8.5.2025 | 04:07
STYÐJUM SJÁLFSTÆÐISBARÁTTU GRÆNLENDINGA.....
Ég hef lengi verið með þessa gein í vinnslu og loksins er ég orðinn þokkalega ánægður með hana og er tilbúinn að senda hana frá mér.
Þau komu alveg sérstaklega illa í mig þau orð Utanríkisráðherra: VIÐ STÖNDUM MEÐ DÖNUM. VAR HÚN MEÐ UMBOÐ ÞJÓÐARINNAR TIL AÐ LÁTA ÞETTA ÚT ÚR SÉR? Hvað kemur eiginlega til að hún sá einhverja þörf hjá sér að styðja við bakið á Mettu minnkarana? Þá skulum við fara aðeins yfir það hvers vegna við Íslendingar eigum að styðja Grænlendinga í sjálfstæðisbaráttu þeirra. Við byrjuðum á því að missa sjálfstæði okkar til Noregs og vorum undir stjórn þeirra í einhverjar aldir en síðan töpuðu Norðmenn stríði við Danmörku og þá sömdu Norðmenn við Dani um að Ísland yrði stríðsskaðabætur til Dana og þar með hófst ógæfa landsins Og alltaf hertu Danir tökin og eymdin og fátæktin jukust alltaf til dæmis voru HANDRITIN flutt til Danmerkur að hluta til vegna þess að Íslendingar höfðu hvorki getu né kunnáttu til að geyma þau eða varðveita. Eftir að Jón Arason, síðasti kaþólski biskupinn á Íslandi, var hálshöggvinn ásamt tveimur sonum sínum í Skálholti árið 1550 þá rændu Danir ÖLLUM dýrgripum úr KAÞÓLSKUM KIRKJUM á Íslandi og fluttu GÓSSIÐ til Danmerkur og ég veit ekki til að það hafi komið til tals að þessum DÝRGRIPUM verði skilað. Það er engu logið með það að Danir komu ENGU BETUR fram við Íslendinga heldur en þeir gera við Grænlendinga. Það má segja að Grænlendingar séu á svipuðum slóðum í sjálfstæðisbaráttu sinni og Íslendingar voru fyrir árið 1904, þegar Ísland fékk HEIMASTJÓRNINA.
Þá er komið að því að Utanríkisráðherra fái smá fræðslu um hvernig NORÐURLANDASAMVINNA ER Í RAUNINNI. Við skulum bara horfast í augu við það að "NORÐURLANDAFJÖLSKYLDAN", sem Utanríkisráðherra talar svo fjálglega um, er í rauninni tvískipt, annars vegar eru; Noregur, Danmörk, Svíþjóð, Álandseyjar og Finnland og hins vegar eru Ísland og Færeyjar og nú nýlega er Grænland víst komið inn í seinni hópnum, sem eru óhreinu börnin hennar Evu, sem A deild NORÐURLANDANNA vill ekkert vita af nema á tyllidögum. Og nú hefur C- deildin bæst við sem, eru Eystrasaltslöndin bæst við (Eistland, Lettland og Litháen). Sem dæmi má nefna að ég bjó í Noregi í vel á þriðja ár og þau ár vor vikulegir þætti í Norska sjónvarpinu sem hétu "NORDEN RUNDT" (ferðalag um Norðurlöndin, lausleg þýðing) þar sem komu stutt innskot frá "ÖLLUM" Norðurlöndunum. Allan þann tíma sem ég bjó í Noregi kom ekki einn einasti þáttur frá Íslandi eða Færeyjum. Ætli þetta sé eitthvað sem Utanríkisráðherra kallar "eðlileg" fjölskyldutengsl????? Mér skilst að það hafi gengið eitthvað treglega að Grænland hafi fengið formlega aðild að NORÐURLANDARÁÐI, en getur verið að nýjustu vendingar í málefnum GRÆNLANDS hafi haft einhver áhrif þar á, því að Danmörk hefur fyrst núna ljáð því máls að Grænland yrði tekið inn sem formlegur aðili. Danir hafa ALLTAF litið á Ísland, sem nýlendu sína þó svo að Ísland hafi fengið sjálfstæði frá þeim árið 1944 og í þeirra augum erum við bara enn þrælar í þeirra augum. Og ég er þess fullviss að það verði ekki langt í að Færeyjar verði fullvalda líka, ekki bara Grænland. ÆTLUM VIÐ AÐ GLEYMA FORTÍÐINNI??????
Athugasemdir
Vér mótmælum "enginn" þessari greiningu þinni!
Sigurður I B Guðmundsson, 8.5.2025 kl. 10:11
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Þú ert innskráð(ur) sem .
Innskráning