"WOKE- OG ESB RÍKISSTJÓRN ÞORGERÐAR KATRÍNAR GUNNARSDÓTTUR"...

Hvers vegna segi ég þetta??  Jú það er fremur einfalt, þrátt fyrir að Kristrún Frostadóttir, hafi fengið umboð til stjórnarmyndunar, var það Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir sem fékk "úthlutað" ÖLLUM helstu og veigamestu ráðuneytunum; Utanríkisráðuneytinu, Efnahags- og Fjármálaráðuneytinu, Atvinnuvegaráðuneytinu og Dómsmálaráðuneytinu.  Kristrún Frostadóttir "fékk" náðarsamlega að vera forsætisráðherrasennilega var aðalástæðan sú að hún var með umboðið til stjórnarmyndunar svo komu Menningar-, Nýsköpunar- og Háskólaráðherra, Umhverfis-, Orku- og Loftslagsráðherra og svo var eiginlega vitað að Alma Möller yrði Heilbrigðisráðherra.Svo fékk Inga Sæland Sæland "molana" sem Þorgerður Katrín taldi sér ekki samboðna, eins og Félags- og Húsnæðisráðherra, Mennta- og Barnamálaráðherra og Samgöngu- og Sveitstjórnaráðherra.

Og svo til að taka af allan vafa um það hver stjórnaði lét Þorgerður Katrín, verða sitt fyrsta verk að láta vita af því að hún ætlaði að leggja fram frumvarp um "BÓKUN 35" og það ættu ALLIR RÁÐHERRAR RÍKISSTJÓRNARINNAR AÐ SAMÞYKKJA SKILYRÐISLAUST.  Eitthvað hefur Eyjólfur Ármannsson möglað en það endaði með því að hann gaf út yfirlýsingu á vísir.is, þess efnis að hann ætlaði að samþykkja frumvarið þegjandi og hljóðalaust.  Þetta vekur auðvitað athygli þar sem Eyjólfur Ármannson hefur, hingað til, verið einn af hörðustu andstæðingum BÓKUNAR 35 og öðrum LAKDÁÐAGJÖRNINGUM  (þá er alveg merkilegt hvernig mennn umturnast gjörsamlega við það að settur er ráðherrastóll undir ra........ á þeim og breyta stefnunni um 180 gráður).  ÞÁ ER SPURNINGIN HVORT EKKI VERÐI BEITT FLEIRI KÚGUNUM OG ÞVINGUNUM????? 

Þá er komið að "STJÓRNARSÁTTMÁLANUM", sem er að mínu viti eitthvað almesti "BRANDARI" sem hefur sést á prenti í manna minnum.  Í "stjórnarsáttmálanum" eru  tölusett 23 ÓTÍMASETT "MARKMIÐ" og ÖLL hefjast þau þannig: "MEÐ ÞVÍ AÐ ......"  ÞAR  ER EKKERT UM ÞAÐ AÐ FINNA HVERNIG EIGI AÐ GERA HLUTINA OG ENN SÍÐUR UM KOSTNAÐINN EÐA HVENÆR SKULI FRAMKVÆMA HLUTINA NEMA SÍÐASTA TÖLUSETTA MARKMIÐIÐ KVEÐUR Á UM ÞAÐ AÐ ÞJÓÐARATKVÆÐAGREIÐSLA UM ÁFRAMHALDANDI AÐILDARVIÐRÆÐUR VIÐ ESB SKULI FARA FRAM EIGI SÍÐAR EN ÁRIÐ 2027.

NÚ BÍÐ ÉG BARA EFTIR AР STJÓRN HEIMSÝNAR "RUMSKI" AF DVALANUM SEM FÉLAGIÐ HEFUR VERIÐ Í OG GERI EITTHVAР FLEIRA EN AÐ LÝSA YFIR ÁHYGGJUM AF ÞVÍ SEM ER FRAMUNDAN.......


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Rúnar Már Bragason

Verri jólagjöf gat þjóðin ekki fengið. Þær verða með sönnu valkyrjur sem flytja líkin til Brussel.

Rúnar Már Bragason, 25.12.2024 kl. 21:24

2 Smámynd: Guðjón E. Hreinberg

Eins og ekkur sagði; kjötskurðarmenn Líkríkisins.

:)

Guðjón E. Hreinberg, 25.12.2024 kl. 21:55

3 Smámynd: Jóhann Elíasson

Já svo sannarlega Rúnar.  Ég held að fólk geri sér ekki almennilega grein fyrir því hvað er að  fara af stað.........

Jóhann Elíasson, 25.12.2024 kl. 22:02

4 Smámynd: Jóhann Elíasson

Þarna held ég að þú hafir alveg hitt á það", Guðjón...

Jóhann Elíasson, 25.12.2024 kl. 22:04

5 identicon

Sælir piltar - og þakka þjer Jóhann kyrfilega og vandaða samantektina, sem þú sendir núna nýjasta, af þinni alkunnu einurð og drengskap.

Jeg ætla að leyfa mjer; að endurbirta hjer á síðu þinni Jóhann það:: sem jeg setti inn á síðu hinnar vönduðu nöfnu minnar, Helgu Daggar

Sverrisdóttur, núna rjett áðan - þessa tilefnis: sjerílagi.

Því get jeg lofað; þjer og öðrum samlöndum okkar, að jeg mun troða illhryssinglegar

sakir:: Eyjólfi Ármannssyni og öðrum fylgjurum bókunar nefnunnar nr. 35, til handa

mjög bráðlega, í ljósi þessarra tíðinda, sem Eyjólfur ljet frá sjer fara, á dögunum.

Jeg galt ekki Flokki fólksins atkvæði mitt (hjer: í Suðurkjördæmi) þann 30. Nóvember s.l.

í þeim tilgangi, að íslenzka þjóðarbrotið gengi IIII. ríki Þjóðverjanna á hönd, ekki hvað

sízt í ljósi þess, að við erum jú að 65% alla vegana Ameríkanar - landsfræðilega sem og

jarðfræðilega, fyrir utan það, að við skyldum halda opinni leið samskipta til alls heimsins

í stað þess að einblína á Brussel / Berlínar öxulinn, í framtíðinni.

Það virðist vera orðið verulega útþynnt; Íslendings blóð margra samtímamanna okkar, þegar

rifjuð er upp fastheldni Einars heitins Þveræings Eyjólfssonar (á 10. og 11. öldunum) þá

hann aftók gjöf Grímsyjar:: Ólafi Haraldssyni þáverandi Noregskonungi, til handa.

Það má ekki verða átakalaust; að reynt verði að troða bláa fánanum Brusselska - með gulu

stjörnunum þegjandi, ofan í kokið á okkur ! ! !

Með; hinum beztu kveðjum, sem endranær /

   

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 25.12.2024 kl. 22:32

6 Smámynd: Grímur Kjartansson

Ég held að það sé í sögu eftir Axel Munthe sem fjallað er um  Leichbegleiter 

sem ferðaðist með líki meints höfðingja frá París til Stokkhólms og passaði upp á að kistan færi í gröfina án þess að athugað væri 

hvort rétt lík væri í kistunni

Ég á frekar von á að ríkisstjórnin jarði þessa svokölluðu ESB umsókn án þess að "kíkja í pakkann" að hætti félaga Össurar

Grímur Kjartansson, 26.12.2024 kl. 00:33

7 Smámynd: Jóhann Elíasson

Blessaður Óskar Helgi og gleðileg jól.  Ég verð að segja eins og er, að Eyjólfur Ármannsson hefur valdið mér alveg gríðarlegum vonbrigðum og þá sérstaklega vegna þess hve einarður hann hefur verið í andstöðu sinni við bókun 35, orkupakkana og fleira sem ESB og fleiri alþjóðasinnar hafa þröngvað upp á okkur, eins og til dæmis útlendingamálin og haft uppi góð rök fyrir afstöðu sinni.  En nú fer allt í einu lítið fyrir andstöðunni og ég velti fyrir mér hver verði "rök" hans sem mæli með þessu.  Fyrir nokkuð mörgum árum var ég að vinna sem fjármálastjóri í Sjómannaskólanum og þar var annar yfirmanna minn faðir hans Guðjón Ármann Eyjólfsson og það var enginn "hringlandaháttur" hjá honum, þegar hann hafði tekið ákvörðun í einhverju máli stóð hann við hana sama á hverju gekk.  Ég er þess ullviss að hann væri ekki par ánægður með drenginn núna. Ef það er svona sem "stjórnmálin" virka þá ber ég nú frekar litla virðingu fyrir þeim eða því fólki sem hefur þau að  atvinnu sinni....

Bestu kveðjur af Suðurnesjunum.

Jóhann Elíasson, 26.12.2024 kl. 10:40

8 Smámynd: Jóhann Elíasson

Já Grímur, ég held að  mörg "líkin" sem INNLIMUNARSINNAR eiga eftir að "draga upp" úr kistunni fyrir okkur til að samþykkja verði mönnum ekki alveg að skapi og sumu verði frekar erfitt að kyngja.  Vonandi er það rétt hjá þér að þetta fari þannig að ESB kjaftæðið verði "jarðsett" endanlega.......

Jóhann Elíasson, 26.12.2024 kl. 10:49

9 Smámynd: Sigurður I B Guðmundsson

Ég vil byrja á ræða um það jákvæða: Að vera laus við VG og Pírata út af Alþingi er eitthvað það besta sem hefur komið fyrir íslenska þjóð og svo í annan stað á Sundabraut að fá algjöran forgang. Þar sem ég er enn í jólaham ætla ég ekki að segja neitt neikvætt. 

Sigurður I B Guðmundsson, 26.12.2024 kl. 11:48

10 Smámynd: Jóhann Elíasson

Þetta var gott innlegg Sigurður og alveg hárrétt, maður verður að vera jákvæður og horfa til þess góða í lífinu.  Ég vil óska þér gleðilegrar hátíðar og vona að þú og frúin eigið góða tíma.....

Jóhann Elíasson, 26.12.2024 kl. 15:24

11 Smámynd: Sigurður I B Guðmundsson

Þakka þér fyrir það Jóhann.

Sigurður I B Guðmundsson, 26.12.2024 kl. 15:50

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband