"TRAUSTUR VINUR GETUR GERT KRAFTAVERK"..........

Þessi lína úr lagi Hauks Ingibergssonar "TRAUSTUR VINUR", flugu í gegnum hugann við lestur viðtengdrar fréttar.  VIRÐING ALÞINGIS EYKST ÖRUGGLEGA TIL MUNA VIÐ ÞAÐ AÐ ÞESSI MAÐUR TAKI ÞAR SÆTI.......


mbl.is Fær þingsætið þrátt fyrir skilorðsbundinn dóm
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ingólfur Sigurðsson

Ég er sammála innihaldi færslunnar Jóhann, en það var nú reyndar nafni þinn sem samdi þetta lag, snillingurinn Jóhann G. Jóhannsson úr Óðmönnum og fleiri hljómsveitum, sem samdi önnur fræg lög eins og "Hvers vegna varstu ekki kyrr?" og mörg fleiri.

En ég held að Haukur Ingibergsson hafi samið einhver lög, "Hæ hó jibbí jei, 17. júní" var eftir þá í hljómsveitinni Dumbó og Steinum, sem hann samdi allavega fyrir.

En gúgglaðu þetta bara, þetta er rétt hjá mér, ég tékkaði.

Beztu kveðjur.

Ingólfur Sigurðsson, 6.2.2025 kl. 21:49

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

Þakka þér fyrir Ingólfur ég efast ekki um að þetta sé rétt hjá þér.  Ég man bara eftir að þeir sem fluttu þetta lag hvort þeir kölluðu sig Upplyftingu meðal annars var í þessari hljómsveit Magnús Stefánsson núverandi bæjarstjóri í Suðurnesjabæ (Sameinað sveitarfélag Garðs og Sandgerðis).  Þegar þetta lag varð vinsælt, þá höfðu þeir veturinn áður verið skólahljómsveit á Bifröst, þar sem Haukur Ingibergsson var skólastjóri þá og hann var eitthvað í kringum þessa stráka og lét þá hafa einhver lög.....

Jóhann Elíasson, 6.2.2025 kl. 23:02

3 Smámynd: Sigurður I B Guðmundsson

Það er ekki sama hvort það er séra Jón eða Jón Gnarr!!!

Sigurður I B Guðmundsson, 7.2.2025 kl. 11:13

4 Smámynd: Jóhann Elíasson

Rétt Sigurður.  Ég hef aldrei getað skilið þetta dálæti sem fólk hefur á þessum manni.....

Jóhann Elíasson, 7.2.2025 kl. 12:04

5 Smámynd: Ingólfur Sigurðsson

Jón Gnarr er lýðskrumari eins og Bubbi Morthens, ég tek undir þetta, er sammála.

Hvað myndu þessir sem styðja Jón Gnarr segja ef hann væri hægrimaður? Donald Trump fær ömurlega útreið hjá þeim, en þegar þeirra maður gerir þetta, Jón Gnarr, þá er allt í lagi. Ekki í fyrsta sinn tvískinnungur hjá þessu liði.

Ég er einmitt mjög ánægður með það Jóhann að þú ert sammála mér að Bubbi er ofmetinn, og það er Jón Gnarr líka. Hann er ekki eins fyndinn og margir halda.

Ingólfur Sigurðsson, 7.2.2025 kl. 13:10

6 Smámynd: Jóhann Elíasson

Þetta var rosalega flott athugasemd hjá þér Ingólfur og að mínu mati eins sönn og hægt er.  Mér hefur ALDREI þótt Jón Gnarr FYNDINN en oftar finnst mér hann HLÆGILEGUR.......

Jóhann Elíasson, 7.2.2025 kl. 13:32

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband