ÓTRÚLEGT AFREK- HVERS VEGNA HAFA ENGIR GEFIÐ ÞVÍ GAUM?????

Það er náttúrulega alveg með ólíkindum að SVONA STÓRFRÉTT SKULI VERA AFGREIDD SEM EINHVER SMÁFRÉTT Á mbl.is.  Þarna er um að ræða smáþjóð sem er um það bil átta sinnum minni en Ísland, sem kemst inn á HEIMSMEISTARAMÓT KVENNA Í HANDBOLTA okkur þótti það nokkuð mikið mál þegar "stelpurnar okkar" komust inn en svo er bara minnst á þetta svona í framhjáhlaupi.  Ég hvet íþróttafréttamenn Morgunblaðsins til að fjalla almennilega um þennan atburð og sýna Færeyingum þá virðingu sem þeir eiga skilda.  Og svona í framhjáhlaupi má geta þess að miðað við hversu stutt er á milli Íslands og Færeyja ÞÁ ER ALVEG ÓTRÚLEGA LÍTIÐ UM FRÉTTIR FRÁ FÆREYJUM OG ENN MINNA FRÁ GRÆNLANDI.........


mbl.is Færeyjar á HM í fyrsta skipti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla

Athugasemdir

1 Smámynd: Jónatan Karlsson

Þetta er alveg rétt og sýnir bara að íþrótta fréttamennskan er jafn ónýt og allar aðrar frétts skýringar hér á hælinu.

Jónatan Karlsson, 15.4.2025 kl. 09:32

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

Já Jónatan, það virðist allt vera á sömu bókina lært............

Jóhann Elíasson, 15.4.2025 kl. 11:01

Bæta við athugasemd

Hver er summan af einum og átta?
Nota HTML-ham

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband