FERILL ÞESSA MÁLS HJÁ NÚVERANDI DÓMSMÁLARÁÐHERRA ER SÍÐUR EN SVO HENNI TIL FRAMDRÁTTAR......

En ALLAR hennar aðgerðir frá því að hún settist í stól Dómsmálaráðherra hafa ekki gert neitt annað en að UNDIRSTRIKA VANHÆFNI HENNAR OG GETU TIL AÐ TAKA EINHVERJA VITRÆNAR ÁKVARÐANIR OG FRAMKVÆMA ÞÆR.  Bara sú  staðreynd að núverandi Dómsmálaráðherra VANN á skrifstofu Ríkissaksóknara og þær Ríkissaksóknari eru VINKONUR áður en hún var kjörin til setu á Alþingi, HLÝTUR AÐ GERA HANA VANHÆFA TIL AÐ FJALLA UM MÁLIÐ Á NOKKURN HÁTT.  Landsmenn hafa setið uppi með "HVERJA VERKLAUSU UNDIRLÆGJUNA" Á FÆTUR ANNARRI OG ÞAÐ SEM ÞÆR EIGA SAMEIGINLEGT ER AÐ SÚ NÝJASTA ER MUN VERRI EN SÚ SEM VAR Á UNDAN.  Og sú sem er núna slær öll met, að fara yfir aðgerðir hennar er fljótgert, HÚN RAK ÚLFAR LÚÐVÍKSSON ÚR EMBÆTTI OG ENN ÞANN DAG Í DAG HEFUR HÚN EKKI GEFIÐ FULLNÆGJANDI SKÝRINGU Á BROTTREKSTRINUM, HÚN HEFUR EKKERT GERT Í "NJÓSNAMÁLINU OG HÚN HEFUR ENN EKKERT GERT Í MÁLEFNUM RÍKISSAKSÓKNARA OG VARARÍKISSAKSÓKNARA.   Ég held að það ætti að vera nokkuð einfalt fyrir Dómsmálaráðherra að "SNÚA" sig út úr þessum vandræðum sem hún er búin að koma sér í.  HÚN Á EINFALDLEGA AÐ "LOSA" SIG VIÐ NÚVERANDI RÍKISLÖGREGLUSTJÓRA OG SKIPA ÚLFAR LÚÐVÍKSSON Í ÞAÐ EMBÆTTI OG SVO ÆTTI HÚN AÐ REKA NÚVERANDI RÍKISSAKSÓKNARA OG SETJA HELGA MAGNÚS GUNNARSSON Í ÞAÐ EMBÆTTI.  Með þessum aðgerðum gæti hún mögulega lagað stöðu sína og sparað einhverja fjármuni fyrir ríkissjóð (ekki veitir af).   En sennilega er hún búin að sjá að  "VIÐREISNARMENNINGIN"  virkar alveg prýðilega (að ráðherrarnir geri bara það sem þeim sýnist án nokkurs samráðs við Alþingi eða nefndir þess, þetta fordæmi hefur Utanríkisráðhárra skapað) og Dómsmálaráðherra sér að þetta gengur alveg upp  og "apar" þetta eftir.......  


mbl.is Mál Helga skýrist eftir helgi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla

Athugasemdir

1 identicon

Í eina tíð var einhver annar ráðherra látinn sjá um verkefni, sem viðkomandi ráðherra var talinn  ófær um að leysa úr af einhverjum ástæðum. Það virðist nú vera liðin tíð eftir þessu að dæma, ef Þorbjörg á að fara að ráða og snúa sig út úr málum, sem greinilega er þannig vaxið, að hún er varla hæf til að gera það, sem þarf að gera, m.a. vegna þessarra nánu tengsla við viðkomandi embættismenn. Að öðrum kosti finnst mér þessi ríkisstjórn algerlega glötuð, hvernig sem á það er litið, eftir þeim málum og framkomu ráðherra varðandi þau að dæma, eins og  t.d. Inga Sæland, sem segir, að ríkisstjórnin standi heil á bak við mál, sem greinilega er svo miki deila um milli stjórnarflokkana og innan Alþingis, að það brakar og brestur allt þar innandyra. Þetta er alveg glatað, svei mér þá. Maður skilur ekki, hvað fólk getur verið hrifið af þessum flokkum eftir skoðanakönnunum að dæma. Maður veltir fyrir sér, hvort þessi ríkisstjórnarnefna lifir til hausts, og væri bara ágætt, ef maður gæti nú losnað við þetta lið þá. Þetta gengur ekki lengur.

Guðbjörg Snót Jónsdóttir (IP-tala skráð) 6.6.2025 kl. 14:59

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

Já Guðbjörg Snót, það rekur hvert vandræðamálið annað og eins og þú segir þá getur ekki annað verið en að það fari að koma að endalokunum hjá þessari ríkisstjórn....

Jóhann Elíasson, 6.6.2025 kl. 15:09

3 Smámynd: Ingólfur Sigurðsson

Hún vill losa sig við Helga því hann er ekki sammála henni í pólitík. En hún er klók og vill fara lymskulega að því. Sigríður er ábyggilega meira henni að skapi. Ef hún losar sig við Helga er það 100% staðfesting á spillingu, kvenhygli. Ef lesið er um vilja almennings er nóg að skoða DV og athugasemdir. Flestir standa með Helga en ekki Sigríði, finnst að hún eigi að víkja en ekki Helgi.

Þetta mál verður ekki búið með því að annaðhvort víki. Búið er að upplýsa um öfgafemínismann og óþjóðræknina í öllum störfum ríkissaksóknara og fleiri embætta með þessu máli. Hlynur Freyr Vigfússon ætti að fá uppreisn æru og skaðabætur. Hans orð voru sönn og réttlát, þannig menn þurfum við í stjórnmálin, ekki svikara.

Nei, þessi ríkisstjórn getur hangið lengi og haft þol, jafnvel í annað kjörtímabil. Það er fjölmenningur og vaxandi kjarni sem vill inní ESB.

Það skemmtilegasta við þetta er að Evrópsambandið er sjálft að breytast. Það hlýtur að breytast. Endurskoðun á femínisma og andrasisma, óþjóðrækni, þetta er nauðsynlegt.

Í staðinn fyrir Helga spretta upp 10 slíkir einstaklingar og loksins 100. Ekki er hægt að stöðva andann sem vaknar.

Ingólfur Sigurðsson, 6.6.2025 kl. 16:45

4 Smámynd: Jóhann Elíasson

Nei Ingólfur það er sko örugglega rétt hjá þér að þessu máli verður sko örugglega ekki lokið með einhverri aðgerð Dómsmálaráðherra, sem almenningur sættir sig ekki við.  Kannski er tími til kominn að ráðherrarnir geri sér grein fyrir því að þeir eru kosnir af almenningi og þiggja vald sitt þaðan en ekki öfugt.

Nei,  reyndar held ég að þessi ríkisstjórn standi MJÖG tæpt og þoli ekki mikið fleiri "klúður"......

Jóhann Elíasson, 6.6.2025 kl. 17:08

Bæta við athugasemd

Hver er summan af tíu og fjórum?
Nota HTML-ham

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband