STÓRA LOFTSLAGSBLEKKINGIN........

Fyrir það fyrsta þá er þetta lið fast í þeim hjólförum að loftslagsbreytingarnar séu af mannavöldum.  Í þeim "drullupolli" eru VG (reyndar eru VG dottnir útaf þingi en því miður getur arfleifð þeirra lifað nokkuð lengi)og krakkaræflar, sem þessir aular eru að verða búnir að hræða líftóruna að mestu leiti úr, með því að telja þeim trú um að heimsendir sé í nánd.  Vísindin á bak við þessa vitleysu eru ekki meiri en það að þetta lið beitir fyrir sig „heilaþvegnum táningsræfli, sem er búin að læra „loftslagsmöntruna“ utanbókar. VITA MENN EKKI AF FÆRSLU SEGULPÓLSINS?  ÞETTA Færsla Segulpólsins frá upphafi til  2024ÞÝÐIR Á MANNAMÁLI AÐ Á ÞESSUM TÍMUM STANDA YFIR "PÓLSKIPTI".  Nú er segulpóllinn staddur í um það bil 150  sjómílur suð-suð-austur af hinum „REIKNAÐA NORÐURPÓLI (hinn reiknaði Norðurpóll er það sem í daglegu tali er nefndur Norðurpóllinn og svo er að sjálfsögðu Suðurpóllinn í 180 gráður í suður frá honum.  Hann var settur þarna niður NORÐURPÓLLINN, sem upphafspunktur staðarútreikninga og útfrá honum komu svo lengdar- og breiddabaugar, þetta var gert fyrir mörg hundruð árum en nú erum við stödd á tölvuöld og mönnum þykir ekki ástæða til að halda í „gamla“ þekkingu).  Vísindamenn NASA telja að hann endi í Indlandshafi.  Vegna þess að segulpóllinn, var áður en "flakkið" byrjaði, staddur norður af Kanada Mynd 1 sýnir færslu nyrðri Segulpólsins frá 1980 - 2024

(um 1980) hefur HLÝNAÐ umtalsvert á norðlægum slóðum, til dæmis bráðnar Grænlandsjökull mjög hratt og hlýindametin í Kanada eru gott vitni um þetta en annars staðar hefur kólnað mjög mikið og sem dæmi má nefna að ísbreiðan á Norðurskautinu hefur stækkað um 26% síðan 2012 samkvæmt frétt sem ég las í Þjóðólfi í fyrradag, þar sem segulpóllinn er staddur þessa stundina. Þegar og ef segulpóllin endar í Indlandshafi, verða ýmis þéttbýl svæði í Asíu óbyggileg og mikill flutningur á fólki verður frá þessum svæðum. Þess má geta að síðustu "pólskipti urðu fyrir um það bil 700.000 árum, það skal áréttað að pólskipti þýða ekki að neinar HAMFARIR eigi sér stað heldur verður tilfærsla á veðurkerfum.  HVERNIG TEKUR HEIMSBYGGÐIN Á ÞEIM MÁLUM?  Nú þegar stjórnmálamenn eru búnir að láta ljúga sig fulla um loftslagsbreytingar af mannavöldum og verða búnir að eyða milljörðum í að MOKA OFAN Í SKURÐI, nú er komið fram að það er margfalt ofmetið hversu mikið áhrifin eru af því að hafa þurrkað upp  mýrarnar hérna á árum áður.  Og svo á, samkvæmt Kötu litlu, að fara að senda tugi milljarða eitthvert út í heim vegna loftslagsbreytinga og svo ætlar stjórnmálaelítan að ráðast að 6% útblæstri okkar Íslendinga og BANNA innflutning á bílum, sem ganga fyrir JARÐEFNAELDSNEYTI.  Hvernig ætli ástandið hefði orðið á norðurlandi í óveðrinu í desember árið 2020 ef stór hluti íbúanna hefði verið búinn að skipta yfir í rafmagnsbíla?   Þessar breytingar og öfgar í veðurfarinu má rekja beint til þessara breytinga á segulpólnum. "LOFTSLAGSBREYTINGAR AF MANNAVÖLDUM" ERU EKKERT ANNAÐ EN "BIG BUSINESS".  En auðvitað afneita þessir aðilar að hlýnun loftslags eigi sér aðrar skýringar en að vera af mannavöldum, svo fastir eru þeir í þessum "loftslagstrúarbrögðum" sínum.  Það er kominn tími til að þetta lið fari að taka hausinn úr ra........ á sér og fara aðeins að sjá hlutina frá öðru sjónarhorni en tommu rörsýninni, sem hefur háð því fram til þessa.  Fyrir það fyrsta þá er þetta lið fast í þeim hjólförum að loftslagsbreytingarnar séu af mannavöldum.  Í þeim "drullupolli" eru VG og krakkaræflar, sem þessir aular eru að verða búnir að hræða líftóruna að mestu leiti úr, með því að telja þeim trú um að heimsendir sé í nánd.   Vísindin á bak við þessa vitleysu eru ekki meiri en það að þetta lið beitir fyrir sig „heilaþvegnum táningsræfli, sem er búin að læra „loftslagsmöntruna“ utanbókar. VITA MENN EKKI AF FÆRSLU SEGULPÓLSINS?  ÞETTA ÞÝÐIR Á MANNAMÁLI AÐ Á ÞESSUM TÍMUM STANDA YFIR "PÓLSKIPTI".  Nú er segulpóllinn staddur um það bil 150 sjómílur suð - suðaustur  af hinum REIKNAÐA NORÐURPÓL og vísindamenn NASA telja að hann endi í Indlandshafi.  Segulsvið jarðar 2024Vegna þess að segulpóllinn, var áður en "flakkið" byrjaði, staddur norður af Kanada hefur HLÝNAÐ umtalsvert á norðurslóðum, til dæmis bráðnar Grænlandsjökull mjög hratt og hlýindametin í Kanada eru gott vitni um þetta en annars staðar hefur kólnað mjög mikið og sem dæmi má nefna að íshellan á hinum REIKNAÐA NORÐURPÓL hefur stækkað um 26% síðan 2012 ( Sjá thjodolfur.is), þar sem segulpóllinn er staddur þessa stundina. Þegar og ef segulpóllin endar í Indlandshafi, verða ýmis þéttbýl svæði í Asíu óbyggileg og mikill flutningur á fólki verður frá þessum svæðum.  HVERNIG TEKUR HEIMSBYGGÐIN Á ÞEIM MÁLUM?  Nú þegar stjórnmálamenn eru búnir að láta ljúga sig fulla um loftslagsbreytingar af mannavöldum

Mynd 2 sýnir segulsvið jarðar eins og sést er segulsviðið sterkast um miðbik jarðar en veikast við "pólana".

og verða búnir að eyða milljörðum í að MOKA OFAN Í SKURÐI, nú er komið fram að það er margfalt ofmetið hversu mikið áhrifin eru af því að hafa þurrkað upp  mýrarnar hérna á árum áður.  Og svo á, að fara að senda tugi milljarða eitthvert út í heim vegna loftslagsbreytinga og svo ætlar stjórnmálaelítan að ráðast að 6% útblæstri okkar Íslendinga og BANNA innflutning á bílum, sem ganga fyrir JARÐEFNAELDSNEYTI.  Hvernig ætli ástandið hefði orðið á norðurlandi í óveðrinu í desember árið 2020 ef stór hluti íbúanna hefði verið búinn að skipta yfir í rafmagnsbíla?   Þessar breytingar og öfgar í veðurfarinu má rekja beint til þessara breytinga á segulpólnum. "LOFTSLAGSBREYTINGAR AF MANNVÖLDUM" ERU EKKERT ANNAÐ EN "BIG BUSINESS".  En auðvitað afneita þessir aðilar að hlýnun loftslags eigi sér aðrar skýringar en að vera af mannavöldum, svo fastir eru þeir í þessum "loftslagstrúarbrögðum" sínum.  Það er kominn tími til að þetta lið fari að taka hausinn úr ra........ á sér og fara aðeins að sjá hlutina frá öðru sjónarhorni en tommu rörsýninni, sem hefur háð því fram til þessa.  Nýjasta dæmið um þessa blekkingu um „loftslagshlýnun af mannavöldum“  eru „gróðureldarnir“ í Los Angeles en þar eru það nokkrir samverkandi þættir sem eiga hlut að máli.  Fyrir það fyrsta þá eru þessir miklu vindar,  sem geysa í Kaliforníu árvisst fyrirbæri  (þeir kallast Santa Ana vindarnir) og ættu ekki að koma neinum  á óvart aftur á móti kemur það  mjög mikið á óvart að aðgangur að vatni skyldi vera alveg í klessu og allt í sambandi við slökkvistörfin tómt „KLÚÐUR“.  Fyrir nokkrum árum tók slökkviliðið í Kaliforniu sig til og kveikti í dauðum og mjög þurrum gróðri í hlíðunum fyrir ofan Los Angeles en vegna aðgerða frá umhverfisverndarsinnum var þessu hætt og þar með safnaðist upp alveg gríðarlegur eldsmatur síðustu  ár (en það eru nokkur ár síðan slökkviliðið hætti að kveikja í dauðum, þurrum og hættulegum gróðri).  En brunavarnir hafa ekki verið mjög ofarlega á verkefnalista fylkisstjórnarinnar eldur hefur það  verið ofar á verkefnalistanum að fjölga konum í slökkviliðinu, lögreglunni og fleira þessháttar en það  á víst að fara fram rannsókn á þess máli og þá eiga máli væntanlega eftir að skýrast.........


mbl.is Búa sig undir veðurofsa í LA
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jónatan Karlsson

Sæll Jóhann.

Þarna hittir þú sannarlega nagla-skrattan kyrfilega þráðbeint á hausinn - ef svo mætti að orði komast. Auðvitað er allt þetta kjaftæði um loftslgsbreytingar af mannavöldum bara rugl og bull.

Auðvitað er plast mengun, kóralabrot og eiturefna notkun dæmi um hrikalega skaðvalda, en öðru máli gegnir um þessar stóru breytingar á jafnvel milljóna ára fresti sem þú fjallar hér um í þinni þörfu grein meðal stóru áhrifavldana á allt líf og loftslag hér á jörðu.

Jafnvel mestu hamfara hlýnunar gúrúar vinstra wók liðsins (sem af óskiljanlegum ástæðum virðast öll vera í sömu körfunni) hljóta mörg að kannast við frásagnir af stærri ísaöldum hér á nokkur þúsund ára millibili og svo öllum þeim minni, sem sveiflast á jafnvel tuga eða hundraða ára fresti, en nóg um það og vonandi lafir þetta bara einhvern veginn meðan við tveir lifum.

Jónatan Karlsson, 14.1.2025 kl. 05:40

2 Smámynd: Magnús Sigurðsson

Þetta er athygliverður pistill Jóhann, -og flestir sem fylgjast með segulpólunum ættu að átta sig á því að ekki er allt sem sýnist varðandi loftslagsblekkinguna.

Magnús Sigurðsson, 14.1.2025 kl. 06:07

3 Smámynd: Jóhann Elíasson

Sæll Jónatan og þakka þér fyrir innlitið og öflugar athugasemdir.  Eins og þú segir réttilega þá er umgengni okkar um jörðina alls ekki til fyrirmyndar en þessi umgengni hefur EKKERT með loftslagsbreytingar að gera og alveg furðulegt hvað þessu woke-liði hefur tekist að "draga" fólk á "asaeyrunum"....

Jóhann Elíasson, 14.1.2025 kl. 08:49

4 Smámynd: Jóhann Elíasson

Komdu sæll Magnús og bestu þakkir fyrir innlitið.  Það var ekki erfitt að nálgast heimildir um þetta efni, það var ekki annað en að "gúgla" The Magnetic Pole Movement", þá kom upp alveg ótrúlegt magn upplýsinga.....

Jóhann Elíasson, 14.1.2025 kl. 08:57

5 Smámynd: Sigurður I B Guðmundsson

Magnaður pistill Jóhann. Vonandi sendir þú þetta blogg á alla Alþingismenn og forseta vorn. 

Sigurður I B Guðmundsson, 14.1.2025 kl. 11:18

6 Smámynd: Jóhann Elíasson

Þakka þér fyrir Sigurður.  Nei Alþingismenn og forsetinn geta bara lesið þetta á blogginu ef þeir hafa einhvern áhuga ´því,  þetta fólk fær ENGA sérmeðferð hjá mér og það hefur heldur ekki unnið fyrir því....

Jóhann Elíasson, 14.1.2025 kl. 12:01

7 identicon

Sæll jóhann , Þarna hefur þú rétt að mæla , ég hef sjálfur séð þetta með eigin augum ef svo má segja. Ég starfaði sem skipstjóri um árabil í millilandasiglingum . Einnig hef ég fengist við það af og til að leiðrétta segulkompása um borð í skipum . Mér er því vel kunnugt um það hve vitneskjan um staðsetningu segulskautsins er áríðandi til þess að vita hver misvísunin er,en hún er gefin upp í sjókortum og minnkar um 6'á ári þannig að í eðlilegu ferli tekur 10 ár að minnka um 1*gráðu . Upp úr aldamótunum tók ég eftir því , og hafði þá ekki fengist við leiðréttingar nokkurn tíma,að mikil breyting hafði átt sér stað ekkert gekk upp miðað við þær stærðir sem ég hafði ég fór þá að leita mér upplýsinga hjá Raunvísindadeild Háskólans sem hefur átt að fylgjast með þessu og er með athugunarstöð uppi í Kollafirði,með fjöllin allt í kring og því ekki heppilegur staður til segulsviðsmælinga að mínu áliti.Þar var mér tjáð að ekki hefðu orðið óeðlilegar breytingar. Ég fór því á netið sem þá var að byggjast upp og inn hjá NASA og þar birtist myndin sem þú Jóhannes birtir hér að ofan . Þetta er því löngu vitað en einhverra hluta vegna ekki gert opinbert sem er satt að segja furðulegt . Það hefur því alltaf síðan verið mín staðfasta skoðun að EF loftslagsbreytingar eiga sér stað um þessar mundir þá sé þetta ástæðan þarna er hægt að benda á svo ekki verður um villst. 

Gunnar V Guðnason (IP-tala skráð) 14.1.2025 kl. 17:24

8 Smámynd: Jóhann Elíasson

Þakka þér Gunnar fyrir alveg hreint stórkostlega góða athugsemd þína og það er mér mikils virði að reynslubolti í faginu skuli staðfesta það sem ég ef nokkuð oft nefnt hérna á blogginu en fremur fáir hafa kið undir þar til núna.  En eitt hefur "truflað" mig nokkuð mikið hin síðari ár.  Þegar ég var í Stýrimannaskólanum um 1980, það var lögð á það mikil áhersla að kenna okkur að bregðast við ef TÆKNIN um borð klikkaði og fór nokkuð mikill tími í þessa kennslu og voru meira að segja teknar verklegar æfinga í þessu.  Svo kom ég aftur í Stýrimannaskólann í Reykjavík og þá sem Fjármálastjóri og einnig tók ég að mér kennslu.  En þegar þarna var komið var SENNILEGA EKKI GERT RÁÐ FYRIR ÞVÍ AÐ TÆKIN EÐA TÖLVUBÚNAÐUR GÆTU BILAÐ.  Það var ENGIN kennsla í viðbrögðum við því að nokkurt gæti farið úrskeiðis, inngöngukröfur í námið voru bókstaflega engar.  Svo er eitt nokkuð skondið; ÞEGAR MAÐUR KEMUR UPP Í BRÚ Á NÝJU SKIPI ÞÁ ER ÞAR EKKERT HANDSTÝRI AÐ SJÁ....

Jóhann Elíasson, 14.1.2025 kl. 20:34

9 identicon

Sæll aftur Jóhann , Já það eru margir hlutir og siðir varðandi menntun og þjálfun skipstjórnarmanna aflagðir í dag . Ég var svo heppinn að kynnast og læra af mönnum sem voru færir í sínu fagi og kunnu að nýta sér bókstaflega allt sem hægt var að ná í , sól stjörnur (HO 249 og Brownsamanak), miðunarstöð , consol . Allt var  þetta svo borið saman og fenginn ótrúlega nákvæm líklegust staðarákvörðun þar til annað kæmi í ljós , dýptarmæli og radar þegar nær dró landi. Ég er ekki að segja að ekki skuli nota allt það nýjasta sem er í boði í dag sérstaklega vil ég þar nefna veðurspákortin sem hægt er að nálgast og fá margra daga spá fram í tímann.Það er nefnilega ekki endilega best að sigla alltaf á sama sjó . Ég veit ekki til annars en að enn sé skylda að setja viðurkennda segulkompása um borð í ný skip og má þá ekki skeika gráðu að þeir skuli vera nákvæmlega í langskipslínunni þegar þeir eru settir niður . Ég sá stundum í nýjum fiskibátum að búið var að setja kúlukompás á eitthvert skáborð sem blasti við þeim sem sat í stólnum stb. megin , þá var bara fýla yfir því að þurfa að færa kompásinn og sagt að þetta væri aldrei notað . Ég veit ekki til þess að nokkur sé að annast þetta leiréttingastarf með gráðustiku og tilheyrandi í dag , einhverjir eru að gefa sig út fyrir að gera þetta með kompás-appi í GSM síma 

Gunnar V Guðnason (IP-tala skráð) 15.1.2025 kl. 13:51

10 Smámynd: Jóhann Elíasson

Þakka þér fyrir Gunnar, það var alls ekki ætlun mín að tala niður ný tæki heldur gagnrýni ég það að væntanlegum skipstjórnarmönnum skuli ekki lengur vera kennt að bjarga sér ef þessarar nýju tækni nýtur ekki við af einhverjum ófyrirséðum ástæðum.  Já Gunnar ég hef líka heyrt að margir hafi áhyggjur af því hversu mikið er verið að láta undanvarðandi öryggiskröfur í fiskiskipum og til að mynda hef ég heyrt að ekki séu til nein prentuð sjókort um borð í sumum fiskiskipum, þau eru geymd í tölvu.  GETUR VERIÐ AÐ ÞETTA SÉ RÉTT?????

Jóhann Elíasson, 15.1.2025 kl. 22:45

11 identicon

Sæll Jóhann ! Já ég held að leyfilegt sé að sigla án sjókorta en þá skulu vera 2 kortatölvur og önnur þeirra hafa straum frá rafgeymum 

Gunnar V Guðnason (IP-tala skráð) 16.1.2025 kl. 11:47

12 Smámynd: Jóhann Elíasson

Jú það er alveg leyfilegt að notast ekki við prentuð sjókort en ég er bar að tala um ÖRYGGIÐ að ekki sé hægt að grípa til prentaðra korta ef allt anað bregst.  En á ÖRYGGISATRIÐIÐ var lögð mikil áhersla þegar ég var í Stýrimannaskólanum í Reykjavík...

Jóhann Elíasson, 16.1.2025 kl. 15:24

13 identicon

Held að Freeman Dyson hafi þetta á hreinu.

Hvaða tækni var notuð við Kailasa hōllina?

Borgum skatta til sð kæla jōrðina eða hægja á hlýnun jarðar.

Að einhver sé svo klikkaður að hann haldi að mannskepnan geti haft áhrif á veðurfar eða veðrabreytingar með skattlagningu.

Hér áður fyrr keyrði kaupskipa flotinn á hálfum hraða á dísel, nú keyrir hann á fullum hraða á svart olíu.

Bilun.

L (IP-tala skráð) 17.1.2025 kl. 00:22

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband