ER EKKI KOMIÐ NÓG????

Ísland hefur verið í þessu bulli síðan 1986, þegar ALLIR voru klárir á því að "Gleðibankinn" myndi taka þetta og þar með myndu Íslendingar fara að kenna Evrópubúum hvernig ætti að semja og flytja "almennileg lög".  Og á hverju ári hafa Íslendingar verið sannfærðir um að við væru að fara að "taka þetta".  En hingað til hefur árangurinn ekkert verið til að hrópa húrra yfir landið hefur tvisvar sinnum verið í öðru sæti og oftar en ekki setið eftir í riðlakeppninni.  Svo er víst ekkert gefið að taka þátt í þessu með undankeppni og öllu umstangi sem þessu fylgir og mér skilst nú að RÚV sé ekkert of vel statt (eins og dagskráin ber glöggt merki).  Ég GET EKKI SÉÐ AÐ NEITT RÉTTLÆTI FJÁRAUSTURINN Í ÞETTA??????? 


mbl.is Ísland fékk 33 stig
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður I B Guðmundsson

Þurfti allan þennan fjölda til að fara með VÆP strákunum. Talandi um fjölda, hvað fóru margir út með þeim og er "tékkhefti" Rúv alltaf opið? Ætli Rúv gefi upp allan kosnað við þessa keppni? 

Sigurður I B Guðmundsson, 18.5.2025 kl. 10:02

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

Miðað við "allt", þá get ég ekki með nokkru móti séð að RÚV hafi nokkur efni á þessu bruðli og að þetta sé alls ekki gert í þágu "ALLRA" landsmanna.OG EINS OG ÞÚ SEGIR SIGURÐUR ÞÁ ER ÉG ALLS EKKI VISS UM AÐ RÚV GEFI UPP "ALLAN" KOSTNAÐINN VIÐ KOSTNAÐINN Í SAMBANDI VIÐ ÞENNAN "SIRKUS" SEM ÞESSI ATBURÐUR ER ORÐINN AÐ....

Jóhann Elíasson, 18.5.2025 kl. 10:11

3 Smámynd: Grímur Kjartansson

Þegar við íslendingar vinnum  þá mun það kosta okkur drjúgan skilding að halda keppnina

Annars var ég með RUV fréttir í gangi í bílnum á leiðinni heim áðan. RUV fann álitsgjafa sem er sannfærður um að Ísrael stjórni þessari keppni frá a til ö. Við þurfum bara að komast að því hvernig maður neyðir almenning til að velja ákveðið lag og þá vinnum við

Grímur Kjartansson, 18.5.2025 kl. 18:25

4 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Sæll Jóhann,eða þá skattborgarinn að reka ríkisútvarp,? Álitsgjafar eins og Grímur hlustaði á Rúv ná þeir úti hvar sem er ef sleppa hinum. Ég sakna Jóns Múla sem var alltaf trúr. Hann var líka svakalegur með djassþættina: þar sem við erum farin að stíga fyrsta skrefið til almennilegs sjálfsstæðis og það er alþjóðlegt væri ég til búin að hlusta á John Coltrain þenja þrumuræðu á saxann Giant step.!!

Helga Kristjánsdóttir, 18.5.2025 kl. 21:53

5 Smámynd: Jóhann Elíasson

Já Grímur, þeir eru harðir í "samsæriskenningunum" þarna á RÚV og þar gefa þeir Axel Pétri Axelssyni ekkert eftir og þó tala þeir manna mest um "samsæriskenningar" og það niðrandi........

Jóhann Elíasson, 19.5.2025 kl. 04:23

6 Smámynd: Jóhann Elíasson

Helga ég tel að það eigi að leggja RÚV niður en því miður tel ég að um óskhyggju sé að ræða en miðað við að við þurfum að sitja uppi með RÚV þá er ég nokkuð hrifinn af uppástungu Ómars Gíslasonar vinar mín, en hann vill að RÚV hætti þessu Eurovision kjaftæði sitt og verði þess í stað tvær eða fleiri dægurlagakeppnir á hverju ári og verði gert skylt að sjónvarpa þeim, þannig myndi stofnunin þjóna hagsmunum Íslenskrar tónlistar mun betur en gert er i dag og með mun minni fjárútlátum.  En vissir þú það Helga að á næsta ári eru 40 ár frá því að Ísland tók fyrst þátt í þessari keppni og hver hefur árangurinn verið og væri ekki tilvalið að hætta þá?????

Jóhann Elíasson, 19.5.2025 kl. 04:37

7 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Já sæll! Vinur þinn er með góða uppástungu,ég man eftir dægurlagakeppni sem mig minnir að haldin væri í Góðtemplarahúsinu.  pabbi vinkonu minnar Oliver samdi eitt sigurlaganna; "hvar ertu vina sem varst mér svo kær"það er þá eldra en 40 ára en bregður fyrir spilun ennþá. En strákarnir sem kepptu núna fóru vel með þetta.

Helga Kristjánsdóttir, 20.5.2025 kl. 14:23

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband