Bloggfærslur mánaðarins, mars 2009

SKIPULÖGÐ GLÆPASTARFSSEMI í skjóli laga?????

Eftir að hafa horft á og fylgst með góðri og skeleggri framkomu Ragnars Þórs Ingólfssonar, í Silfri Egils áðan, er ég enn sannfærðari en áður að lífeyrissjóðirnir SÉU SVIPUÐ LOFTBÓLA OG BANKAKERFIÐ OKKAR var og allir vita nú hvernig fór fyrir því.  Þetta er einfaldlega svikamylla sem er að "leika sér" með fjármuni okkar, sem höldum í sakleysi okkar að við séum að "nurla" saman til elliáranna, en svo er sko alls ekki.  Ég bloggaði um þessa "glæpastarsemi" fyrr í vetur sjá hér þá fékk ég nokkuð "blendin" viðbrögð.  Víst er að hugmyndin um lífeyrissjóðina hefur verið góð á sínum tíma en framkvæmdin hefur eitthvað skolast til.


Föstudagsgrín

 

Jónas er harðduglegur maður og vinnur myrkranna á milli, en í frístundum sínum stundar hann íþróttir  af  kappi, blak og innanhússfótbolta, svo að eina góða helgi ákveður Magga, konan hans, að lyfta aðeins skapinu hjá honum og fara með hann út á lífið. Þau klæða sig í sitt besta púss og fara á einn af þessum stöðum þar sem boðið er upp á "listdans". Dyravörðurinn á skemmtistaðnum sér þau koma og kallar til Jónasar: "Góða kvöldið, Jónas. hvernig hefurðu það í kvöld?" Magga verður hissa á þessu og spyr Jónas hvort hann hafi komið þarna áður. "Nei, nei" segir Jónas, " hann er einn af þeim sem ég spila innanhússboltann við." Þau fá sér sæti og þjónustustúlka kemur til þeirra, sér Jónas og segir: "Gaman að sjá þig, Jónas. Gin og tónik eins og venjulega?" Augu Möggu stækka.  "Þú hlýtur að koma hingað oft!" "Nei, nei," segir Jónas. "Strákarnir kíkja stundum hingað inn eftir blakið." Þá kemur nektardansmær upp að borðinu þeirra, íklædd litlu meira en brosinu. Hún faðmar Jónas innilega að sér og segir: "Ætlarðu að fá einkadans eins og venjulega, Jónas?" Magga verður öskureið, safnar saman dótinu sínu og stormar út af skemmtistaðnum. Jónas eltir hana, sér hana fara inn í leigubíl og stekkur inn í bílinn á eftir henni. Magga horfir á hann hatursfullu augnaráði og lætur hann hafa það óþvegið. Þá hallar leigubílstjórinn sér að Jónasi og segir: "Þú hefur náð í eina erfiða í kvöld, Jónas minn."


Ekki eftir neinu að bíða!!!!!!

Skyldu þessar fréttir nægja til þess að fólk sjái að það þarf að halda ákveðnu jafnvægi í hafinu.  Það einfaldlega dugar ekki að leyfa einni tegund að fjölga sér óhindrað á kostnað annarra.  Það má einnig draga þá ályktun af þessu að hafið sé orðið "ofsetið", þ.e.a.s ekki sé nægt fæðuframboð fyrir alla íbúa þess og eins og með vötnin þegar of mikill fiskur er í þeim þarf að "GRISJA".
mbl.is Hlutfall bolfisks í fæðu hrefnunnar hefur aukist
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það er ekki mikið á milli eyrnanna á þessu liði!!!!!!

Eitt af því sem menn tala um er sú breyting sem hefur orðið á svokölluðum "náttúruverndarsinnum".  Eins og menn hafa tekið eftir þá voru þessir aðilar, hérna áður fyrr, þannig að þeir gerðu sér grein fyrir því að það þurfti að lifa í sátt við náttúruna og það yrði gert með því að ekki væri gengið á eina tegund á kostnað annarrar, með öðrum orðum sagt "það yrði að vera jafnvægi í náttúrunni".  En einhvern tíma hafa þessir svokölluðu náttúruverndarsinnar "dottið úr sambandi" í dag vilja þeir (Náttúruverndar-Ayatollarnir) fylla allt af einni tegund án þess að taka nokkuð tillit til þess hvort náttúran beri þessa aukningu eða ekki.  Um þetta höfum við séð mörg dæmi t.d voru heilu byggðalögin lögð í rúst norðarlega í Inúítabyggðum í Kanada þegar "Náttúruverndar-Ayatollarnir" ákváðu að snúast gegn selveiðum þeirra, þeir ákváðu að það yrði að stöðva Grindhvaladráp Færeyinga það gerðu þeir með því að sýna myndir um allan heim af því þegar hvalirnir voru reknir upp á grynningar og aflífaðir, svo fljótt sem verða mátti, eftir því sem "Náttúruverndar-Ayatollarnir" fullyrtu, á villimannslegan hátt.  En þetta skulum við skoða aðeins nánar.  Hvalirnir voru reknir upp á grunnsævi og aflífaðir, þannig að "dauðastríðið" hjá skepnunni varð mjög stutt, en aftur á móti hef ég séð myndir í fréttatímum sjónvarpsstöðvanna og síðast bara í fréttunum í gærkvöldi, þessar myndir eru yfirleitt frá Ástralíu og eru af hvalavöðum sem synda á land.  Af þessum 194 smáhvölum sem syntu upp í gær, það er kannski kaldhæðni örlaganna að þetta skuli vera Grindhvalir sem þannig stranda og "Náttúruverndar-Ayatollarnir" reyna að "bjarga" eru aðeins örfáir sem komast til hafs aftur og þegar þeir sem eftir verða, drepast loksins hafa þeir legið strandaðir í fjörunni í tvo til þrjá sólahringa. Ef hlutfallið verður óbreytt miðað við reynslu undanfarinna ára, verður þremur til fimm hvölum "bjargað" til sjávar og drepast svo nokkrum dögum seinna, vegna hungurs og skaða sem þeir verða fyrir vegna strandsins. Persónulega þykir mér það vera meiri villimennska að láta hvalina deyja svona heldur en sú aðferð sem Færeyingar nota við sínar veiðar, en dæmi nú hver fyrir sig.

"Náttúruverndar-Ayatollarnir" eru vel menntaðir, vel máli farnir og einhverra hluta vegna næðu þeir vel til fjölmiðla.  Einhverra hluta vegna komast þeir upp með það að segja hluti sem ekki standast og það er enginn sem leiðréttir það sem þeir bulla (samanber vitleysuna í sambandi við það hvað hvalaskoðanir séu "blómleg" atvinnugrein).  Hvalveiðisinnar segja bara sín á milli "Ég veit það vel að hvalaskoðunarmenn eru að stórtapa á þessari vitleysu" en málið er að þó að einstaka maður viti að þetta sé "bransi" sem er ekki á vetur setjandi, þá veit almenningur það ekki og er ekki tími til kominn til þess að beita sömu aðferðum í baráttunni og þeir (Náttúruverndar-Ayatollarnir) nota?

Ein rökin sem "Náttúruverndar-Ayatollarnir" nota gegn hvalveiðum Íslendinga, og helstu rökin, eru að ekki séu til markaðir fyrir hvalkjöt.  Auðvitað! Hvalveiðar í atvinnuskyni hafa verið bannaðar í meira en tuttugu ár og auðvitað hefur hvorki verið um að ræða framboð eða eftirspurn þann tíma en það er vitað að eftirspurn er til staðar, markaðinn þarf aðeins að vinna og í það verður farið þegar hvalveiðar í atvinnuskyni verða leyfðar aftur, eins og verður næstkomandi sumar og reyndar hafa Japanir gefið það út að þeir vilji kaupa allt hvalkjöt, sem fellur til.  Svo ekki virðist þurfa að hafa áhyggjur af þeim þætti. Gott dæmi um tilfinningar vegna hvalveiða er að það er mikið talað um að það sé "ómannúðlegt" að skjóta hvali.  Þá spyr ég á móti: Er "mannúðlegt" að ala upp kálfa í "sláturstærð" og senda þá síðan í sláturhús, eða ala upp grísi til slátrunar eða kjúklinga?  Nei það eru engin dráp "mannúðleg" en aftur á móti er ég nokkuð viss um það að við myndum ekki lifa lengi ef við ætluðum alltaf að hugsa um hvað væri "mannúðlegt" og hvað ekki, við þurfum að gera okkur grein fyrir því að við lifum á veiðum og til að lifa af þá þarf að nýta það sem náttúran hefur upp á að bjóða.

Talsmaður Greenpeace vill meina að við Íslendingar ættum frekar að setja peninga í rannsóknir á loftlagsbreytingum en að setja þá í hvalveiðar eða jafnvel í hvalaskoðanir.  Ég veit nú ekki betur en að við setjum nokkuð góðar fjárhæðir í rannsóknir á loftlagsbreytingum en ég vona að engum heilvita manni detti í hug að fara að "ríkisstyrkja" hvalaskoðanir það væri nú bara til þess að lengja í "hengingarólinni" hjá flestum þeim fyrirtækjum sem eru í þeirri atvinnugrein.  Ætli það sé ekki best að leyfa  fyrirtækjunum að fara "yfir um" án allra ríkisafskipta.


mbl.is Reynt að bjarga strönduðum hvölum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stýrivaxtastigið hér á landi var og er mestu efnahagsmistök sem hafa verið gerð!

Svo talar Steingrímur J bara um að það séu einhverjar "vísbendingar" í þá átt að verðbólga minnki og vextir lækki í kjölfarið.  Er þessi Norski "kraftaverkamaður" hans, sem er kominn í Seðlabankann, ekki búinn að gera áætlun um þetta alltsaman?  Eða er hann bara upp á skraut og táknmynd fyrir að vinstrimönnum og mótmælendum tókst að koma Davíð Oddssyni frá?
mbl.is Vextir fara að lækka
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gott fordæmi

Margir myndu segja: "Hann hefur vel efni á þessu" en skítt með það maðurinn sýnir með þessum gjörningi allt aðra hlið á sér en menn hafa gert sér í hugarlund áður.  Margir mættu taka sér þetta til fyrirmyndar og segir okkur að það á ekki að gera sér upp skoðanir á mönnum án þess að vita nokkuð um þá.  Ég viðurkenni það að ég hafði myndað með mér skoðun á Jenson Button, sem greinilega var röng, skömmin er mín. 
mbl.is Button örlátur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kannski var hann að sækja í ÖRYGGI?????

En ef hann hefur líka verið að sækja í hlýju þá hefur hann sennilega ekki verið á réttum stað.
mbl.is Innbrotstilraun á Litla-Hrauni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband