HAFA RÁÐHERRAR EINHVERJA HEIMILD TIL AÐ SETJA "TRÚNAÐ" Á UMFJÖLLUN FASTANEFNDA ALÞINGIS UM EINSTÖK MÁL??????

Til að koma í veg fyrir umfjöllun um málið Alþingi?  Það er kannski rétt að minna á það að ALLIR, bæði ráðherrar og almennir þingmenn eru KJÖRNIR af almenningi, til þess að sinna störfum fyrir þjóðina og þá er, að mínum dómi, ekki hægt annað en ð ALLT SÉ UPPI Á BORÐINU ÞVÍ ÞJÓÐIN Á HEIMTINGU Á ÞVÍ FÁ AÐ VITA HVAÐ ER Í GANGI.

Svo er annað sem hefur verið að AUKAST undanfarin ár EN ÞAÐ ER AÐ RÁÐHERRAR ERU AÐ SKULDBINDA RÍKISSJÓÐ UM HÁAR FJÁRHÆÐIR ÁN ÞESS AÐ ALÞINGI HAFI NOKKUÐ FJALLAÐ UM MÁLIÐ ÁÐUR, EINS OG STJÓRNARSKRÁ LANDSINS KVEÐUR Á UM.  Þessi vinnubrögð eru ALGJÖR ÓVIRÐING VIÐ ALÞINGI OG STÖRF ÞESS.  Það hefur ekki heyrst nokkurt einasta "MÚKK" í EINUM EINASTA ALMENNUM ÞINGMANNI VEGNA ÞESSA.  Ég get ekki með nokkru móti skilið þann AUMINGJASKAP í almennum þingmönnum að láta þetta yfir sig ganga þegjandi og hljóðalaust................


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Birgir Loftsson

Þrískipting valds er ekki til á Íslandi. Þess vegna getur framkvæmdarvaldið (ráðherrar) vaðið á skítugum skóm yfir löggjafann.

Birgir Loftsson, 3.6.2025 kl. 17:24

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

Þó svo að ÞRÍSKIPTING VALDSINS sé bundin í stjórnarskrá þá VIRKAR HÚN ekki í raun Birgir, þetta átti að laga með því að setja fastanefndir þingsins á fót en sú framkvæmd misheppnaðist algjörlega.  En þetta er vandamálið og því miður virðist ekki vera nokkur áhugi hjá þingmönnum til að laga þetta.  ÞAÐ ER EKKI VIÐ NEINN ANNAN AÐ SAKAST ENN ÞINGMENN Í ÞESSU MÁLI, MEÐ ÖÐRUM ORÐUM EKKERT ANNAÐ EN AUMINGJASKAPUR.......

Jóhann Elíasson, 3.6.2025 kl. 19:56

3 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

2. málsliður 1. mgr. 19. gr. laga um þingsköp: "Óheimilt er að vitna til orða nefndarmanna eða gesta sem falla á lokuðum nefndarfundi nema með leyfi viðkomandi."

Guðmundur Ásgeirsson, 3.6.2025 kl. 21:16

4 Smámynd: Jóhann Elíasson

Guðmundur, er þetta allt sem þú hefur til málana að leggja???????

Jóhann Elíasson, 3.6.2025 kl. 22:04

5 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Bara vinsamleg ábending um að það er löggjafinn sjálfur sem hefur lagt trúnað yfir orð sem falla á lokuðum nefndarfundum.

Guðmundur Ásgeirsson, 3.6.2025 kl. 22:34

6 Smámynd: Jóhann Elíasson

"Þingskaparlög", eru þá EKKI í takt við stjórnarskrána og ég veit ekki betur en að  þingmönnum BERI að sjá til þess að sett lög gangi EKKI gegn stjórnarskránni en þarna virðist komið dæmi um hið gagnstæða.  ÞAÐ ERU ÞÁ MUN FLEIRI LÖG, SEM EKKI STANDAST STJÓRNARSKRÁNA OG VEITIR EKKI AF AÐ FARA AÐ TAKA TIL Í LAGASAFNINU......

Jóhann Elíasson, 4.6.2025 kl. 05:27

7 Smámynd: Birgir Loftsson

Það virðist vanta festu á fastanefndir Alþingis eða þær eru ekki nógu valdamiklar. Fylgist sjálfur með störfum fastanefnda Bandaríkjaþings, vá, þvílík frábær störf.

Birgir Loftsson, 4.6.2025 kl. 08:04

8 Smámynd: Jóhann Elíasson

Jú Birgir, það er akkúrat það sem ég er að benda á með þessum pistli.  Ráðherrar virðast geta gert það sem þeim sýnist án þess að það hafi nokkrar afleiðingar, það er alveg rétt hjá þér að fastanefndirnar virðast vera nokkurn vegin valdalausar......

Jóhann Elíasson, 4.6.2025 kl. 09:35

9 Smámynd: Birgir Loftsson

Rannsókna þáttur Bandaríkjaþings er til fyrirmyndar en vantar hér á landi festu á. Að vera grillaðar af rannsóknarnefnd er ekkert grín. 

Birgir Loftsson, 4.6.2025 kl. 09:49

10 Smámynd: Jóhann Elíasson

Ísland þarf á fleiri mönnum eins og þér að halda......

Jóhann Elíasson, 4.6.2025 kl. 11:38

Bæta við athugasemd

Hver er summan af fjórum og tólf?
Nota HTML-ham

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband