Bloggfærslur mánaðarins, apríl 2010

EKKI NEIN STÓRTÍÐINDI Í ÞESSARI TÍMATÖKU!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!

Þó kom frammistaða Hamiltons á óvart eða réttara sagt hversu illa hann stóð sig miðað við hversu mikla yfirburði hann hafði sýnt á æfingum og ég held að það hafi komið flestum á óvart að sjá Button fyrir framan hann á ráslínunni.  Þá er mjög fróðlegt að skoða frammistöðu Sutils á þessari vertíð, en í öllum keppnunum hingað til hefur hann verið þó nokkrum sætum fyrir framan liðsfélaga sinn Luizzi og núna varð engin breyting þar á Sutil komst í lokaumferðina, þó svo að hann næði "aðeins" 10 sætinu en Luizzi varð í því 17.  7 sæti á milli liðsfélaga er nokkuð mikið en ef er skoðað bilið milli Rosbergs í fjórða sæti og Schumachers í því níunda, þá verður að segjast eins og er að Schumacher verður að fara að hysja upp um sig þetta gengur ekki svona lengur.  Annars voru allir, sem talað var við á brautinni, vissir um að á einhverjum tímapunkti í keppninni á morgun myndi rigna og það gerir keppnina bara meira spennandi og verður fróðlegt að fylgjast með.


mbl.is Vettel sýndi öryggi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

MJÖG GÓÐ ÚRSLIT FYRIR ÍSLAND!!!!!!!!!!!!!

Miðað við hvernig liðið spilaði í fyrri hálfleik verð ég að viðurkenna að ég var orðinn ansi svartsýnn þegar Frakkarnir voru komnir með átta marka forystu.  En strákarnir eiga sko heiður skilinn fyrir að gefast ekki upp og að ná jafntefli er alveg meiriháttar.  Það má búast við hörkuleik á morgun, Frakkar ætla ekki að láta taka sig svona aftur og "strákarnir okkar" ætla sér náttúrulega að vinna ólimpíu - og heimsmeistarana á heimavelli og sýna fram á að þetta er EKKI óvinnandi lið þó svo að þetta sé talið besta handboltalið allra tíma.
mbl.is Jafntefli gegn heimsmeisturunum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

HVER VEGNA MÁ EKKI GERA ÞETTA SAMKOMULAG OPINBERT???????

Er þetta svo viðkvæmt mál að EKKI EINU SINNI ALÞINGIog nefndir þess megi sjá hvað er verið að skuldbinda þjóðina?????? Þá vil ég minna á það að samkvæmt stjórnarskránni er ÓHEIMILT að skuldbinda  þjóðina ÁN SAMÞYKKIS ALÞINGIS en stjórnarskráin eða lög um ráðherraábyrgð virðast skipta þau Heilaga Jóhönnu og Steingrím Júdas afar litlu máli.
mbl.is Lán AGS ekki háð Icesave
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

HEFUR STEINGRÍMUR JÚDAS UMPOÐ TIL AÐ GEFA SVONA VILJAYFIRLÝSINGAR?????

Þetta mál þarf alþingi Íslendinga að fara rækilega yfir og jafnframt verður að fara fram rannsókn á því hvort maðurinn ætli sér bara að koma á einræði hér á landi, eins og margar embættisfærslur hans undanfarið benda til??????


mbl.is Segja Ísland ætla að greiða með vöxtum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

NÚ ÞEGAR HEFUR ASKA FALLIÐ Í SKOTLANDI...............

Á SKY news var fólk með asma eða aðra öndunarfærasjúkdóma varað við því vera utandyra en á næstu dögum er reiknað með því aska falli í fleiri löndum.


mbl.is WHO varar við öskufalli í Evrópu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

NÚ ERU HVALVERNDUNARSINNAR ORÐNIR ALVEG RÖKÞROTA...........

Og klingja sífellt á gömlu tilfinningarökunum, sem hafa gengið ágætlega hingað til.  En þegar þeir sáu að þeir voru að tapa áróðurstríðinu þá var ákveðið að skerpa á lyginni um að ekki væri hægt að selja hvalkjötið og allir væru hættir að borða þetta einnig að herða á "AÐGERÐUM" svo ekki yrði mögulegt að flytja kjötið eftir venjulegum leiðum.  Hvað sem öllu líður þá hefur aukin harka færst í þessar deilur.  Það er dæmi um tilfinningarnar sem eru í þessu að þessu hvalverndarliði finnst allt í lagi að slátra beljum og borða þær en að skjóta hvali og borða þá má alls ekki, þeir kera sér ekki nokkra grein fyrir því, miðað við málflutninginn, að uppruni kjötsins sem þeir borða ER EKKI Í KJÖTBORÐUM STÓRMARKAÐA.
mbl.is Hverfandi líkur á samkomulagi um hvalveiðar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ÁHRIFIN ERU MEIRI EN NOKKURN MANN GRUNAR!!!!!!!!!!!!!!!!

Það var nú svolítið skondið að fréttakonan á SKY, sem fjallaði um þetta endaði fréttina á því að segja að það væri KALDHÆÐNISLEGT að Keflavíkurflugvöllur væri EKKI lokaður vegna öskufalls.


mbl.is SKY: Óvíst með flug þar til á morgun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

TALANDI UM "SKÍTLEGT EÐLI".

Hvað er eiginlega hægt að ganga langt í sparnaði og hvar á að segja STOP??????  Eftir þessari frétt virðist enn vera nokkuð langt í MÖRKIN, að mati "skítbuxnanna" sem reka Ryanair.
mbl.is Nei hingað og ekki lengra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

LOKSINS ÉTUR HÚN OFAN Í SIG BULLIÐ OG VITLEYSUNA!!!!!!!!!!!!!!!!!

Og staðfestir um leið fljótfærni og flumbrugang sinn.  Þau Össur eru svosem ágæt saman því þau eru mjög svipurð hvað varðar fljótfærni og flumbrugang munurinn er bara sá að Össur er húmoristi og á það til að vera skemmtilegur en svoleiðis lagað er ekki að hrjá Álfheiði.  En verður ekki að gera kröfu til þess að ráðherrar sýni lágmarks hæfileika til mannlegra samskipta?????
mbl.is Ekki tilefni til áminningar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

BRETAR HAFA JÚ SÍN ÚRRÆÐI!!!!!!!!!!!!!!!!!!!

Og beita þeim, þeir setja bara HRYÐJUVERKALÖG á Ísland vegna eldgossins og svo er  bara að bíða eftir því hvort þetta úrræði virki.  Það er ekki hægt að horfa upp á það aðgerðarlaust að Íslendingar "eyðileggi" ferðaþjónustu landsins eins og efnahaginn.
mbl.is Flugumferð bönnuð um Bretland
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband