24.6.2024 | 11:47
HVAÐ ER ÞAÐ SEM VELDUR VERÐBÓLGUNNI???????????
Mér blöskraði algjörlega í morgun, þegar ég hlustaði á sjálfskipaðan "snilling" segja það að "VERÐBÓLGA KÆMI EINGÖNGU TIL VEGNA PENINGAMANGS Í UMFERÐ". Í þessi tilfelli verður spurningin um "EGGIÐ og HÆNUNA" virk. Peningamagn í umferð er í sjálfu sér ekki það sem veldur verðbólgu HELDUR HVERS VEGNA PENINGAMAGN Í UMFERÐ ER AUKIÐ EN ÞAR KOMA TIL AÐGERÐIR RÍKISSTJÓRNARINNAR. Skýrasta dæmið um þetta eru aðgerðir ríkisstjórnarinnar vegna COVID. Þar var tekið upp á því að "styrkja" atvinnulífið, upp á sem nam hundruðum milljarða króna, en vandamálið var bara það ekki voru til peningar fyrir þessu og þá var ákveðið að taka þetta að láni með því að "PRENTA" peninga fyrir þessu og að sjálfsögðu jók þetta verðbólguna til muna ÞANNIG ER HÆGT AÐ FÆRA FYRIR ÞVÍ RÖK AдÞAÐ ÞAÐ VORU "LÁNTÖKUR" (ÚTGJÖLD) RÍKISINS ,SEM OLLU VERBÓLGUNNI Í ÞESSU TILFELLI. Væri ekki ráð fyrir svona"snillinga" að skoða málin í heild sinni í stað þess að taka einhvern hluta af vandamálinu og gefa sér að þar sé allt vandamálið komið? Er ekki rétt að fara yfir það hvaða þættir hafa áhrif á verðbólguna? Jú þeir hafa fyrst og fremst áhrif á NEYSLU en NEYSLA skiptist í tvo þætti í hagfræðinni það er EINKANEYSLA og SAMNEYSLA, einkaneysla er samkvæmt skilgreiningu hagfræðinnar neysla almennings á landinu. Það er yfirleitt EKKI mælt með því að almenningur taki lán fyrir neyslu sinni þó svo að vissulega séu dæmi fyrir því. Af heildarneyslunni er EINKANEYSLAN aðeins lítill hluti af heildarneyslunni, ef tekið er lán fyrir hluta þessara neyslu er að sjálfsögðu ekki um neitt annað að ræða en að taka þau lán hér innanlands og afskaplega hæpið að halda því fram að sú lántaka sé VERÐBÓLGUHVETJANDI. Öðru máli gegnir um SAMNEYSLUNA, þar er um OPINBERA NEYSLU að ræða (heilbrigðisþjónustu, félagsþjónustu, löggæslu og fleira). SAMNEYSLAN er fíllinn í postulínsversluninni, útgjöld hins opinbera hafa AUKIST ALVEG GÍFURLEGA SÍÐUSTU ÁR og það sem er alvarlegast er það að ÖLL ÞESSI AUKNING OPINBERRA ÚTGJALDA ER TEKIN AÐ LÁNI OG ÞAÐ ER ÞAÐ SEM VELDUR VERÐBÓLGUNNI. HVER SKYLDI ÁSTÆÐAN VERA FYRIR ÞVÍ AÐ VERÐBÓLGA HÉR ER HÆRRI EN Í NÁGRANNALÖNDUNUM? JÚ Í SINNI EINFÖLDUSTU MYND ER HÆGT AÐ SEGJA AÐ VERÐBÓLGA SKAPIST VIÐ ÞAÐ AÐ VIÐ EYÐUM MEIRU EN VIÐ ÖFLUM. Síðustu árin og síðustu áratugina hafa hagfræðingar verið að reyna að átta sig á því almennilega hvað VERÐBÓLGA er í rauninni og hvað það er sem raunverulega veldur henni. Ef við rennum stuttlega yfir söguna sjáum við að hún einkennist nokkuð mikið , fyrstu árin, af tilraunastarfsemi og tilgátum til dæmis voru á árunum 1960-1980 voru hagfræðingar mjög uppteknir af að sýna fram á tengst verðbólgu og atvinnuleysis, seinna kom svo Milton Friedman með hina svokölluðu PENINGAMAGNSKENNINGU sem átti að leysa endanlega verðbólguvandann og varð sú kenning nánast heilög nokkuð lengi, næst var farið að tengja saman STÝRIVEXTI og VERÐBÓLGU og var sú tilgáta talin rétt og óumdeild þar til upp úr 2010 en þá fóru að koma fram efasemdarraddir og ýmsir virtir hagfræðingar eins og Krugman, Taylor, Mankiw og fleiri fóru að koma með verulegar athugsemdir við þessa kenningu og Stieglitz skaut þetta endanlega niður. Stundum fæ ég það á tilfinninguna sumir telji það að þegar þeir útskrifist úr einhverju námi, séu þeir BÚNIR að læra, hendi ÖLLUM námsbókum og hætti að fylgjast með öllum framförum í þeirri grein sem þeir menntuðu sig í og loki sig af í einhverjum fílabeinsturni þar sem þeir geta bara verið í friði fyrir almenningi.Lengi hefur sá orðrómur verið í gangi að mikið fjármagn "LEKI" úr landi í gegnum hælisleitendur. En hvernig má það vera því þetta er eiginlega 100% allslaust og eignalaust fólk? Jú hér kemur skýringin: ÞETTA FÓLK ER ALFARIÐ Á OKKAR KOSTNAÐ, ÞEIR FARA Í FJÖLSKYLDUHJÁLPINA OG ÖNNUR HJÁLPARSAMTÖK OG FÁ ÞAR MAT, SVO FER ÞETTA LIÐ Á HJÁLPRÆÐISHERINN OG FÆR AÐ BORÐA FRÍTT, ÞÁ FÆR ÞETTA FÓLK SVOKÖLLUÐ "BÓNUSKORT (en þetta eru inneignarkort fyrir ákveðinni upphæð í hverjum mánuði til að kaupa inn matvæli og aðrar nauðsynjavörur). VEGNA ÞESS AÐ ÞETTA FÓLK ER BÚIÐ AÐ LÆRA INN Á "KERFIÐ" (þetta er kallað að vera "kerfisfræðingur"), HVERNIG Á AÐ FÁ ALLT FRÍTT HÉRNA ÞÁ GETA ÞEIR SELT BÓNUSKORTIN SÍN (til þess að skapa einhverja EFTIRSPURN eftir þessum KORTUM verður að selja þau með einhverjum afföllum skilst mér að nokkuð mikil eftirspurn sé eftir þeim í "fíkniefnaheiminum"). Ég tók þessum sögum með miklum fyrirvara og fannst þetta frekar fjarstæðukennt, en fór svo að hugsa málið eftir að upplifa það ég var staddur á pósthúsinu í Reykjanesbæ síðastliðinn miðvikudag um klukkan 14:00, þar var maður að frá Palestínu að senda 50.000 krónur til Palestínu. Með því að senda þetta lága upphæð er EKKERT spurt um uppruna peninganna og ekkert þarf að gera grein fyrir neinu. Daginn eftir var ég staddur í banka í Reykjanesbæ og þar var maður frá Venesúela að senda SÖMU UPPHÆÐ "heim". Ekki er þetta stór upphæð og ætti ekki að hafa mikil áhrif á efnahag landsins, en stöldrum nú aðeins við, ef við gefum okkur að 5.000 manns sendi 50.000 krónur á mánuði úr landi þá eru þetta 250 milljónir á mánuði sem gera ÞRJÁ MILLJARÐA Á ÁRI. GÆTU EKKI VERA FLEIRI SVONA "LEKAR" Í KERFINU? Það er kannski möguleiki á því að eitthvað dragi úr þessum "GJALDEYRISLEKA" úr landinu þegar FJÖLSKYLDUHJÁLPIN hætti starfsemi seinna á árinu? En sennilega kemur "GÓÐA FÓLKIÐ" einhverju "úrræði" á koppinn í staðinn. OG SVO ERU MENN ALVEG "KJAFTBIT" Á ÞVÍ AÐ ÞAÐ SÉ VERÐBÓLGA Í LANDINU. Svo er eina ráðið í baráttunni við verðbólguna, sem stjórnmálamenn sjá, ER AÐ HÆKKA SKATTA. HVERNIG VÆRI AÐ FARA BETUR MEÐ ÞAÐ FJÁRMAGN SEM RÁÐAMENN HAFA TIL RÁÐSTÖFUNAR???????
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Engu ríki í sögunni hefur nokkurntíma tekist að prenta sig út úr verðbólgu. En það eru ekki aðeins ríkisútgjöld umfram tekjur sem auka peningamagn í umferð. Útlán banka umfram afborganir eru enn stærri uppspretta peningamagns í umferð, sem hér á landi er miklu stærri en ella vegna landlægrar útbreiðslu verðtryggðra útlána og alvarlegrar villu í reglum um reikningsskil þeirra.
Guðmundur Ásgeirsson, 24.6.2024 kl. 21:17
Guðmundur, ég hef heldur enga trú á að NEINN sé svo vitlaus að reyna það. Ég trúi því heldur ekki að ráðamenn hafi hafi ekki gert sér grein fyrir því hvað þeir voru að gera á þessum tíma, heldur hafi þeir verið svo vitlausir að halda að þeir kæmust upp með þetta og litið svo á að þetta væri seinni tíma vandamál, sem aðrir yrðu að takast á við....
Jóhann Elíasson, 24.6.2024 kl. 21:31
Það er alltaf freistandi að rífa bara í sveifina á prentaranum þegar þarf að borga fyrir vinsældavæn verkefni, jafnvel þó menn viti að síðar muni koma að skuldadögum.
Þess vegna væri sennilega lang best að taka sveifina hreinlega af prentaranum, svo að enginn geti misnotað hann með þeim hætti.
Guðmundur Ásgeirsson, 25.6.2024 kl. 18:31
Rétt hjá þér Guðmundur en væri ekki betra að "PRENTARINN" væri þannig varinn að það væri ekki svona einfalt að nota hann eins og raunin er????
Jóhann Elíasson, 25.6.2024 kl. 19:22
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.