann Kristinsson, 22.9.2016 kl. 13:33

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

Já nafni, þetta er sko alveg rétt hjá þér, ætli stjórnarskráin sé nokkuð í hávegum höfð í mörgum ríkjum? Hún er bara teygð og toguð til eftir hentugleikum.  En það er svolítið fróðlegt að fylgjast með atferli manna eftir því hvoru megin við "borðið" þeir sitja....wink

Kveðja af Suðurnesjunum.

Jóhann Elíasson, 22.9.2016 kl. 14:16

3 identicon

Það er greinilegt að þú ert ekki að átta þig á kaldhæðninni hjá honum Össuri vini mínum, kaldhæðnin felst í því að Össur er í raun að benda á að þar sem við erum ekki í ESB en í EES, að þá erum við að taka inn allskonar löggjöf frá ESB án þess að hafa nokkuð um það að segja. Kaldhæðnin snýst líka um það að stjórnarmeirihlutinn er að samþykkja allskonar löggjöf frá ESB, en tala svo í hinu orðinu um að það megi alsekki ganga í ESB vegna þess að í því fælist fullveldisafsal.

Svo vil ég benda á að margir alþjóðasamningar fela oft í sér minniháttar valdaafsal t.d NATO samningurinn, en hann felur í sér ákveðið afsal á utanríkisstefnu okkar.

Helgi Jónsson (IP-tala skráð) 22.9.2016 kl. 15:47

4 Smámynd: Jóhann Kristinsson

Munurinn á t.d. NATO og ESB, þá hefur Ísland neitunarvald í NATO, en það er ekki á boðstólnum hjá t.d. ESB.

Kveðja frá Houston

Jóhann Kristinsson, 22.9.2016 kl. 16:50

5 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Það eru stórtíðindi að Samfylkingarþingmenn hafi loksins áttað sig á þeirri einföldu staðreynd að það stenst ekki þann eið sem þeir hafa svarið að stjórnarskránni, að véla um óbeislað framsal ríkisvald í hendur erlendra valdastofnana.

Ekki síst í ljósi þess að að fyrir atbeina þeirra var einmitt reynt að véla um slíkt framsal, með þeirri "umsókn" sem þau sendu til Evrópusambandsins árið 2009. Ef umsókn skyldi kalla, enda var hún samkvæmt þessu ólögmæt.

Þessi 180 gráðu viðsnúningur hjá Samfylkingunni, er reyndar mjög jákvæður, því batnandi fólki er best að lifa.

Góðar stundir.

Guðmundur Ásgeirsson, 22.9.2016 kl. 16:56

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband