Bloggfærslur mánaðarins, apríl 2010

"EKKI NÁTTÚRURHAMFARIR"????????

Var að renna yfir nokkur af Norsku dagblöðunum og að sjálfsögðu var þar helsta fréttin að ÖLLU flugi hefði verið aflýst í Noregi.  En það sem stakk mig mest í þessu var að í Dagbladet var frétt þess efnis að TRYGGINGAFÉLÖG borga ekki skaða um 1.200 flugafarþega, á þeim grunni að hér sé EKKI um náttúruhamfarir að ræða, SJÁ HÉR. Ef eldgos er EKKI náttúruhamfarir þá veit ég ekki hvað náttúruhamfarir eru?????  Ætli Brown setji HRYÐJUVERKALÖGá Ísland vegna eldgossins?????


mbl.is Öllu flugi um Lundúnir aflýst
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"NÚ ER SKO KOMINN TÍMI TIL AÐ BIÐJA GUÐ AÐ HJÁLPA SÉR"

Þessi orð séra Sigvalda úr Manni og konu, eru fleyg og túlkun Brynjólfs Jóhannessonar er með öllu ógleymanleg.  Þessi orð rifjuðust upp fyrir mér áðan þegar mér varð það á að fara að horfa á beina útsendingu frá Alþingi, þar sem umræðuefnið átti að vera skýrsla rannsóknarnefndar Alþingis.  Það er skemmst frá því að segja að ENGINN þeirra þingmanna sem tók til máls virtist hafa LESIÐ skýrsluna, einhverjir höfðu kynnt sér efni hennar smávegis, enda báru umræðurnar þess merki.  Aldrei á ævi minni hef ég heyrt annað eins bull og kjaftæði og það EINA sem allir voru sammála um var að skýrslan væri góð og margt í henni væri mjög merkilegt.  Maður fer nú að velta fyrir sér til hvers í ands............ erum við að halda þessu uppi allt árið, svo er þetta lið í fríi meira en hálft árið?????
mbl.is Dagskrá Alþingis óbreytt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

MARGRA MÁNAÐA VINNA ÚT UM GLUGGANN!!!!!!!!!!!!!!!

Þetta "VANDLEGA" athugaða mál tók nú ekki langan tíma.  Það varð með einhverjum ráðum að koma í veg fyrir að "VISSIR" menn og konur yrðu saksótt og til þess voru "notaðir" nokkrir þingmenn/konur sem var búið að tala til.  Þeir voru snöggir að afgreiða SKÝRSLUNA. þessi eftirvænting vegna útkomu hennar var kannski alveg óþörf?????
mbl.is Ákvæði um ráðherraábyrgð duga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

MEÐ ÖÐRUM ORÐUM:::::::::::::::::::::::::::::::::::::

Dagar víns og rósa eru liðnir nú þarf að bretta upp ermar og fara að gera eitthvað að gagni.
mbl.is Saksóknari þarf að endurraða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

GERÐU ENDURSKOÐENDUR EKKI ATHUGASEMD VIÐ ÞETTA???????

Enn einu sinni  spyr maður sig að því: HVERT ER EIGINLEGA HLUTVERK ENDURSKOÐENDA?????  Eftir þessu að dæma eiga endurskoðendur bara að fara niður á tjörn að skoða ENDUR.
mbl.is Uppfærðu verðmat Iceland þvert á þróun hlutabréfamarkaða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

EN HVER VAR ÞÁ TILGANGURINN??????????????

Jú tilgangurinn með því að viðskiptabankarnir fóru að veita húsnæðislán var að knésetja Íbúðalánasjóð og koma honum út af húsnæðislánamarkaðnum.  Sem betur fer tókst það EKKI og fyrir það geta landsmenn verið óendanlega þakklátir.  Sérstaklega getur landsbyggðarfólk verið þakklátt því hefði viðskiptabönkunum tekist þessi áform sín, má ganga út frá því að það hefði verið banabiti fyrir stóran hluta landsbyggðarinnar og óvíst að stjórnvöld hefðu haft nokkurt bolmagn eða getu til að lagfæra þetta aftur.  Þannig að fólk getur sagt GUÐI SÉ LOF FYRIR ÍBÚÐALÁNASJÓÐ.
mbl.is Húsnæðislánin voru „tómt rugl"
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

EN VAR "REFSINGIN" EITTHVAÐ Í SAMRÆMI VIÐ BROTIÐ????????????

Ég held að allir séu sammála um að svo hafi ekki verið.  Mér þykir ríkisstjórn Geirs Haarde hafa sýnt alveg ótrúlegan undirlægjuhátt og aumingjaskap í þessu máli, að hafa ekki farið með málið beint fyrir alþjóðlega dómstóla.  En ekki er nú stórmannlegri framkoman hjá Steingrími Júdasi, þegar hann var í stjórnarandstöðu hafði hann uppi STÓR orð um þetta óyndisverk Breta og hvernig ríkisstjórn Geirs Haarde hefði staðið "hnípin og aðgerðarlaus" hjá, væri með öllu óverjandi og landi og þjóð til mikillar skammar.  En svo tekur hann sjálfur, ásamt Heilagri Jóhönnu, við stjórnartaumunum og ekki hefur nokkur skapaður hlutur verið gerður í þessum málum ennþá, það er ekki eins og það hafi ekki verið nægur tími
mbl.is Vildu refsa Íslendingum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ÞAÐ HEFUR ÞÁ VERIÐ SMÁVEGIS ÞARNA UPPI HJÁ HONUM..........................................

Ekki hélt ég að það ætti fyrir mér að liggja að bera í bætifláka fyrir "dýralækninn" en með þessum "litlu" skrifum sínum hefur hann sýnt mun meira af sér en "jarðfræðingurinn", sem nú er fjámálaráðherra hefur sýnt af sér ALLAN þann tíma sem hann hefur setið á ráðherrastóli.
mbl.is Ekkert að marka það sem þessi maður segir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ÞETTA GEFUR BARA AUGA LEIÐ!!!!!

Ég get bara ekki með nokkru móti skilið alla þessa umfjöllun um gengi Schumachers.  Menn hafa gengið svo langt að segja að EKKERT gangi hjá honum.  Það eru búin þrjú mót, þar af féll hann úr keppni í síðasta móti en er samt sem áður um kominn með einhver stig, sem þætti mjög góður árangur hjá einhverjum.  Menn ættu að fara að einblína meira á formúluna sem slíka og hætta að spá bara í einn einstakling.  Hann á bara eftir að ná almennilega tökum á bílnum.
mbl.is Haug: Schumacher mun sigra þegar bíllinn getur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ER ÞAÐ EKKI VEGNA ÞESS AÐ ÞETTA ERU GLÆPASÖGUR??????????????

Sögurnar eru margar og sögupersónurnar einnig  og söguþráðurinn er lyginni líkastur....................
mbl.is Skýrslan slær glæpasögunum út
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband