OG ENN Á AÐ FARA Í KRINGUM STJÓRNARSKRÁNA OG KOMA "BÓKUN 35" Í GEGNUM ÞINGIÐ SEM ÞINGSÁLYKTUNARTILLÖGU.......

Að mínu áliti standast lögin um þingssköp Alþingis númer 55/1991 þar sem „þingsályktunartillögur“ ber fyrst á góma við stjórnarskrárbreytingar árið 2001, EKKI stjórnarskrána.   Það  var svo ekki fyrr en árið 2020, sem skrifstofa Alþingis gaf út leiðbeiningar um HVERNIG vinna skyldi „þingsályktunartillögur“, fram að þeim tíma höfðu þær víst verið nokkuð skrautlegar margar hverjar.  Fyrst þegar var verið að verja það að bera skyldi fram mál sem „þingsályktunartillögur“, var því borið við að þar yrði aðeins um „SMÁMÁL“ að ræða sem væru það lítilvæg að ekki tæki því að fara með þau til forsetans til undirskriftar.  Fyrstu árin eftir árið 2001, eftir að þessu ákvæði var „laumað“ inn héldu menn sig við að  „smærri" málin voru afgreidd með þingsályktunartillögum, en í júní 2009 urðu ákveðin tímamót í þessum efnum; ÞÁ VAR SAMÞYKKT ÞINGSÁLYKTUNARTILLAGA UM AÐILDARUMSÓKN ÍSLANDS AР ESB (Þingsályktunartillaga 1/137 frá júní 2009).  Og ekki er hægt að segja að þarna sé um eitthvað SMÁMÁL að ræða, en samkvæmt mínum athugunum gerist það þarna að þingsályktunartillögum fjölgar alveg gífurlega.  En svo  við förum aftur að ESB umsóknin í júní 2009 þá er þarna ekki um neitt „SMÁMÁL“ að ræða.  Eftir óstaðfestum heimildum sem ég hef undir höndum, þá var þarna um að ræða ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur og Steingríms Jóhanns Sigfússonar og þar var Utanríkisráðherra Össur Skarphéðinsson.  Þegar umsóknin kom til tals, „strandaði“ alltaf á því að Jóhanna og flokksmenn hennar höfðu þá staðföstu trú að þáverandi forseti lýðveldisins myndi ALDREI skrifa undir þessa umsókn, sem þýddi að þá yrði þjóðaratkvæðagreiðsla og það væri alveg einsýnt að þar yrði umsóknin FELLD og þar með yrði umsóknin dauð.  Þá datt einhverjum snillingi í hug  (sagt er að sá snillingur hafi verið Össur Skarphéðinsson) að leggja aðildarumsóknina að  ESB,  fram sem þingsályktunartillögu því þá þyrfti ekki að hafa ÁHYGGJUR AF FORSETANUM.  Hvort gjörningurinn væri brot á lögum væri seinni tíma vandamál.  Eftir þetta fóru mörg STÆRRI mál í gegnum þingið sem þingsályktunartillögur.  Alls hafa 1.287 mál farið í gegn sem þingsályktunartillögur og er það vel merkjanlegt hvað þessum málum hefur fjölgað mikið síðan 2009 og „þröskuldurinn“ á stærð málanna hefur hækkað mikið.  Ég fór lauslega yfir þennan lista af þingsályktunartillögum frá, þegar ég skoðaði allt í sambandi við þær í byrjun janúar á þessu ári voru þingsályktunartillögurnar 1.287 frá upphafi og þar af voru 246, sem varða BREYTINGAR á „viðaukum“ EES samningsins og ég sem hélt að ekki væri hægt að breyta gerðum samningi jafnvel þó aðeins sé um að ræða viðauka.  Ég er ansi hræddur um að margt athugavert kæmi í ljós ef allar þessar þingsályktunartillögur yrðu skoðaðar.  Nú berast þær fréttir að enn einu sinni standi til að fara framhjá forseta Íslands og að BRJÓTA STJÓRNARSKRÁNA með því að LEGGJA "BÓKUN 35" FRAM Í ÞINGINU SEM ÞINGSÁLYKTUNARTILLÖGU og beita þar með sömu aðferðum og Ríkisstjórn Heilagrar Jóhönnu og Gunnarsstaða Móra beitu við að koma umsókninni um aðild að ESB í "gegn" (eftir því sem ég best veit hefur sú umsókn EKKI verið AFTURKÖLLUÐ).  Að mínu mati er BÓKUN 35 það STÓRT MÁL að hún VERÐI að meðhöndlast sem LAGAFRUMVARP.  EES samningurinn er að verða landi og þjóð ansi kostnaðarsamur og farinn að "höggva" mikið í sjálfstæði þjóðarinnar og ekki síst fyrir atbeina ráðamanna þjóðarinnar, þess vegna get ég ekki betur séð en að það fyrir löngu orðið tímabært að segja honum upp. Standast flestar þessar þingsályktunartillögur stjórnarskrána? Á EKKI FORSETI ÞINGSINS EKKI AÐ SJÁ TIL ÞESS AÐ STJÓRNARSKRÁIN SÉ VIRT OG ER HANN AÐ SINNA STARFI SÍNU?????

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Já, nú er slæmt að hafa ekki Arnar Þór í forsetastólnum. ESB fagnar náttúrulega kjöri Höllu, því að nú vita þeir, að þeir geta komið Íslandi bakdyrameginn inn í ESB, hvað sem þjóðin hefur um það að segja. Ég er ekki viss um, að Halla myndi senda þetta í þjóðaratkvæði, hvað sem hún er nú búin að blaðra í kosningabaráttunni. Og ekki mun Guðni gera nokkurn skapaðan hlut í því, eins og hann hefur verið. Það er víst alveg áreiðanlegt.

Guðbjörg Snót Jónsdóttir (IP-tala skráð) 6.6.2024 kl. 11:03

2 Smámynd: Sigurður Kristján Hjaltested

Hárrétt hjá Guðbjörgu.

En mikið væri nú flott ef Miðflokkurinn setti það á stefnuskrá sína

að segja upp þessum EES samning sem ekkert hefur gert fyrir okkur nema

að auka og flækja einfalda hluti með allskonar reglugerðum og lögum

sem að endingu skerða lífskjör svo um munar.

Rafmagns heildsalar.? Fyrir hverja.? Svo dæmi sé tekið en þau eru núna

gott sem endalaus.

Burt með þennan samning hið fyrsta.

Sigurður Kristján Hjaltested, 6.6.2024 kl. 12:05

3 Smámynd: Jóhann Elíasson

En með því að setja þessi "landráð" fram sem ÞINGSÁLYKTUNARTILLÖGU  er verið að BRJÓTA FREKLEGA Á STJÓRNARSKRÁNNI og er það ekki hlutverk forseta Alþingis að gæta þess að lög séu virt og er ekki kominn tími til að stjórnkerfi landsins verði skoðað???????

Jóhann Elíasson, 6.6.2024 kl. 12:10

4 Smámynd: Jóhann Elíasson

Já Sigurður Kristján hér á landi er nokkuð margt sem þarf að endurskoða og annað sem ætti alveg að henda út eins og EES samningurinn....

Jóhann Elíasson, 6.6.2024 kl. 12:14

5 identicon

Hér er eitthvað málum blandið. Bókunin var hluti EES samningsins sem samþykktur var á Alþingi 1994. En það hefur tekist að rugla fólk til að halda eitthvað allt annað.

EINAR S HÁLFDÁNARSON (IP-tala skráð) 6.6.2024 kl. 14:58

6 Smámynd: Jóhann Elíasson

Hún heitir BÓKUN vegna þess að hún var aldrei SAMÞYKKT inn í EES samninginn þegar hann var gerður (þess vegna er verið að taka hana fyrir núna, ef hún hefði verið tekin inn í samninginn í upphafi væri ekki þörf á þessari umræðu núna)  Þú sem lögfræðingur Einar ættir að vita þetta en kannski er eitthvað annað að trufla þig????

Jóhann Elíasson, 6.6.2024 kl. 16:47

7 identicon

Lög um Evrópska efnahagssvæðið nr. 2/1993:

Heimilt er að fullgilda fyrir Íslands hönd:

    1. Samning um Evrópska efnahagssvæðið (EES-samninginn), þ.e. meginmál samningsins, bókanir við hann og viðauka, ásamt gerðum, sem í viðaukunum er getið, milli Efnahagsbandalags Evrópu, Kola- og stálbandalags Evrópu og aðildarríkja þessara bandalaga annars vegar og aðildarríkja Fríverslunarsamtaka Evrópu hins vegar, sem undirritaður var í Óportó hinn 2. maí 1992;

EINAR S HÁLFDÁNARSON (IP-tala skráð) 7.6.2024 kl. 11:34

8 Smámynd: Jóhann Elíasson

Rétt hjá þér Einar en það er alveg á HREINU að ef á að gera einhverjar breytingar á lögum þá verður það að fara fyrir þingið og forsetann og þá er það að reyna að fara í kringum stjórnarskrána og verið að brjóta lög með því að leggja þetta fyrir sem ÞINGSÁLYKTUNARTILLÖGU og þetta áttu að vita sem lögfræðingur.......

Jóhann Elíasson, 7.6.2024 kl. 12:11

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband