MAÐURINN HEFUR BARA EINSTAKT LAG Á AÐ SETJA ALLT Í ÞROT, SEM HANN KEMUR NÁLÆGT.......

 Það er alveg með ólíkindum hvað þessi maður hefur getað vafið einföldum "Vinstri Öfgasálum" um fingur sér með lýðskrumi og hreinum og klárum lygum.  En það verður ekki tekið af honum að hann er flugmælskur og hann á mjög auðvelt með að hrífa fólk með sér.  En þetta eru einmitt einkenni siðblindingja.  Það væri ekki úr vegi að rifja upp nokkur atriði úr sögu þessa manns:  Hann var einn af helstu forkólfum þess að "Fréttablaðið" fór af stað í núverandi mynd og mér skilst að hugmyndin hafi verið hans.  Þegar hugmyndin um "Fréttablaðið" var komin vel af stað tókst honum að sannfæra Jón Ásgeir og fleiri "viðskiptamógúla" um að það væri tilvalið að koma svona "fríblaði" af stað í Danmörku.  Þessi áform "floppuðu" algjörleg og með því minnkuðu möguleikar hans á því að komast í í "klíkuna" með Jóni Ásgeiri og fleirum.  Eftir ævintýrið í Danmörku kom hann til baka til landsins, með skottið á milli lappanna og "endurreisti" Fréttatímann.  Það ævintýri stóð í nokkra mánuði og endaði í gjaldþroti og það sem var alvarlegast var að starfsfólkið fékk ekki greidd laun síðustu mánuðina.  Þegar það varð alveg ljóst að Jón Ásgeir og félagar vildu ekkert með manninn hafa, gerðist hann stækur Sósíalisti með það að markmiði að berjast gegn "AUÐVALDINU" og með lítilmagnanum.  Hann stofnaði Sósíalistaflokkinn og tókst að fá nokkra til fylgis við sig (maðurinn er jú vel mælskur og sannfærandi) og nú stefnir hann á að flokkurinn fái sæti á Alþingi.  Í dag er ekki vitað hverjir koma til með að vera í framboði fyrir flokkinn, en ekki kæmi það á óvart að þar yrði hann sjálfur í framvarðasveitinni því ekki ætlar hann að lifa eins og einhver öreigi.  Finnst mönnum þessi maður mjög trúverðugur?  Þrátt fyrir þennan "glæsileg feril" hefur honum tekist að sannfæra einhverjar "auðtrúa sálir", sem tilheyra þessu BAKBORÐSSLAGSÍÐULIÐI um það að hann eigi fullt erindi á Alþingi Íslendinga. Ekki myndi ég kaupa notaðan bíl af þessum manni.......


mbl.is Samstöðin tapaði 24 milljónum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður I B Guðmundsson

Ég fer stundum inná "Samstöðina" og þar er oftar en ekki fróðlegt efni á ferð.  En fortíð þessa manns er ekki upp á marga fiska en hann er duglegur að fiska allskonar sálir til sín!!

Sigurður I B Guðmundsson, 13.9.2024 kl. 11:48

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

Rétt hjá þér Sigurður og mér dettur ekki í hug að segja að Samstöðin sé slæm og eins þú segir er margt gott og fróðlegt sem þar kemur fram en Gunnar Smári er ekki merkilegur pappír og ég er svolítið hræddur um að Samstöðin gjaldi fyrir það................

Jóhann Elíasson, 13.9.2024 kl. 11:58

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband