KANNSKI VÆRI ÞARNA KOMIÐ "BESTA VERKFÆRIÐ" Í BARÁTTUNNI VIÐ VERÐBÓLGUNA.....

En að sjálfsögðu þarf að nota þetta af skynsemi og þá í bland við önnur úrræði.  Það ætti að vera forgangsatriði að STÖÐVA verðhækkanir á neysluvöru, sem ekki verður séð að NEIN skynsemi sé á bak (eingöngu einhverjar "verðbólguvæntingar").  Það er frekar hæpið að einhver geti SPÁÐ fyrir um verðbólgu af einhverju viti.  ÞAÐ ER FREKAR LÍKLEGT AÐ EF VERÐLAGSRÁÐ YRÐI ENDURVAKIÐ OG ÞAÐ YRÐI GERT AF VITI, AÐ ÞÁ MYNDI VERÐ Á ELDSNEYTI LEIÐRÉTTAST ÁSAMT MÖRGU FLEIRU.......


mbl.is Verðlagseftirlitið lífgað við?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Ég hef lengi velt fyrir mér þessu hugtaki "verðbólguvæntingar" sem seðlabankinn notar oft sem ástæðu til að hækka vexti eða lækka þá ekki eða lækka minna en ella. Hverjir eru það sem hafa þessar miklu "verðbólguvæntingar" sem seðlabankinn vísar til? Mér skilst að mælingin byggist á könnunum meðal heimila, fyrirtækja og markaðsaðila, með öðrum orðum hjá okkur sjálfum. Þá vaknar eftirfarandi spurning: Ef við viljum lækkun vaxta, hvers vegns stillum við þá ekki bara verðbólguvæntingum okkar í hóf? Ef það kæmi svo í ljós í næstu könnun á verðbólguvæntingum að þær séu litlar sem engar, yrði þá ekki seðlabankinn að bregðast við því með vaxtalækkun til að vera samkvæmur sjálfum sér? Er ekki löngu tímabært að við hættum að fita þennan púka á fjósbitanum og svörum framvegis öllum svona könnunum þannig að við höfum engar verðbólguvæntingar? Bara pæling.

Guðmundur Ásgeirsson, 9.6.2025 kl. 15:25

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

Mjög góð athugasemd Guðmundur og væri óskandi að fleiri hugsuðu svona.  "Verðbólguvæntingar" eru meira og minna bara huglægar væntingar markaðarins um hver verðbólgan GÆTI orðið á næstunni og eins og þú segir réttilega þá er þetta alveg í okkar höndum þetta er ekkert annað það að ef við viljum verðólguna niður VERÐUM VIÐ SJÁLF AÐ STÖÐVA OKKAR EIGIN VÆNTINGAR UM HÆKKANIR.  Það sem þú skrifar um "AÐ FITA PÚKANN Á FJÓSBITANUM" er með betri tilvitnunum sem ég hef séð.  ÞETTA ERU ALVEG FRÁBÆRAR PÆLINGAR HJÁ ÞÉR.....

Jóhann Elíasson, 9.6.2025 kl. 17:16

3 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Mér þætti fróðlegt að vita hverjir eru í úrtaki þessara væntingakannana. Kannski ætti jafnvel að láta boð út ganga til fólks um að ef það fær póst eða símtal með beiðni um að taka þátt í slíkri könnun að svara þá þannig að þau hafi engar væntingar um neina verðbólgu.

Væntingar eru ekkert annað en huglægt ástand og við höfum sjálf í hendi okkar að ákveða og segja til um hverjar okkar væntingar eru. Við ættum ekki að láta neinn annan stjórna hugsunum okkar, síst af öllu seðlabankann.

Guðmundur Ásgeirsson, 9.6.2025 kl. 17:30

4 Smámynd: Jóhann Elíasson

Ég er bara ekki með það á hreinu hverir það eru sem eru í því úrtaki sem er gert varðandi "verðbólguvæntingar" og eins er ég heldur ekki viss um að almenningur viti almennilega hvað er átt við með "VERBÓLGUVÆNTINGUM".  Ég tek sko algjörlega undir seinni hlutann hjá þér.VÆNTINGAR ERU EKKERT ANNAÐ EN HUGLÆGT ÁSTAND OG VIÐ EIGUM EKKI AÐ LÁTA NEINN HAFA ÁHRIF Á HUGLÆGT ÁSTAND OKKAR.....

Jóhann Elíasson, 9.6.2025 kl. 17:57

5 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Mig þyrstir líka að vita hvort þau sem lenda í úrtakinu séu upplýst áður en þau svara spurningunni um að svar þeirra geti haft áhrif á vaxtaákvarðanir seðlabankans.

Guðmundur Ásgeirsson, 9.6.2025 kl. 20:05

6 Smámynd: Jóhann Elíasson

Nei Guðmundur það er alveg SKOTHELLT að menn eru EKKI upplýstir um það fyrirfram að svör þeirra geti haft áhrif á vaxtaákvörðun Seðlabankans því ef svo væri þá myndi það fara gegn öllum þeim reglum sem gilda um skoðanakannanir.........

Jóhann Elíasson, 9.6.2025 kl. 21:25

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband