HVAÐA STOFNUN ÆTLI SÉ "USAID" Á ÍSLANDI???????

Nú hefur "netið" logað stafnanna á milli vegna uppljóstrana Donald Trump og Elon Musk á á spillingunni og óráðsíunni innan USAID (Þróunarstofnunar Bandaríkjanna), en einhverra hluta vegna þá fjallar RÚV og aðrir "meginstraumsfjölmiðlar" EKKERT um þetta mál.  En við getum ekki leyft okkur að halda að það sé ENGIN spilling á Íslandi, það hafa komið upp einhver Íslensk nöfn upp úr þessu "drullupolli" sem er verið að fiska í innan USAID, en aðeins er um sögusagnir að ræða ennþá og það er eftir að  sanna þessar upplýsingar.  En við megum ekki vera svo "bláeyg" að halda að ekkert sé neitt svipað í gangi hér á landi og hægt er að ganga út frá því vísu að eitthvað svipað sé í gangi  hér á landi og hafi verið undanfarin ár og áratugi.  EÐA EINS OG JÓHANNES BJÖRN LÚÐVÍKSSON SEGIR Í BÓK SINNI "FALIÐ VALD" HJÁLPARSTARF OG MANNÚÐARSAMTÖK ERU BARA "BIG BUSINESS"..................


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Grímur Kjartansson

Árið 2022 námu framlög Íslands til alþjóðlegrar þróunarsamvinnu 12,7 milljörðum kr.

En þessi mannúðar verkefni má aldrei gagnrýna sem sást nú best þegar sannað var að framlög til UNRWA fóru að mestu til Hamas en áfram varð Ísland að borga. Við skulum hedur ekki gleyma öllum þeim fjölmörgu hjálparsamtökum sem alltaf eru að safna pening í göfug málefni síðast þegar ég gáði (Skattablað Frjáls Verslun) þá voru forstöðumenn þeirra samtaka á mjög góðum launum

Grímur Kjartansson, 25.2.2025 kl. 14:58

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

Það er nefnilega heila málið að margir telja að aðeins LÍTILL HLUTI alls þess fjármagns sem á víst að fara til mannúðarmála, fari í rauninni til þeirra en það er ekki alveg á hreinu hvað verður um STÓRA HLUTANN?????????

Jóhann Elíasson, 25.2.2025 kl. 15:11

3 Smámynd: Tómas Ibsen Halldórsson

Spillingin hér á landi er ekkert til að hrópa húrra fyrir. Við erum með gerspillta menn og konur í embættum og fyrirtækjum sem moka fé í til að hygla þeim. Spillingin er ljótur siður sem ætti að uppræta með öllu. Með spillingunni fara menn á mis við það sem er satt og rétt og úr því versnar siðferði það sem við höfum verið stolt af, hingað til.

Tómas Ibsen Halldórsson, 25.2.2025 kl. 17:27

4 Smámynd: Jóhann Elíasson

Ég held að það sé full ástæða til að RANNSÓKN fari fram á þessu Tómas og það almennileg, ekki einhver "kattarþvottur" sem ekkert er nema yfirklór......

Jóhann Elíasson, 25.2.2025 kl. 17:46

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband