ÞAÐ VIRÐIST EKKI VERA NEINN MÖGULEIKI TIL AÐ HAFA "TAUMHALD" Á ÞESSUM MANNI SVO HANN VALDI EKKI MEIRI SKAÐA Í ÞJÓÐFÉLAGINU......

 Það er alveg með ólíkindum hvað þessi maður hefur getað vafið einföldum "Vinstri Öfgasálum" um fingur sér með lýðskrumi og hreinum og klárum lygum og til að bæta gráu ofan á svart þá ætlar þessi maður að fara í framboð til Alþingis, sem ég er nokkuð viss um að ekki vænkast hagur Sósíalistaflokksins við þá ráðstöfun.  En það verður ekki tekið af honum að hann er flugmælskur og hann á mjög auðvelt með að hrífa fólk með sér.  En þetta eru einmitt einkenni siðblindingja.  Það væri ekki úr vegi að rifja upp nokkur atriði úr sögu þessa manns:  Hann var einn af helstu forkólfum þess að "Fréttablaðið" fór af stað í núverandi mynd og mér skilst að hugmyndin hafi verið hans.  Þegar hugmyndin um "Fréttablaðið" var komin vel af stað tókst honum að sannfæra Jón Ásgeir og fleiri "viðskiptamógúla" um að það væri tilvalið að koma svona "fríblaði" af stað í Danmörku.  Þessi áform "floppuðu" algjörleg og með því minnkuðu möguleikar hans á því að komast í í "klíkuna" með Jóni Ásgeiri og fleirum.  Eftir ævintýrið í Danmörku kom hann til baka til landsins, með skottið á milli lappanna og "endurreisti" Fréttatímann.  Það ævintýri stóð í nokkra mánuði og endaði í gjaldþroti og það sem var alvarlegast var að starfsfólkið fékk ekki greidd laun síðustu mánuðina.  Þegar það varð alveg ljóst að Jón Ásgeir og félagar vildu ekkert með manninn hafa, gerðist hann stækur Sósíalisti með það að markmiði að berjast gegn "AUÐVALDINU" og með lítilmagnanum.  Hann stofnaði Sósíalistaflokkinn og tókst að fá nokkra til fylgis við sig (maðurinn er jú vel mælskur og sannfærandi) og nú stefnir hann á að flokkurinn fái sæti á Alþingi.  Í dag er ekki vitað hverjir koma til með að vera í framboði fyrir flokkinn, en ekki kæmi það á óvart að þar yrði hann sjálfur í framvarðasveitinni því ekki ætlar hann að lifa eins og einhver öreigi.  Finnst mönnum þessi maður mjög trúverðugur?  Þrátt fyrir þennan "glæsileg feril" hefur honum tekist að sannfæra einhverjar "auðtrúa sálir", sem tilheyra þessu BAKBORÐSSLAGSÍÐULIÐI um það að hann eigi fullt erindi á Alþingi Íslendinga. Ekki myndi ég kaupa notaðan bíl af þessum manni......

 


mbl.is Gunnar Smári í oddvitasætið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður I B Guðmundsson

 Eini kosturinn við hann og Svandísi er að við verðum væntanlega laus við þau bæði eftir næstu kosningar!

Sigurður I B Guðmundsson, 31.10.2024 kl. 10:50

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

Kannski Sigurður en það hræðir mig mikið að með því að setja Gunnar Smára á lista opni Sósíalistarnir fyrir það AÐ AÐ TVENNU ILLU SÉ "SKÁRRA" AÐ KJÓSA SVANDÍSI OG "BJARGI" ÞANNIG AÐ VG KOMIST Á ÞING..........

Jóhann Elíasson, 31.10.2024 kl. 11:00

3 Smámynd: Sigurður I B Guðmundsson

Það getur aldrei verið betra að kjósa Svandísi. Ekki einu sinni fyir vinstrið. 

Sigurður I B Guðmundsson, 31.10.2024 kl. 11:31

4 Smámynd: Jóhann Elíasson

það er aldrei að vita hvað leynist í kollinum á þessu "BAKBORÐSSLAGSÍÐULIÐI"........ undecided

Jóhann Elíasson, 31.10.2024 kl. 11:40

5 identicon

Mér sýnist á öllu, að Svandís hafi ekki sama kjörþokkann eins og Katrín hefur haft, enda hafði hún sjálf töluvert fylgi ein og sér, eins og margir höfðu hér á árum áður, og má þar nefna Hannibal. Hann gat alltaf verið að stofna þessa flokka sína og náði alltaf inn, þótt enginn hefði trú á því, því að hann sjálfur hafði svo mikið persónuflygi, og þetta hefur Katrín haft, en því miður ekki Svandís. Hún hefur líka klúðrað svo mörgu, að fylgið hefur reyst af flokknum. Mér sýnist örlög VG ætla að verða eins og Alþýðuflokksins á sínum tíma. Þessir sósíalistaflokkar eru gjörsamlega vonlausir í dag og úr takti við nútímann, eða eins og sagt er í frægu leikriti: "Stalín er ekki hér". Pútín gæti jafnvel ekki vakið hann upp með þessu brölti sínu. Þó að VGingar hafi kennt sig við umhvervissina og græningja þess vegna, þá dugir það ekki til, þegar formaðurinn er líka eins og hann er, og Svandís veit ekki í hvorn fótinn hún vill eða á að stíga í málum, sem koma upp á borðið til hennar. Hún tapar líka stórlega á því að vilja ekki sitja í starfsstjórninni, og vera í þessu stjórnarsamstarfi meira,sem Katrín hefði gert eins skyldurækin og hún er, þá kemur það niður á fylginu, eins og sannast hefur margsinnis í kosningum. Hún ræður ekki við hlutverk sitt, og á erfiðar með það greinilega eftir veikindin. Ég er sammála Bjarna, þegar hann sagði,að besta stjórnin væri stjórn tveggja flokka, enda hefur það marg sýnt sig og sannast gegnum ár og öld. En Svandís og Gunnar Smári eiga vel saman svo sem, þótt ég sé hrædd um, að hvorugt þeirra beri mikið úr býtum, sem mér finnst allt í lagi í sjálfu sér, enda hefur mér fuldist Gunnar alltaf vera hundleiðinlegur, og ekki bætir Múlastelpan eða Ragnar Ingólfsson um betur. Fjarri því.

Guðbjörg Snót Jónsdóttir (IP-tala skráð) 31.10.2024 kl. 17:52

6 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

"Illt er að leggja ást við þann,sem enga kann á móti" heyri bergmál Fjallkonunnar hljóma í klettasölum Íslands. 
    Gef að krossa/kosning okkar góði guð heimti það úr helju. 

Helga Kristjánsdóttir, 31.10.2024 kl. 19:04

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband