EF FÓLK ER ANDVÍGT INNGÖNGU Í ESB ÞÁ GETUR ÞAÐ EKKI VERIÐ OPIÐ FYRIR VIÐRÆÐUM.....

Með þessari yfirlýsingu sinni er hún hreinlega að gefa til kynna að henni sé bara engan veginn treystandi og við gætum bara verið komin inn í ESB ef pólitískir vindar "blésu" þannig.  Hún virkar nú ekki þannig að hún sé mikil samningamanneskja........


mbl.is Áslaug opin fyrir að ræða atkvæðagreiðslu um ESB
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Æi er hún komin á bullvagninn hjá "viðræðusinnum". Allt tal um "aðildarviðræður" er bull vegna þess að með því er ranglega verið að gefa í skyn að eitthvað sé umsemjanlegt þegar svo er ekki. Sáttmálar Evrópusambandsins liggja fyrir opinberlega og eru ekki umsemjanlegir. Eina spurningin sem gæti verið ástæða til að leggja fyrir í þjóðatkvæðagreiðslu er hvort kjósandinn vilji að Ísland undirgangist þá sáttmála eða ekki, já eða nei. Ef það yrði samþykkt væri umsókn um aðild og aðlögun að sáttmálum sambandsins svo bara formsatriði í kjölfarið. Þar sem aðild að Evrópusambandinu myndi fela í sér (nánast) varanlegt afsal fullveldis að verulegu leyti væri líka eðlilegt að setja skilyrði um samþykki aukins meirihluta fyrir svo afdrifaríkri ákvörðun.

Guðmundur Ásgeirsson, 19.10.2024 kl. 17:43

2 Smámynd: Grímur Kjartansson

Algjörlega sammála
Hringingar hennar í ríkislögreglustjóra eru líka algjör dómgreindarbrestur

Grímur Kjartansson, 19.10.2024 kl. 18:32

3 Smámynd: Jóhann Elíasson

Það  er ekkert til sem heitir samningaviðræður við ESB í þessu efni.  EF VIÐRÆÐUR FARA FRAM VIÐ ESB ER VERIÐ AÐ TALA UM INNGÖNGUSKILMÁLA ÞAÐ ER EKKERT TIL SEM HEITIR VAL UM ÞAÐ HVORT ER FARIÐ INN EÐA EKKI.  ÞAÐ ER EKKERT Í OKKAR STJÓRNARSKRÁ SEM HEIMILAR VALDAFRAMSAL, HVORKI MEÐ MEIRIHLUTA EÐA AUKNUM MEIRIHLUTA Í ÞJÓÐARATKVÆÐAGREIÐSLU......

Jóhann Elíasson, 19.10.2024 kl. 18:38

4 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Rétt Jóhann, stjórnarskráin heimilar ekki valdaframsal, a.m.k. ekki í þeirri mynd sem aðild að ESB myndi útheimta.

Guðmundur Ásgeirsson, 19.10.2024 kl. 19:00

Bæta við athugasemd

Hver er summan af fimm og tíu?
Nota HTML-ham

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband