24.10.2007 | 08:44
Verður ferjuhöfn í Bakkafjöru næsta “Grímseyjarferjuklúður”?
- Á blaðsíðu 5 í umræddri skýrslu, er talað um það að aldan fyrir suðurlandi sé sú hæsta sem um getur, en sé lægst við Bakkafjöru vegna þess að Bakkafjara sé í skjóli af Vestmannaeyjum. Þvílíkt bull, á milli Bakkafjöru og Eyja eru rúmlega 5 kílómetrar. Þegar ég var stýrimaður og var farið í var t.d undir Grænuhlíð, fyrir vestan, rekur mig aldrei minni til þess að við fengjum skjól af því að vera 5 kílómetra undan Hlíðinni. Það er hægt að vera í skjóli 100-200 metra frá (fer eftir landslagi) en rúma 5 kílómetra, það er náttúrulega algjört kjaftæði og að byrja á því að bera svona bull fram í byrjun skýrslunnar vekur upp spurningar um hversu mikið sé að marka restina af henni?
- Á blaðsíðum 5 og 6, í skýrslunni, er talað um sandrifið utan við fyrirhugað hafnarstæði í Bakkafjöru. Þar segir meðal annars Þegar aldan er nægjanlega há á leið sinni yfir sandrifið, fer hún að hryggjast og getur því brotnað á sandrifinu. Öldurnar brotna á um 300 m kafla frá 10 m jafndýpislínunni og inn fyrir hrygginn á sandrifinu. Við það, að aldan brotnar á sandrifinu, lækkar hæð öldunnar verulega, og heldur brotna aldan áfram að berast yfir um 400 m breiðan og 10 -12 m djúpan ál, sem liggur innan við sandrifið. Fjarlægðin frá hrygg sandrifsins að fyrirhuguðu hafnarmynni er um 500 metrar. Oft hef ég farið þarna um í misjöfnum veðrum og hef ég aldrei séð annað en að það brjóti á þessu rifi.
- Á blaðsíðum 5 og 6, í skýrslunni, er talað um sandrifið utan við fyrirhugað hafnarstæði í Bakkafjöru. Þar segir meðal annars Þegar aldan er nægjanlega há á leið sinni yfir sandrifið, fer hún að hryggjast og getur því brotnað á sandrifinu. Öldurnar brotna á um 300 m kafla frá 10 m jafndýpislínunni og inn fyrir hrygginn á sandrifinu. Við það, að aldan brotnar á sandrifinu, lækkar hæð öldunnar verulega, og heldur brotna aldan áfram að berast yfir um 400 m breiðan og 10 -12 m djúpan ál, sem liggur innan við sandrifið. Fjarlægðin frá hrygg sandrifsins að fyrirhuguðu hafnarmynni er um 500 metrar. Oft hef ég farið þarna um í misjöfnum veðrum og hef ég aldrei séð annað en að það brjóti á þessu rifi. Svo stendur til að bjóða fólki upp á það að siglt verði yfir þetta rif á skipi sem verður u.þb 15 metrum styttra en núverandi Herjólfur er og aðeins með 3,2 metra djúpristu, ekki vildi ég reyna að stjórna skipi við svona aðstæður. Annars hef ég verið að fylgjast með veðurdufli við Bakkafjöru (ásamt fleirum) og samkvæmt upplýsingum frá þessu veðurdufli er ansi oft ófært í Bakkafjöru.
- Þá kemur að sandburði í og við Bakkafjöruhöfn en á blaðsíðu 8 fær þetta atriði, sem ég vil meina að sé höfuðatriði fyrir þessa væntanlegu framkvæmd. Þessi umfjöllun, sem að mínu mati og þeirra sem þekkja svæðið mjög vel er svo yfirborðskennd að ekki verður hægt að verja hana með nokkru móti: Kannað var, hvaða áhrif breytingar á botninum á rifinu hefðu til lengri tíma. Þegar dýpið er minnkað um 2 m á 300 m kafla eftir hryggnum og febrúarveðrið er keyrt í
(ath að leturbreytingar eru alfarið mínar og er efni tekið úr umræddri skýrslu). Ég hef nú ekki sjálfur verið mikið að stunda veiðar á þessu svæði en það hafa aðrir gert og halda því fram að botninn á þessu svæði sé svo síbreytilegur, vegna sandburðar, að sé verið á vissri togslóð sé ekki hægt að treysta á það að botninn sé óbreyttur þegar togað er til baka. Þá er því einnig haldið fram, í skýrslunni, að lega tilvonandi sjóvarnargarða komi í veg fyrir það að sandur berist í tilvonandi höfn, Þar er vísað til rannsókna, sem Siglingastofnun gerði og eiga þær rannsóknir að vera fullkomlega öruggar. Rannsóknir, sem voru gerðar varðandi sjóvarnargarð í Grímsey, sem hvarf í óveðri, fyrir nokkrum árum, áttu líka að vera alveg öruggar. Þá vildu sérfræðingarnir hjá Siglingastofnun ekki hlusta á staðkunnuga menn og það gera þeir ekki heldur núna. Skyldi vera eitthvað samhengi þarna á milli? Það sem mér þykir fyrst og fremst vafasamt við gerð fyrirhugaðra sjóvarnargarða, er að þá á að reisa þá beint ofan á sandinn (ekki er almennilega vitað hve djúpt er niður á fast þarna). Vitað er að sandurinn er á fleygiferð og ekki þarf mikið ímyndunarafl til þess að gera sér í hugarlund að nokkrar steinvölur verði nú ekki mikil fyrirstaða, ef og þegar brimið við suðurströndina nær sér á strik. Einhvern veginn sé ég það ekki fyrir mér að stjórnvöld hér á landi séu tilbúin til þess að setja stórar fjárhæðir í samgöngur milli Lands og Eyja, ef þessi rándýri tölvuleikur gengur ekki upp í raunveruleikanum. Tapið verður fyrst og fremst Vestmannaeyinga, því miður og eins og ég sagði í upphafi þessarar greinar, þá er engan vegin vitað hver verður ábyrgur fari allt á versta veg.
Ekki væri mikið mál að fara svona yfir fleiri liði þessarar skýrslu, svo mikið er af staðreyndavillum í henni og þegar einum lið er hrundið, þá bregðast forsendur sem eru fyrir öðrum og svo koll af kolli. En ef ég gerði þetta yrði þessi grein svo löng að það myndi enginn nenna að lesa hana, nú þegar hef ég áhyggjur af því að hún sé orðin of löng.
Fyrir það fyrsta þá er náttúruöflunum sýnd alveg dæmalaus óvirðing með þessum áætluðu framkvæmdum, því mér er ekki kunnugt um það að mannfólkinu hafi tekist að beisla náttúruöflin. Menn hafa staðið öldum saman í Bakkafjöru og horft til Vestmannaeyja. Ef menn hefðu séð þess nokkurn kost, væri löngu búið að byggja þarna almennilega ferjuhöfn. Förum varlega!
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt 5.11.2007 kl. 11:18 | Facebook
Athugasemdir
Kvitt og þökk, þetta setur mann svolitið inn i þetta mal sem er mikið umdeilt/kveðja Halli gamli
Haraldur Haraldsson, 24.10.2007 kl. 10:43
Takk fyrir þetta kv.
Georg Eiður Arnarson, 24.10.2007 kl. 11:24
Sæll, óli er á spítalanum en er allur að braggast, hann er með gsm hjá sér, 8674756. kv.
Georg Eiður Arnarson, 24.10.2007 kl. 22:39
Þakka þér kærlega fyrir skjót viðbrögð. Hvað var að hrjá hann?
Jóhann Elíasson, 24.10.2007 kl. 22:58
Verður ekki hægt að hengja skömmina af þessu rugli þarna í fjörunni á Sturlu, eins og fleira? Var hann ekki búinn að ryðjast með frumvarp um bullið í gegnum þingið í vor? Þar með verður engan að hengja því hann verður löngu af stallinum þegar menn fá þetta í fangið.
Hafsteinn Viðar Ásgeirsson, 25.10.2007 kl. 18:31
Sæll Jóhann mig langar aðeins að gera nokkrar athugasemdir við þessa samantekt þina, ekki það að ég sé á móti þínum skoðunum hvað varðar Bakkafjöru heldur finnst mér margt ekki vel ígrundað sem þú segir.
2. Þú talar um að það sé bull og vitleysa að það sé skjól af Eyjum. Það er auðvitað skjól af Eyjum í vissum áttum þ.e.a.s það eru lægri öldur það sýna mælingar og eins og þú veist örugglega þá eru öldustærð háð dýpi. Þetta þarf ekki að ræða, hitt ættir þú að vita að skjól af landi getur náð lengra en 5 km frá strönd, við höfum báðir siglt með suðurströndinni í noranáttum, þá nær sjórinn sér ekki upp þó þú siglir 5 km frá landi og vindur sé mikill. Í hreinum austan áttum þótt stormur sé siglir Herjólfur 2 til 3 mílur frá landi í nokkuð sléttum sjó langleiðina til Eyja eða þar til siglt er yfir sundið. 3. Sjóvarnargarðurinn í Grímsey. Þú ásamt mörgum öðrum nefnir Sjóvarnargarðurinn í Grímsey sem fór fyrir nokkrum árum segir þú. Sá sjóvarnargarður var byggður 1966 eða um það bil, það var að mér er sagt hálfnað að byggja hann þegar hann Hvarf. 1990 var byggður nýr garður sem hannaður var eftir rannsóknir og athuganir á aðstæðum, sá garður stendur en og eru Grímseyingar ánægðir með hann að mér skilst. Engin nefnir nú þennan Sjóvarnargarð sem staðið hefur í 17 ár án þess að haggast. Til gamans má geta þess að sá sem hannaði þennan nýja garð í Grímsey var 11 ára þegar gamli garðurinn hvarf 1966. 4. Náttúruöflin. þú endar á þessum orðum:Fyrir það fyrsta þá er náttúruöflunum sýnd alveg dæmalaus óvirðing með þessum áætluðu framkvæmdum, því mér er ekki kunnugt um það að mannfólkinu hafi tekist að beisla náttúruöflin. Menn hafa staðið öldum saman í Bakkafjöru og horft til Vestmannaeyja. Ef menn hefðu séð þess nokkurn kost, væri löngu búið að byggja þarna almennilega ferjuhöfn. Förum varlega! Jóhann við erum alstaðar að beisla náttúruöflin, má þar nefna virkjanir sem eru allat að verða stærri og stærri, við erum að byggja hafnir víðsvegar um landið sem einnig eru stærri og dýpri, allt þetta gerum við af því að við höfum stærri og öflugri tæki til að vinna þessi verk. Ég er ekki í vafa um að hægt er að byggja höfn í Bakkafjöru, spurningin er bara hvort það er hagstæðara en að byggja nýtt stærra skip þetta eiga Eyjamenn að taka ákvörðun um. Ef höfnin verður byggð, verður að byggja gott öflugt skip sem siglir þar á milli, skip sem er vel búið fyrir farþega með klefa og góða þjónustu, og auðvitað þurfa Eyjamenn sjálfir að reka það, annars er ég hræddur um að þetta geti verið afturför. Eitt langar mig að benda þér á Jóhann, það þarf mikið hugrekki til að taka svona ákvörðun sem er mjög umdeild, Eyjamenn hafa allaf átt menn sem þora að berjast fyrir bættum samgöngum, má þar nefna Flugvellina á Bakka og í Eyjum þar held ég að vinur minn Árni Johnsen eigi stæðsta þátt. Ég er sammála þér um það að við skulum fara varlega.Kveðja frá bloggvini1. Hver ber ábyrgð á ef þetta fer allt á versta veg? Það má segja að auðvitað bera þeir menn sem hanna og teikna Bakkafjöruhöfn ábyrgð á sinni vinnu, og fengju líklega mestan skellin. En það eru margir sem koma að ákvarðanatöku um að byggja höfnina og þeir taka þá ákvörðun eftir bestu getu og eftir öllum þeim gögnum sem til eru, þar er ráðherra fremstur í flokki. þér er tíðrætt um ábyrgð Bæjarstjórans, en hann framkvæmir bara það sem bæjarstjórn ákveður, síðan hefur hann sínar skoðanir á málinu eins og þið.
Sigmar Þór Sveinbjörnsson, 26.10.2007 kl. 23:37
Sigmar, það verður aðfara rétt með. Ég nefni bæjarstjóra einu sinni, varðandi ábyrgð það er ekki að vera tíðrætt um hann. Svo varðandi ábyrgð þá finnst mér loða nokkuð við að þeir sem ákveða hlutina beri ekki ábyrgð, heldur menn sem eru lægra settir. Ég stend við það að ekki sé skjól af Eyjum í Bakkafjöru, þó svo að "öldulengdin" þarna sé ekki alveg eins mikil og sunnan við Eyjar, þá brýtur alveg jafn mikið á rifinu eins og Eyjarnar væru ekki til staðar , þú hefur starfað sem stýrimaður og ættir þar af leiðandi að gera þér vel í hugarlund hverskonar aðstæður skapast þarna og víðar. Ekki trúi ég að það sé áætlað að sigla í Bakkafjöru eingöngu þegar sjór er alveg sléttur. Varðandi náttúruöflin, þá virðist það bara vera þannig að við höfum ekki svar við kröftum náttúrunnar nema upp að vissu marki og við erum alltaf að reyna að fara yfir þessi mörk og oftar en ekki hefur það endað með ósköpum. Ég vona bar að Eyjamenn fái sem bestar samgöngur milli Lands og Eyja, verði farið út í Bakkafjöruævintýrið vona ég bara að allt fari vel og ekkert verði af þessu sem ég er hræddur við. Auðvitað þarf hugrekki til að taka svona ákvarðanir, en menn verða þá líka að standa og falla með þeim ákvörðunum sem þeir taka. Kveðja frá bloggvini
Jóhann Elíasson, 27.10.2007 kl. 12:29
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.