ERU RÁÐAMENN ÞJÓÐARINNAR FLESTIR MEÐ "SKÍT" Á MILLI EYRNANNA???

Á þessum tímum jarðskjálfta og eldsumbrota á Reykjanesi "DÚKKAR" enn upp hugmyndin um FLUGVÖLL Í HVASSAHRAUNI. OG TIL AÐ BÆTA "GRÁU OFAN Á SVART" ÞÁ SEGIR INNVIÐARÁÐHERRA Í GLEÐI SINNI "AÐ ÞESSI NIÐURSTAÐA HAFI KOMIÐ SÉR ÞÆGILEGA Á ÓVART" (Um þá niðurstöðu "nefndarinnar" að það væri "öruggt" að byggja flugvöll í Hvassahrauni).  Svo vil ég enn einu sinni minna á það að helstu  rökin, sem voru notuð, af hálfu þeirra sem vildu byggja nýjan spítala við Hringbraut VAR NÁLÆGÐIN VIÐ REYKJAVÍKURFLUGVÖLL.  En svo um leið og búið var að taka ákvörðun um byggingu spítalans við Hringbraut hófst aðförin að Reykjavíkurflugvelli AFTUR.........


mbl.is „Hissa á að ráðherra hafi skipað þetta“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla

Athugasemdir

1 identicon

Svadís var bara að ná í atkvæði fyrir VG þegar hún lét bullið út úr sér. Henni hryllir við að VG komist ekki með mann inná þing og þar með þurfi hún að hætta á þingi (VONANDI !)

Nýr flugvöllur mun kosta 2-300 milljarða með öllum byggingum og tækjum sem þar þarf að vera, OG, samkvæmt ICAO ( alþjóða flugmálastofnunin) þá þarf að reka nýjan flugvöll ÁSAMT þeim sem hann á að taka við í 5 ÁR, áður en hann fær fullgildingu sem alþjóðaflugvöllur.

Ekki hægt að rífa búnað frá núverandi flugvelli til að endurnýta.

Birgir Gudjonsson (IP-tala skráð) 4.10.2024 kl. 09:31

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

Sennilega má reikna með að nýr flugvöllur  kosti ekki undir 500 milljörðum, þegar upp verður staðið Birgir miðað við hvernig fjárhagsáætlanir hafa staðist undanfarin ár og svo hafa áætlanir um VERKTÍMA aldrei staðist......

Jóhann Elíasson, 4.10.2024 kl. 09:49

3 Smámynd: Örn Gunnlaugsson

Ég held að vel sé í lagt að ætla að eitthvað sé þar á milli. Gæti trúað ef þú litir inn í eyrun á þeim sæir þú í gegn.

Örn Gunnlaugsson, 4.10.2024 kl. 09:53

4 Smámynd: Jóhann Elíasson

Örn, kannski nær "skíturinn" bara upp að eyrum og EKKERT þar fyrir ofan? Svo var annað sem ég vildi koma að: "HVERNIG HAFA MENN HUGSAÐ SÉR AÐ REKA SJÚKRAFLUG FRÁ HVASSAHRAUNI MIÐAÐ VIÐ HVERNIG UMFERÐIN ER Í REYKJAVÍK Í DAG????????

Jóhann Elíasson, 4.10.2024 kl. 10:21

5 Smámynd: Örn Gunnlaugsson

Menn hefðu betur hugsað heildstætt. Vífilstaðasvæðið hefði verið kjörið fyrir nýjan Landspítala, greiðar leiðir í allar áttir og möguleikar á að færa flugvöllinn. En hvers vegna má flugvöllurinn ekki vera þar sem hann er ? Er það ekki bara græðgi borgarinnar að geta selt lóðir undir íbúðir á okurverði ?

Örn Gunnlaugsson, 4.10.2024 kl. 10:35

6 Smámynd: Jóhann Elíasson

Já það voru gerð STÓR mistök við ákvörðun um staðsetningu nýs spítala......

Jóhann Elíasson, 4.10.2024 kl. 10:42

7 identicon

"Er það ekki bara græðgi borgarinnar að geta selt lóðir undir íbúðir á okurverði ?"

Þarna hittir Örn hamrinum í höfuð á Borgarstjóra...

Borgin er á kúpuni og þetta var alltaf von Dags B að fá þarna milljarðana til að rétta við.

Birgir Gudjonsson (IP-tala skráð) 4.10.2024 kl. 11:05

8 Smámynd: Jóhann Elíasson

Jú Birgir, að sjálfsögðu eru það peningarnir, sem stjórna öllu.  Örn veit sko alveg hvað hann syngur og það sem betra er þá stendur hann fast með því sem hann segir....

Jóhann Elíasson, 4.10.2024 kl. 11:38

9 identicon

Þeaai þráhyggja í Degi og kó er orðin hið versta mál og hefur lengi verið. Ég furða mig líka á því, þegar bæði stjórnvöld landsins og fleiri, sem ættu að vita betur taka undir þessa firru. Sigurður Ingi hefur þó sagt, að Hvassahraun komi ekki til greina, meðan eldar geysa á Reykjavesi. Menn ættu líka að hlusta betur á Ómar Ragnarsson, reyndasta flugmann landsins, og taka mest mark á honum, og því, sem hann hefur sagt um flugvöll í Hvassahrauni. Hann ætti að vita mest um aðstæður til flugs þar, eins reyndur og hann er. Ég tek undir allt, sem hann segir um þessi mál og einnig þá, sem finnst þetta hið mesta glapræði og rugl að fara að setja niður flugvöll þarna.Flugrekstraraðilalr ættu líka að vita sínu viti í þessum málum og mæla manna heilastir um þessi mál. Ég las það, sem forstjóri Icelandair sagði við blaðamann, að það sé miera vit í að byggja fyrst upp nauðsynlegustu innviði landsins eins og vegakerfið, áður en ráðist verður í svona alltof dýra framkvæmd eins og flugvallagerð, enda alltof dýr framkvæmd til að ráðast í.Ég er sammála því. Þetta er tómt rugl og vitleysa, hvernig sem á það er litið. Svo einfalt er það mál.

Guðbjörg Snót Jónsdóttir (IP-tala skráð) 4.10.2024 kl. 12:22

Bæta við athugasemd

Hver er summan af þremur og ellefu?
Nota HTML-ham

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband