HEFUR EES SAMNINGURINN SKILAÐ ÞJÓÐINNI EINHVERJUM ÁBATA?????

Nú er virkileg þörf á því að  gera aðeins skil á því hvers konar breytingar hafa orðið á eðli og starfsemi ESB frá því að EES samningurinn tók gildi og það þarfnast útskýringa við HVERNIG STENDUR Á ÞVÍ AÐ EES SAMNINGURINN HEFUR EKKI TEKIРNEINUM BREYTINGUM Á ÖLLUM TÍMANUM OG ÞÁ ER ÉG AÐ TALA UM BREYTINGAR Á SAMNINGNUM FRÁ ÖLLUM SAMNINGSAÐILUNUM?  

Þegar EES samningurinn var undirritaður var um að ræða VIÐSKIPTASAMNING, sem átti að tryggja EFTA ríkjunum aðgang að „sameiginlegum markaði Evrópu“.  Okkur Íslendingum var „SELDUR“ þessi samningur á þeim forsendum að SJÁVARÚTVEGSVÖRUR YRÐU TOLLFRJÁLSAR en svo kemur í ljós að sjávarútvegsvörur hafa ALDREI verið tollfrjálsar.  BER ENGINN ÁBYRGÐ Á ÞESSUM BLEKKINGUM????  Eins og ég sagði áðan þá var að um viðskiptasamning hafi verið um að ræða en þegar var verið að vina að EES samningnum var þegar verið að vinna að breytingum á ESB, með hinum svokallaða Maastricht samningi sem var gerður árið 1992 en öðlaðist ekki gildi fyrr en mörgum árum síðar vegna þess að ríki ESB voru ekki sátt við hann en eftir að samningurinn hafði verið þvingaður í gegn var reglum ESB breytt í þá átt að samninga ESB þurfti ekki lengur að samþykkja EINRÓMA  heldur ÞURFTI AÐEINS MEIRIHLUTASAMÞYKKI.  En ekki var gerð nein breyting á EES samningnum.  En stærsta breytingin á ESB varð árið 2009 með hinu svokallaða Lissabon samkomulagi, ekki hafði þáverandi Utanríkisráðherra Íslands, sem var á þessum tíma Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, fyrir því að upplýsa landsmenn um þessa miklu breytingu á ESB, sem fór meira í þá áttina að verða pólitískt samband með mun meiri heimildir til framkvæmdastjórnar ESB til miðstýringar innan ESB landanna OG ÞÁ INNAN  EES RÍKJANNA.  Getur ekki verið að BÓKUN 35 sé ein af afleiðingum Lissabon sáttmálans, því þessi bókun var ekki inni í upphaflega EES samningnum NEMA ÞAÐ HAFI FARIST FYRIR AÐ BIRTA HANA??????

VERÐI EKKI GRIPIÐ TILRÁÐSTAFANA STRAX OG EINA RÁÐSTÖFUNIN SEM ER FÆR ER AÐ SEGJA EES SAMNINGNUM UPP, GLATAST SJÁLFSTÆÐI LANDSINS OG LANDSMENN VERÐA „LEIGULIÐAR“  ESB.................


« Síðasta færsla

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður I B Guðmundsson

Það er margt til í þessu hjá þér. En óvissan er óþægileg. 

Sigurður I B Guðmundsson, 23.7.2025 kl. 11:20

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

Mér finnst alveg stórfurðulegt að EES samningurinn hafi ALDREI verið ENDURSKOÐAÐUR þrátt fyrir GÍFURLEGAR breytingar í gegnum tíðina......

Jóhann Elíasson, 23.7.2025 kl. 11:33

3 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Bókun 35 var hluti af upphaflega EES sáttmálanum þegar hann var undirritaður í Óportó 2. maí 1992 og hefur því ekkert að gera með Lissabon sáttmálann sem ESB ríkin undirrituðu 13. desember 2007.

Sjá hér: Lokagerð við EES-samninginn (e. Final Act) á íslensku - Bókun 35

Guðmundur Ásgeirsson, 23.7.2025 kl. 12:19

4 Smámynd: Jóhann Elíasson

Guðmundur, reyndu nú að fara með rétt mál og ekki reyna að halda þessari vitleysu fram.  Það hefur oft komið fram að það var ákveðið að taka bókun 35 út úr upphaflega samningu og þess í stað var sæst á að setja grein 3 inn, því það var talið að samningurinn um EES YRÐI ALDREI SAMÞYKKTUR AF ALÞINGI ÍSLENDING EF BÓKUN 35 VÆRI ÓBREYTT ÞAR INNI.  Eftir að þú fórst að vinna fyrir Flokk Fólksins inni á Alþingi Íslendinga finnst mér þú vera farinn að umgangast sannleikann af nokkuð mikilli léttúð, með örum orðum sagt að FRÆÐIMAÐURINN HEFUR VERIÐ LÁTINN VÍKJA FYRIR STJÓRNMÁLAMANNINUM......

Jóhann Elíasson, 23.7.2025 kl. 14:52

Bæta við athugasemd

Hver er summan af níu og fjórum?
Nota HTML-ham

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband