"ÞAÐ ER EKKI EIN BÁRAN STÖK Í 12 VINDSTIGUM"...........

Er ekki komið nóg af "drullu" á þennan mannræfil?  Það er búið að draga hann svoleiðis á bólakaf í "drullusvaðið" að hann á sér ekki VIÐREISNAR von (sennilega kæmist hann ekki einu sinni í Viðreisn) eftir þá útreið sem hann hefur fengið.  Er nokkur bættari með því að þessi umfjöllun haldi áfram?????


mbl.is Klúr skrif beindust einnig gegn börnum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Æjú, greyið. Hann batnar lítið við svona skrif, held ég. Skúrkar eru og verða alltaf skúrkar, hvað sem sagt er. Úrvalið er nú ekki meira hjá Samfylkingunni en þetta. Formaðurinn lítið skárri en þessir strákar, sem hún velur með sér á lista. Þau fara með listann og flokkinn til fjandans. Ég skil bara ekki, hvað Viðreisn fær mikið af atkvæðum. Ætla mætti, að kjósendur vilji endilega ana inn í ESB, eftir því að dæma, því að það er víst áreiðanlegt, að Þorgerður mundi láta það verða sitt fyrsta verk að koma landi og þjóð þangað inn, hvað sem hver segði hér á landi, enda mundi  hún gera það án þess að spyrja kóng eða prest. Þjóðin fengi engu um það ráðið. Mér líst ekkert á þessar skoðanakannanir, sem verið er  að birta, og finnst þær heldur ótrúverðugar. Ég trúi því varla fyrr en á er tekið, að kjósendur vilji í alvörunni  kjósa flokka, sem vilja endilega bruna inn í ESB, hvað sem þjóðin hefur um það að segja, og líka án þess að hún sé spurð. Ef Viðreisn á svo að taka við af Samfylkingunni, þegar allt er farið til fjandans þar, og báðir flokkarnir vilja endilega bruna inn í ESB, hvað sem hver segir, þá líst mér ekki á blikuna. Ég get ekki sagt annað. Ég vona svo samnarlega, að Sjálfstæðisflokkurinn og Framsókn nái vopnum sínum í kosningunum, því að mér finnst öðrum vart treystandi fyrir stjórn landsins. Það verð ég að segja. Við verðum að vona það besta.

Guðbjörg Snót Jónsdóttir (IP-tala skráð) 15.11.2024 kl. 11:02

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

Ég er síður en svo að verja hann eða það sem hann hefur gert, en einhvern veginn finnst mér að það sé komið mikið meira en nóg af umfjöllun um þetta mál.  Reyndar á þessi maður fjölskyldu og ekki fara börnin hans varhluta af þessari umfjöllun, sem mér finnst nú frekar ósmekkleg.  Mér finnst formaðurinn alls ekki hafa tekið á þessu máli og það hefur verið henni frekar til minnkunar en hitt.  Ég verð að segja eins og er að miðað við pólitískan - og Fjárhagslegan feril formannsins þá get ég ekki skilið þessa fylgisaukningu flokksins.......

Jóhann Elíasson, 15.11.2024 kl. 11:36

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband