ÞURFA "SKESSURNAR" OG RÁÐHERRAR YFIRLEITT EKKI AÐ FARA AÐ LÖGUM???

Og þar virðist vera að almenningur í landinu sé algjörlega varnarlaus gagnvart þessu liði og það sem er enn verra er að almennir Alþingismenn þegja þunnu hljóði.  Það er kannski rétt að rifja upp nokkra af þessum "GLÆPUM" sem ekkert virðist vera fyrirhugað að grípa til nokkurra aðgerða gegn.  Og þegar viðbrögð eru þannig við LÖGBROTUM á æðstu stöðum hver halda menn að þróunin verði ef ekkert verður að gert????

  • Þáverandi Forsætisráðherra, Katrín Jakobsdóttir, þáverandi Fjármálaráðherra, Bjarni Benediktsson og þáverandi Heilbrigðisráðherra, Svandís Svavarsdóttir gerðu samning um kaup á "bóluefnum" (sem reyndust með öllu gagnslaus en vonandi hafa þau ekki vitað það þá).  Þessi samningur kostaði ríkið marga milljarða króna og það sem meira var VAR AÐ ALÞINGI ÍSLENDINGA KOM EKKERT AÐ ÞESSU EN ÞAÐ ER SKÝRT TEKIÐ FRAM Í STJÓRNARSKRÁNNI AÐ EKKI MEGI STOFNA TIL ÚTGJALDA EÐA SKULDBINDINGA FYRIR RÍKISSJÓÐ ÁN AÐKOMU ALÞINGIS.  Ég veit ekki betur  en að enn sé "TRÚNAÐUR" á þessum samningi en hafa ráðherra ENGAR trúnaðarskyldur við almenning í landinu?????  ÞAÐ VANTAR SÁRLEGA "ÓHÁÐAN" STJÓRNLAGADÓMSTÓL HÉR Á LANDI....
  • Í júní 2023, braut Svandís Svavarsdóttir þáverandi Matvælaráðherra ákvæði STJÓRNARSKRÁRINNAR um atvinnufrelsi og minnst fjórar aðrar greinar á Almennum lögum með því að banna hvalveiðar með eins dags fyrirvara.  Þegar hún varð þess vör að ekki var samstaða um þessa aðgerð hennar fór hún í "veikindaleyfi"  Og svo þegar hún ætlaði að koma til baka þá beið hennar VANTRAUSTSTILLAGA, sem Flokki Fólksins tókst með ótrúlegum hætti að klúðra (en kannski var það bara ætlunin).  En hún kom sér bara yfir í annað ráðuneyti og ekki batnaði það.  ÞAÐ VANTAR SÁRLEGA "ÓHÁÐAN" STJÓRNLAGADÓMSTÓL HÉR Á LANDI...
  • Vorið 2024 var kominn nýr Matvælaráðherra, Bjarkey Ólsen Gunnarsdóttir,hún dró það í marga mánuði  að  veita formlegt leyfi til hvalveiða og bar alltaf við "gögn" vantaði svo hægt væri að veita leyfið (allir vita hver afstaða VG er til hvalveiða og hún hafði séð að  Svandís hafði komist upp með að  brjóta stjórnarskrána og því ekki að láta reyna á það hvort hún gæti það ekki líka?).  ÞAÐ VANTAR SÁRLEGA "ÓHÁÐAN" STJÓRNLAGADÓMSTÓL HÉR Á LANDI....
  • Á lokamánuðum síðustu ríkisstjórnar átti að vísa fötluðum dreng og fjölskyldu hans frá Palestínu úr landi til Spánar, sem er algjörlega öruggt land og þar sem meira var að þar var eitt besta sjúkrahús í heimi sem sérhæfðu sig í þeim sjúkdómi sem var að hrjá drenginn.  En einhverra hluta vegna fundu ráðherrar VG þá þörf hjá sér að hafa í frammi þá ótrúlegu kröfu að Dómsmálaráðherra STÖÐVAÐI lögregluaðgerð sem þegar var hafin.  Þarna fór Dómsmálaráðherra Guðrún Hafsteinsdóttir langt útfyrir lagaheimildir sínar og það virðist vera að henni finnist það bara allt í lagi.  ÞAÐ VANTAR SÁRLEGA "ÓHÁÐAN" STJÓRNLAGADÓMSTÓL HÉR Á LANDI....
  • En svo kom að því að það var boðaða til Alþingiskosninga og eftir úrslit þeirra kosninga og stjórnarmyndunarviðræðna í kjölfar þeirra tók nú ekki betra við Utanríkisráðherra (Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir) var ekki búin að vera lengi í embætti þegar hún skellti sér til Brüssel til að "endurvekja" ESB - umsóknina frá 2009 án nokkurs samráðs við Alþingi eða Utanríkismálanefnd Alþingis.  ÞAÐ VANTAR SÁRLEGA "ÓHÁÐAN" STJÓRNLAGADÓMSTÓL HÉR A LANDI....
  • Og til að  bæta "gráu ofan á svart" bættu Forsætisráðherra (Kristrún Frostadóttir) og Utanríkisráðherra við NOKKRUM  MILLJÖRÐUM við styrkina til Úkraínu án nokkurs samráðs við Alþingi eða Utanríkismálanefnd Alþingis.  ÞAÐ VANTAR SÁRLEGA "ÓHÁÐAN" STJÓRNLAGADÓMSTÓL HÉR Á LANDI....
  • Þá "SAMDI" Forsætisráðherra við Ursulu Gertrud Von der Layen, þess efnis að Ísland myndi "AÐLAGA" utanríkismálastefnu sína að utanríkismálastefnu ESB án nokkurs samráðs við Alþingi eða Utanríkismálanefnd Alþingis.  ÞAÐ VANTAR SÁRLEGA "ÓHÁÐAN" STJÓRNLAGADÓMSTÓL HÉR A LANDI....
  • Svo tók nú alveg "botninn úr" þegar Forsætisráðherra "SAMDI" við NATO um að Ísland greiddi 1,5% af vergri (brúttó) landsframleiðslu til NATO án nokkurs samráðs við Alþingi eða Utanríkismálanefnd Alþingis.  ÞAÐ VANTAR SÁRLEGA "ÓHÁÐAN" STJÓRNLAGADÓMSTÓL HÉR Á LANDI... 
  • Og svo var Forsætisráðherra að samþykkja aukinn fjárhagslegan stuðning við stríðið í Úktraínu (hefur Alþingi eitthvað fjallað um þetta?).  ÞAÐ VANTAR SÁRLEGA "ÓHÁÐAN" STJÓRNLAGADÓMSTÓL HÉR Á LANDI..

« Síðasta færsla

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður I B Guðmundsson

Stjórnlagadómstóll mundi kom sér illa við flesta ef ekki alla flokka. Þess vegna tel ég þessa frábæru hugmynd þína falla um sjálft sig. 

Sigurður I B Guðmundsson, 5.9.2025 kl. 11:59

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

Ég á nú reyndar ekki hugmyndina Sigurður, en ég er alls ekki frá því að þetta sé alveg rétt athugað hjá þér......

Jóhann Elíasson, 5.9.2025 kl. 12:32

3 Smámynd: Sigurður Kristján Hjaltested

Þegar þú getur verið ráðherra og þingmaður með engva menntun eða reynslu á einu né neinu,

sem virðist því miður vera uppistaðan á þingi í dag, heldur þú þá að þannig fólk vilji

láta rannsaka hversu arfavitlaust það er..? Nei, það vinnur frekar gegn því að slíku 

fyrirkomulagi verði komið á.

Aðaláhyggjur þessa liðs er að tæma alla sjóði fyrir Zelenski,Palestínu og ólöglega innflytjendur

að ógleymdum öllum kynjunum sem engin veit hvað eru mörg á þeim bæ.

Sorglegt, því Ísland gæti verið eitt besta land í heimi ef ekki væri fyrir þetta fólk sem 

aldrei hefur unnið handtak og veit ekki hvað það er.

Sigurður Kristján Hjaltested, 5.9.2025 kl. 12:39

4 Smámynd: Jóhann Elíasson

Þú og nafni þinn eruð með þetta alveg á hreinu Sigurður Kristján.  Óskaplega er illa komið fyrir landinu okkar........ 

Jóhann Elíasson, 5.9.2025 kl. 12:45

Bæta við athugasemd

Hver er summan af tíu og sextán?
Nota HTML-ham

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband