8.6.2007 | 14:41
Er fiskveiðistjórnunin á Íslandi á rangri braut?
- Upphaflegt markmið kvótakerfisins var að sjálfsögðu að vernda fiskistofnana við landið og bæta sóknarstjórnunina.
- Kvótakerfið átti að vernda byggð í landinu, þannig að smærri byggðarlög yrðu ekki afskipt. Kvótakerfið átti með öðrum orðum að verða eitt verkfæra hinnar svokölluðu byggðastefnu.
- Kvótakerfið átti að auka mikið afrakstur fiskimiðanna, allur afli átti að koma að landi og menn áttu að auka sóknina í verðmætari og vannýttar fisktegundir. Með því að stýra sókninni átti að verða hagkvæmara að vinna aflann, það átti að auka útflutningsverðmæti aflans og mikil hagkvæmni átti að nást við vinnslu hans.
En hefur tekist að bæta sóknarstjórnunina og nýtingu aflans? Að hluta til hefur sóknarstjórnunin verið bætt, en á öllum málum eru tvær hliðar. Sem dæmi má nefna skip sem á lítinn kvóta eftir af einni fiskitegund, þar er reynt að forðast þau fiskimið, þar sem eru líkur á að sú fiskitegund haldi sig, en ef þannig vill til að umrædd tegund slæðist með í veiðarfærin er þessari fisktegund bara hent í hafið aftur til þess að hún komi ekki til frádráttar þeim litla kvóta sem eftir er. Undirritaður var mörg ár til sjós og aldrei upplifði ég það að aðeins ein fisktegund kæmi í trollið eða þá að fiskurinn bærist eftir fyrirfram gerðri pöntun. Það er á margra vitorði að vegna þess hvernig verðlagið er á fiski, koma netaveiðibátar aðeins með fisk að landi, sem er lifandi þegar hann kemur inn fyrir borðstokkinn, að öðrum kosti er hann of verðlítill. Það verður að ná hámarksverði fyrir hvert kíló af kvótanum og þar af leiðandi er dauðum fiski bara hent aftur í sjóinn. Hvernig sem á því stendur þá er ekki lengur landað tveggja nátta fiski og stærð þess fiskjar sem komið er með að landi hefur stórum aukist en samt verður nýliðunin alltaf lakari. Hver skyldi ástæðan vera?
Hefur kvótakerfið orðið til þess að þjappa saman byggð í landinu og vernda þau þau byggðarlög, sem hafa staðið höllum fæti gagnvart stærri byggðarlögum?Ekki er nokkur vafi á því að kvótinn hefur beint og óbeint orðið til þess að margar byggðir þessa lands eru að leggjast í auðn og aðrar að stækka og eflast eins og t.d Akureyri. En þar á bæ (Akureyri) hafa t.d Samherjamenn verið mjög duglegir að kaupa upp kvóta á minni stöðum og flutt hann eftir "hæfilegan" tíma, til Akureyrar. Þar með er það byggðarlag, sem kvótinn var keyptur frá, skilið eftir í sárum, þannig að fólkið sem þar býr hefur engin úrræði önnur en að fara frá verðlausum eignum sínum og byrja lífið frá grunni, á stöðum sem enn hafa kvóta, t.d Akureyri. En nú ber svo við að Brim, undir forystu Guðmundar Kristjánssonar, hefur keypt ÚA eins og það leggur sig og nú beitir hann sömu "aðferðum og Samherjamenn hafa notað í gegnum tíðina. Nú reynir Guðmundur ásamt bróður sínum að leika sama leikinn, varðandi Vinnslustöðina í Vestmannaeyjum, en eins og dæmið lýtur út í dag eru ekki líkur á að bragðið heppnist. Nú nýlega lagði Kambur á Flateyri upp laupana meðal annars var seldur "kvóti" af staðnum og skip, reyna á að halda uppi fiskvinnslu á staðnum, en ekki get ég séð að það gangi upp án þess að kvóti sé til staðar. Því miður sé ég ekki annað en að þessi tilraun sé dauðadæmt, nema til komi einhver meiriháttar aðstoð við byggðarlagið. Og talandi um aðstoð þá verð ég að segja að stjórnvöld hafa verið ansi værukær í sambandi við þann mikla vanda sem steðjar að byggðarlaginu, það eru settir tveir ráðherrar á "útkíkk" þeir hafa ekki látið sjá sig á staðnum og svo gortar annar þeirra sig af því að ætla að færa 20 "opinber" störf á Vestfirði í staðinn fyrir þau 120 störf sem fyrirsjáanlegt er að tapist. Það mætti kannski benda viðkomandi ráðherra á að töluverður mismunur er á eðli þeirra starfa sem flytja á vestur og þeim fiskvinnslustörfum sem tapast og erfitt er að sjá hvernig þeir sem þarna missa vinnuna eiga að sinna þessum "opinberu" störfum. Svona mætti lengi telja hvernig "kvótakerfið" hefur farið með byggðir landsins og því miður verð ég að segja að stjórnvöld aðhafast ekkert til þess að stöðva þessa uggvænlegu þróun.
Nú er komin fiskveiðiráðgjöf fyrir næsta fiskveiðiár frá HAFRÓ og þvílík vonbrigði. Enn einu sinni á að draga úr þorskveiðum og ekki nóg með það heldur á að lækkaaflaregluna líka. Þetta segir bara að "kvótakerfið" hefur algjörlega brugðist. Nú hefur þetta "fiskveiðistjórnunarkerfi" fengið rúm 20 ár til þess að sanna ágæti sitt og eitt er víst að vissir aðilar hafa varið þetta kerfi með klóm og kjafti og jafnvel hefur verið gengið svo langt að kalla það besta fiskveiðistjórnunarkerfi í heimi. Menn hafa komið fram í fjölmiðlum og segja "kannski" séu nú einhverjir vankantar á kerfinu en það sé alls ekki því að kenna hvernig komið sé fyrir fiskveiðistofnunum og byggðarlögunum og til að bæta gráu ofan á svart, kemur framkvæmdastjóri LÍÚ fram og segir að smábátasjómenn séu aðalsökudólgurinn, því þeir hafi veitt langt umfram það sem þeim var ætlað, en útgerðarmenn, sem hann er í forsvari fyrir hafi tekið á sig skerðingar. Heldur maðurinn virkilega að fólk trúí þessari vitleysu?
HAFRÓ á ekki þarna litla sök, í gegnum tíðina hefur verið lagður til minni fiskveiðaafli og átti með því að styrkja veiðistofnana til þess að hægt yrði að auka veiðarnar seinna, en hvenær er seinna?
En nú er komið að kaflaskiptum, þótt fyrr hefði verið, Það er tillaga mín að farið verði að tillögu HAFRÓ næstu tvö árin og verði ekki breyting á fiskistofnunum til mikils batnaðar verði farið í að kasta þessu "fiskveiðikerfi" okkar fyrir róða, því þá verður það fullreynt að þetta "kerfi" er handónýtt, í það minnsta eru Norðmenn nú sannfærðir um að þetta kerfi sé ónothæft. Helst er fyrir okkur að lýta til frænda okkar í Færeyjum og skoða vel "fiskveiðistjórnunarkerfi" þeirra.
Athugasemdir
Það á að henda þessu kerfi strax og byrja á smábátunum þar sem náttúruöflin stjórna okkur algjörlega.
Hallgrímur Guðmundsson, 12.6.2007 kl. 18:40
Ég er þér algjörlega sammála, þótt fyrr hefði verið og einnig ætti að hafa þá menn til sýnis á Ingólfstorgi sem vilja þennan ófögnuð áfram.
Jóhann Elíasson, 12.6.2007 kl. 19:48
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.