"ÍSLAND ÚR NATO"..........

VIÐ ÍSLENDINGAR ERUM MEÐ VARNARSAMNINGINN VIÐ BANDARÍKIN OG EIGUM AÐ HLÚA AÐ HONUM.  Það hefur komið í ljós og ætti að vera ÖLLUM ljóst (nema kannski "SKESSUNUM" í ríkisstjórn Íslands, sem virðast vera óvenjulega "tregar") að NATO og Evrópa eru  sífellt að nálgast hvort annað og mér segir svo hugur að Bandaríkin íhugi það æ meir að yfirgefa NATO og þá kemur til þess að við Íslendingar verðum að ákveða hvort við ætlum að fylgja Bandaríkjunum eða vera "VIÐHENGI" Evrópu, þar sem málefni Íslands skipta engu máli og hafa aldrei gert.  Í mínum huga er ekki nokkur spurning hvað ætti að gera (en því miður hef ég ekkert um þessi mál að segja), ÉG MYNDI VELJA SAMNINGINN VIÐ BANDARÍKIN OG SEGJA UPP AÐILDINNI AÐ NATO ) auðvitað höfum við ekkert með TVÖFALDAN varnarsamning að gera)...............


« Síðasta færsla

Athugasemdir

1 identicon

Sæll Jóhann Stýrimaður; sem aðrir þínir gestir !

Fyrir það fyrsta.

Jeg hefi oftsinnis velt fyrir mjer; hvers vegna NATÓ skyldi ekki leggjast niður: þá Varsjárbandalgið lagði upp laupana, við fall Sovjetríkjanna, árið 1991 ?

Hvaða tilgangi; átti Atlantshafsbandalagið að gegna, þá Sovjet- Kommúnisminn leið undir lok ?

Jú; sennilega, efling viðavarandi Heimsvaldastefnu Vesturlanda.

Sjáum framhaldið; Afghanistan 2001 - upplogna eiturefna leitin í Íraq 2003 - Líbýzki og Sýrlenzki fáránleikinn 2011.

Uppskeran; ofurflæði Múhamðesks ofstækislýðs frá ofantöldum löndum, inn í Evrópu og Suður- og Norður- Ameríkulöndin - gjörningarnir rjettlættir með falskri lýðræðisást Bandaríkjamanna og Evrópusambandsþjóðanna - þurfum ekki að hafa miklu fleirri orð, um afleiðingarnar, þar um.

Fyrir nú utan; óboðlegt dekur NATÓ ríkjanna við viðurstyggilegt Zíonista ríkið Ísrael (sem Bretar o.fl. komu á laggirnar með heimskulegri Balfour yfirlýsingunni 1917 - í stað þess að semja eins og menn við Síberíu- Rússa, um óbyggðar lendur við Norður- Íshafið, fyrir Gyðingana - hefði mögulega kælt niður Gamla- Testamentis ofstækið þeirra, t.d.).

Svo; má aldrei gleyma heldur, framkomu NATÓ ríkjanna við Serba, þegar Kosóvo var fært Múhameðskum undirmálslýð það hjerað á Silfurfati - hjerað: hvert er órjúfanlegur hluti Serbneska Konungsríkisins.

Af hverju; gætu Íslendingar ekki einfaldega verið hlutlausir, eins og Svisslendingar - Austurríkismenn og Írar t.d., Jóhann ?

Eða þá; leitað Hernaðarlegs stuðnings frá löndum, eins og Chile - Argentínu eða Perú í Suður- Ameríku t.d. ?

Fjarlægðir; landa á milli, skipta orðið minna máli, í stóraukinni tæknivæðingu síðari ára. 

Með beztu kveðjum; sem endranær, af Suðurlandi /     

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 29.5.2025 kl. 14:04

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

Með því að segja upp NATO aðildinni getum við með góðri samvisku haldið fram HLUTLEYSI okkar, Óskar Helgi og að sjálfsögðu hefði átt að leggja NATO niður þegar Varsjárbandalagið hrundi.  Það er náttúrulega ekkert að ger með hernaðarlegan stuðning frá ríkjum Suður-Ameríku að gera þegar við erum með varnarsamning við' Bandaríkin enda eru Bandaríkin með mörgu sinnum meiri hernaðarstyrk en Suður-Ameríka, svo þar væri ekki um neina skynsamlega umræðu að ræða.....

Bestu kveðjur af Suðurnesjunum.

Jóhann Elíasson, 29.5.2025 kl. 14:43

3 identicon

. . . . með mínum ábendingum; vildi jeg einungis koma á framfæri - að Íslendingum væri hollazt að slíta öllum Hernaðarlegum tengzlum við Bandaríkin - ekkert síður en Evrópusambands hluta álfunnar í austri, þar sem jeg árjettaði hlutdeild NATÓ ríkjanna í framkomunni við Serba, ekkert síður en Afghanistan og Arabalöndin (Líbýa: reyndar byggð Berbum, frumbyggjum Norður- Afríku að hluta).

Bandaríkin; má setja á stall, með Rússlandi (Finnski hluti Karelíu enn undir Rússneskri stjórn - hluti Kúril eyjanna Japönsku einnig) og Kína (við þekkjum vaxandi ágengni Kínverja í garð vina okkar: Þjóðernissinnana á Taíwan - hluti Kashmír undir Kínversku ofríki:: spilda, sem ætti að vera undir Indverskri stjórn, með rjettu) svo fátt eitt sje talið.

Bandaríkin - Rússland og Kína; eru / og verða viðvarandi ófriðarbæli, langt inneftir 21. öldinni Jóhann - og ættum við að forðazt frekari samskipti við þau, ef eitthvað er.

Ísrael; er svo sjer meinsemd í Mið- Austurlöndum, út af fyrir sig - þess vegna hefi jeg oftsinnis stungið upp á Síberísku lausninni, Gyðingunum til handa - bæði hjer: á Mbl. (blog.is) vefnum og annarrs staðar.

Ómar Geirsson; Ísraels vinurinn mikli varð svo hörundssár við mig (í fyrra eða hitteðfyrra - á sinni síðu hjer á vef), að jeg sá mjer þann kost vænstan, að ónáða hans síðu ekki frekar - og hefi staðið við það til þessa - sem og, framvegis mun verða.

Ekki síðri kveðjur; vitaskuld, á Suðurnesin /           

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 29.5.2025 kl. 15:12

4 Smámynd: Haraldur G Borgfjörð

Bandarikin voru með hersetu her í um 50 ár. Við nutum ekkert annað en gods af hersetu þeirra. Þeir sáu um flugvöllinn okkar að kostnaðarlausu. Allt viðhald og öryggi var á þeirra vegum, sem skilaði sér í því að við vorum með einn öruggast flugvöll í heimi. Við fengum að horfa á sjonvarpið þeirra, mörgum árum áður en ruslasjonvarpið sem við stofnuðum. Við gátum hlustað a útvarpið þeirra allan solahringinn med goðri tonlist a meðan íslenska Ríkisútvarpið spilaði óskalög sjúklinga og danarfrettir. Hversdi oft hjálpuðu þeir okkur við bráðautköll með því að senda þyrlur og mannskap til björgunaraðgerða.Hvað gerðu þeir fyrir okkur í Vestmanneyja gosinu með því að senda þyrlur, flugvélar mannskap og dælu útbúnað. Folk er fljótt að gleyma hvað þeir gerðu fyrir okkur án þess að rukka eina einustu krónu fyrir. Fyrir alla atvinnu og þjónustu sem við nutum við að þjónusta þeim. Það er ekkert betra Og öruggara en að halda varnarsamningi áfram við Bandaríkin. Eg er ekki búinn að gleyma því, það sem þeir gerðu fyrir okkur. 

Haraldur G Borgfjörð, 29.5.2025 kl. 19:51

5 Smámynd: Jóhann Elíasson

Það færi betur ef minni margra væri eins og þitt Haraldur.ég tel að Bandaríkjamenn hafi MUN MEIRA á DEBET hliðinni í bokhaldinu en á KREDIT hliðinni og ég held að það eigi eftir að koma í ljós ef grannt verður skoðað.........

Jóhann Elíasson, 29.5.2025 kl. 20:11

6 identicon

Sælir, á ný !

Haraldur.

Jeg skil; að meining þín sje góð til Bandaríkjamanna en, . . . . slóð eyðileggingar og alls lags skemmdarverka liggur eftir þá, víðvegar um heiminn.

Argentínumenn - Cile- og Perúmenn; hefðu fullt eins getað verið okkur til liðs, á fyrri áratugunum: margvíslega - og gleymum ekki, hjásetu Bandaríkjamanna, þá við vorum að kljást við Breta - Vestur- Þjóðverja og fleirri, í Þorskastríðunum, á seinni hluta 20. aldarinnar.

Á meðan, Bandaríkjamenn keppast við að tendra elda ófriðar og efnahagslegrar óreiðu víðs vegar, fæ jeg ekki sjeð með nokkru móti, að við ættum að eiga frekari samleið með þeim.

Fyrir mjer; eru Bandaríkjamenn á mjög áþekku róli í heimsmálunum - sem og Rússar og Kínverjar eru, og hafa verið, ágæti drengur.

Það er ekki að sjá; að neinna stórra breytinga sje að vænta í þeim efnum - sje: jafnvel litið fram undir næstu aldamót nema því aðeins, að stærri fylkin: eins og Kalifornía og Texas t.d. nái að rífa sig lausa, frá núverandi ríkjaskipan, þar vestra: jafnvel.

Og; skyldi þá litið, mjög langt inn í framtíðina - langt fram úr valdatíma Donld´s Jóhannesar Trump, t.d.

Með; sízt lakari kveðjum, hinum fyrri / 

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 29.5.2025 kl. 20:25

7 Smámynd: Haraldur G Borgfjörð

Sæll Óskar. 
Hvar voru Argetinumenn-Cile og Perumenn í síðasta þorskastriði? Bretar ætluðu að ganga frá okkur med sinum öflugu herskipum.Þo Eg viti það ekki með vissu, þá voru það Bandaríkin með pólitískum áhrifum sem stoppaði Bretana. Að reyna að Miða þessi lönd við her Bandarikjana er alveg út í hött.Hvað gætu þessi lönd gert fyrir okkur í dag?Akkurat ekkert.Nei ef við eigum kost a því að hafa varnarsamning við öflugasta og tæknilegasta her í heimi okkur að kostnaðalausu, af hverju ekki að taka því. Annað væri bara heymska. Þakka þér fyrir pistilinn,Óskar, þó svo við erum ekki sammála. 

Haraldur G Borgfjörð, 30.5.2025 kl. 02:32

Bæta við athugasemd

Hver er summan af sex og tveimur?
Nota HTML-ham

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband