ÞAÐ ER NEFNILEGA NOKKUÐ MARGT Í EFNAHAG LANDSINS SEM HEFUR ÁHRIF Á GENGI BANKANNA Á NÆSTUNNI.......

Aðalmálið er hvort lítil og meðalstór fyrirtæki svo ekki sé talað um almenning í landinu ÞOLI þetta VAXTASTIG, sem er í landinu og þessar gríðarlegu verðhækkanir sem eru í hverjum mánuði?  Það þarf nú ekki að hafa miklar áhyggjur af "stóru" fyrirtækjunum, því þau fjármagna sig erlendis og njóta allt annarra lánskjara og þurfa þar af leiðandi ekki að hafa svo miklar áhyggjur af fjármögnunarkostnaðinum en aftur á móti þurfa þau að taka tillit til minnkandi kaupgetu almennings og versnandi efnahagsástands í heiminum.  En það hlýtur að valda stjórnendum bankanna miklum áhyggjum VERSNANDI greiðslugeta heimilanna því alltaf aukast vandræði fólks og eftir því sem "ENDURFJÁRMÖGNUNUM" fjölgar þá minnkar "VEÐHÆFI" viðkomandi eignar og "hengingaról" viðkomandi lántaka styttist.  En þetta verklag gengur ekki til lengdar og vandinn vex bara og versnar og endar bara með ósköpum, fyrir alla og þó kemur ann verst  við þá sem skulda bankanum, en að lokum verða þeir að "fórnarlömbum" líka.  Flest bendir til þess að efnahagshrun sé á leiðinni (minnkandi hagvöxtur um allan heim og jafnvel neikvæður, aukin verðbólga jafnvel er að mælast verðbólga án þess að ástæða fyrir henni finnist, stundum er talað um "huglæga verðbólgu" sem er oftast undanfari ALVARLEGRAR KREPPU).  Alveg fram á síðustu daga í síðustu  efnagaskreppu (HRUNINU) datt nú frekar fáum í hug að bankarnir myndu falla en þeir gerðu  það  nú samt.  Margir hafa bent á það að  staða bankanna nú sé allt önnur en þá, eiginfjárkröfur og fleira, séu miklu meiri og þeir standa bara miklu betur núna.  Jú það er alveg rétt, en bankarnir (eins og önnur fyrirtæki þurfa VIÐSKIPTAVINI til að hægt sé að  reka þá), því held  ég að bankarnir verði líka "fórnarlömb" komandi EFNAHAGSKREPPU.  AÐ SJÁLFSÖGÐU VERÐA ÞEIR FYRIR MINNSTUM ÁHRIFUM AF KREPPUNNI SEM SKULDA LÍTIÐ OG HELST EKKI NEITT........


mbl.is Ágætar horfur hjá bönkunum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla

Athugasemdir

1 Smámynd: Grímur Kjartansson

Mótmæli vörubílstjóra voru að ég held fyrstu merki um að hrun væri framundan

Hugsanlega verða mótmæli í Svíþjóð 1 jan 2027 en þá hækkar olía og bensín vegna kolefnisskatts sem ESB leggur á svokallaður ETS 2 skattur

Opinberar álögur í Svíþjóð á bensín eru litlar og því verður ekki hægt að draga úr þeim til að jafan út hækkunina

ESB mun senda hluta af þessum skatti aftur heim í hérað eftir viðkomu í Brussel  - Hljómar kunnuglega

https://www.svt.se/nyheter/inrikes/dyrare-bensin-och-diesel-att-vanta-oavsett-regering

Grímur Kjartansson, 19.5.2025 kl. 06:20

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

Ég held að það sé nokkuð óumdeilt að það sé EFNAHAGSHRUN framundan,  spurningin er eingöngu; "HVERNIG TEKST OKKUR AÐ VINNA ÚR ÞVÍ"?????

Jóhann Elíasson, 19.5.2025 kl. 06:49

Bæta við athugasemd

Hver er summan af þremur og sextán?
Nota HTML-ham

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband