Bloggfærslur mánaðarins, október 2009
31.10.2009 | 12:07
ER ÞETTA KANNSKI FYRSTA SKREFIÐ Í AÐ VIÐURKENNA AÐ GJALDEYRISHÖFTIN VORU MISTÖK?????
Afnám gjaldeyrishafta hafið | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
31.10.2009 | 08:48
"HRYÐJUVERKASAMTÖK ÍSLANDS" KOMIN AF STAÐ............
Kæra ákvörðun um Suðvesturlínu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
30.10.2009 | 10:07
Föstudagsgrín
Ungt fólk var, af sitthvoru kyni, bjó á sitthvorum bænum í Skagafirði. Það var stutt á milli bæjanna og eins og gengur og gerist þá var þetta unga fólk að dragasig saman". En það var einn galli á gjöf Njarðar, þetta átti að fara leynt en í sveitinni var símkerfi upp á gamla" mátann eða sveitasíminn eins og við þekkjum sem erum komin um og yfir fertugt. Til þess að engan grunaði neitt gerðu þau með sér samkomulag, að þegar þau mæltu sér mót til að fara í rúmið þá töluðu þau um það í símann að TAKA Í SPIL" eða TAKA SLAG".
Eitt sinn hringdi strákurinn og stakk upp á því að þau hittust til að taka í spil. Stelpan sagðist ekki vera í stuði" og þar með lauk símtalinu. Hún fór svo eitthvað að dútla en fór svo að hugsa að hún hefði nú verið svolítið fljótfær og hringdi í strákinn og sagði að sér hefði snúist hugur það væri ekkert að því að taka að minnsta kosti einn slag.
Nei það gengur ekki" sagði þá strákurinn Ég var að LEGGJA KAPAL".
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 11:12 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
28.10.2009 | 11:15
ÞARF EKKI NEINN "SPEKING" TIL AÐ SJÁ ÞETTA!!!!!!!!
„Skrípaleikur“ að leggja á slíka byrði | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
27.10.2009 | 10:35
ENN OG AFTUR MÁ HEILÖG JÓHANNA EKKI TIL ÞESS HUGSA AÐ STYGGJA BRETA OG HOLLENDINGA......
Breyttur hagvaxtarfyrirvari getur valdið hærri greiðslum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
26.10.2009 | 12:24
HVER ERU SVO RÖKIN HJÁ AGS FYRIR ÞESSUM STÝRIVÖXTUM????????
Segir AGS stunda hér efnahagsleg hryðjuverk | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
26.10.2009 | 10:29
HAMILTON ÞOLIR EKKI SAMKEPPNI!!!!!!!
Heidfeld í sigti McLaren | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Formúla 1 | Breytt s.d. kl. 10:33 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
25.10.2009 | 22:56
DÆMIGERT FYRIR VINNUBRÖGÐ LANDRÁÐAFYLKINGARINNAR!!!!!!!!!
Segja gagnrýni á ný lög fjarstæðukennda | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
23.10.2009 | 21:53
ÞÓ FYRR HEFÐI VERIÐ!!!!!
Í mörg ár og áratugi,hefur stjórnarskráin verið brotin og farið þannig á svig við hana að mörgum manninum hefur blöskrað. Þetta atriði hefur verið nefnt marg sinnis, á alþingi, í blaðagreinum, við lögfróða menn, stjórnmálafræðinga og fleiri aðila sem ættu að þekkja til en hingað til hafa allir daufheyrst við þessu. Nú birti ég aftur hugleiðingar mínar um þessi mál og kannski verða viðbrögðin örlítið meiri núna og fólk átti sig á hve alvarlegt málið er fyrir lýðræðið í landinu.
Er grundvallarbreytinga þörf á stjórnarskránni?
Allt frá okkar fyrstu árum í skóla hefur okkur verið sagt að hin svokallaða þrískipting ríkisvaldsins sé grundvöllurinn að stjórnskipun lýðveldisins Íslands.Eins og allir vita skiptist valdið í: LÖGGJAFARVALD, FRAMKVÆMDAVALD og DÓMSVALD.En eftir að stöðuveitingar ráðherra komust í hámæli, þá fór ég nú að skoða þessa þrískiptingu ríkisvaldsins betur og miðað við þá skoðun þá komst ég að því að skilin þarna á milli eru orðin afskaplega óskýr og sum staðar eru þau bara alveg horfin, hafi þau einhvern tíma verið til staðar. LÖGGJAFARVALD er samkvæmt stjórnarskránni í höndum Alþingis og forseta. Alþingismenn og konur fá umboð sitt frá þjóðinni, til fjögurra ára í senn, þeirra hlutverk er að setja lög sem þjóðin á að fara eftir og forseti veitir þessum lögum samþykki sitt. FRAMKVÆMDAVALD er ráðherra viðkomandi málaflokks og staðfestir forsetinn skipan viðkomandi ráðherra. Viðkomandi ráðherra á að sjá um framkvæmd þeirra laga sem Alþingi setur (Löggjafarvaldið). DÓMSVALD er í höndum dómara. Þannig er þrískiptingu ríkisvaldsins háttað þessum ÞREMUR þáttum á að halda algjörlega aðskildum til að tryggja sem best lýðræði og réttláta meðferð þegna landsins gegn hinu opinbera. En eitthvað virðist þetta hafa skolast til á undanförnum árum og jafnvel áratugum og hægt er með nokkuð góðri samvisku að fullyrða það að þrískipting ríkisvaldsins hafi aldrei að fullu verið til framkvæmdar hér á landi. Þessa fullyrðingu verður að skoða nánar og mun ég gera tilraun til þess hér á eftir.Við skulum byrja á því að skoða LÖGGJAFARVALDIÐ: Á Alþingi sitja 63 fulltrúar kjörnir af þjóðinni, það er óumdeilt, en af þessum 63 þingmönnum eru 12 ráðherrar. Þarna er strax komin skörun. Það er svo tilhögunin á Alþingi, að svokölluð ráðherrafrumvörp njóta forgangs í störfum þingsins, en þetta þýðir að þau frumvörp sem eru borin upp af ráðherra hafa forgang framyfir svokölluð þingmannafrumvörp. Ég tel að þarna sé um að ræða brot á stjórnarskránni. Samkvæmt þrískiptingu ríkisvaldsins eiga ráðherrar EKKI að hafa atkvæðisrétt á Alþingi og spurning hvort þeir eigi yfirhöfuð nokkuð að eiga sæti þar. Það er spurning hvort störf Alþingis yrðu ekki bara skilvirkari ef ráðherrar myndu bara mæta einu sinni í viku eða sjaldnar í fyrirspurnartíma niður á þing? Það er erfitt að skrifa nokkuð sérstaklega um FRAMKVÆMDAVALDIÐ vegna þess að þessi grein fjallar um það hvernig það hefur smám saman verið að taka yfir LÖGGJAFARVALDIÐ og DÓMSVALDIÐ. Það verður ekki um það deilt að FRAMKVÆMDAVALDIÐ er alltaf að verða fyrirferðarmeira í stjórnsýslu okkar Íslendinga. Þá er eftir að fara yfir DÓMSVALDIÐ. Ekki hefur það orðið útundan í þessari þróun. DÓMSVALDIÐ á samkvæmt stjórnarskránni að standa alveg sjálfstætt. En er það alveg sjálfstætt? Ég verð að viðurkenna vankunnáttu mína þar en ég veit ekki hvenær ráðherra byrjaði að skipa dómara, en í stjórnarskránni stendur í 59 grein Skipun dómsvaldsins verður eigi ákveðin nema með lögum (Tilvitnun líkur, leturbreytingar eru mínar), þá er það skilningur minn, samkvæmt þessu,að ráðherra eigi EKKI að skipa dómara og er þá ekki hægt með góðu móti hægt að segja að stjórnarskráin hafi verið brotin í mörg ár eða jafnvel áratugi? Það er öruggleg einhver ástæða fyrir því að það er verið að tala um RÁÐHERRARÆÐI hér á landi. Hve lengi eiga stjórnarskrárbrot að viðgangast án þess að nokkur geri við það athugasemdir?
Lög um Stjórnarráðið endurskoðuð | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
23.10.2009 | 08:59
OG VAR HANN LÁTINN "DÚSA" Í FANGAKLEFA???????
Áhöfn kafbáts handtekin | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Spaugilegt | Breytt s.d. kl. 09:04 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)