Bloggfærslur mánaðarins, maí 2010

ER FORMANNSSLAGURINN HAFINN????????

Eins og allir vita þá er LANDRÁÐAFYLKINGIN formannslaus en enginn almennilegur kandídat er í augsýn.  Flestir vilja meina að þessir tveir horfi hýru auga til formannsstólsins sumir vilja meina að þessir tveir fái að slást um sætið í friði fram að síðustu metrunum en þá komi Össur aðvífandi og segi: " Hættið þessu bulli strákar það er ÉG sem ræð á skútunni".  En ætli þessir tveir séu byrjaðir alla vega í upphitun????
mbl.is Dagur gagnrýnir Árna Pál
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

EITTHVERT BESTA LAG GEORGE HARRISSON - MEISTARALEGUR FLUTNINGUR....

Þær voru margar perlurnar sem George Harrisson samdi í gegnum tíðina og ég held að það sé ekki fjarri lagi að þetta hafi verið í hópi þeirra betri.  Þessi upptaka er frá minningartónleikum sem voru haldnir honum til heiðurs árið 2003.  Þarna eru stórkostlegir tónlistarmenn á ferð eins og Eric Clapton, Jeff Lynn, Ringo Starr, Paul McCartney og ekki má gleyma Billy Preston sem fer þarna alveg á kostum .  Mjög líklega voru þetta síðustu tónleikarnir sem hann spilaði á því hann lést skömmu eftir þetta.  Það sem mér finnst merkilegast þarna er að lokalaglínurnar úr Bítlaslagaranum Hey Jude hljóma í þessu lagi og ekki eiga þessir hljómar verr við þetta lag eða hvað finnst ykkur????


ERU ÞETTA EKKI FULL HARKALEG VIÐBRÖGÐ???????????

Sko Ices(L)ave má ekki hafa þau áhrif að Hollendingar verði bara teknir, hvar sem til þeirra næst og þeim hent í fangelsi!!!!! Smile
mbl.is Hollendingarnir lausir úr haldi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ÞÁ GETA SAMRÁÐSFÉLÖGIN HÉR FARIÐ AÐ HÆKKA AFTUR!!!!!!!!!!!!!!!!

Þetta er náttúrulega ekki bjóðandi að þeir skuli neyðast til að LÆKKA verðið á bensíninu en sem betur fer, fyrir þá, varir það ástand  ekki lengi því það er útlit fyrir að HÆKKUNARFERLIÐ geti hafist á ný.  Og þetta látum við bjóða okkur´trekk í trekk.
mbl.is Hráolía hækkar í verði á ný
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

STAÐFESTIR BREYTINGAR Í HAFINU.................

En ekki breytir HAFRÓ neitt sínu meira en 30 ára gömlu togararalli (haugaralli) í samræmi við þær breytingar sem hafa orðið.  Enn er notast við sömu aðferðir og notaðar voru fyrir meira en 30 árum.  Starfsaðferðir HAFRÓ, við stofnstærðarmat á botnfiski á Íslandsmiðum, eru rannsóknarefni út af fyrir sig og þarf engan að undra það að fiskistofnanir "MINNKI" alltaf hjá HAFRÓ.  Það er vitað að fiskurinn er með sporð og notar hann óspart til að komast á milli staða og fer þangað sem frekar er einhver von um að  eitthvað æti sé en heldur sig EKKI á togslóð 223 kl 17.23 23 mars 2010 og meira en 30 ár þar á undan. 
mbl.is Sandhverfa veiðist í Húnaflóanum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

GRÁTT GAMAN...............

Nú eru menn alveg að tapa sér..............
mbl.is Besti flokkurinn stærstur í Reykjavík
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

HVERNIG VEITTU GJALDEYRISHÖFTIN KRÓNUNNI SKJÓL?????????????

Og það furðulega er að ALDREI ganga blaðamenn eða neinir aðrir fjölmiðlamenn á hann til að gera grein fyrir bullinu í sér.  Er það þannig að hann njóti einhverrar sérstakrar verndar, er kannski litið á stjórnarráðið sem verndaðan vinnustað????
mbl.is Gríðarleg sóun vegna gjaldeyrishafta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ÞVÍ VAR EKKI HÆGT AÐ GERA ÞETTA ÞEGAR UMRÆÐAN UM ÞESSI MÁL VAR SEM MEST??????

Eru ekki sömu RÖK sem eiga við núna og þá????  Hvað í ósköpunum hefur breyst????  Er ekki eina breytingin sú að Finnur Sveinbjörnsson er að hverfa úr bankastjórastólnum og var hann ekki meðal þeirra sem fékk þessa niðurfellingu?????
mbl.is Gjafagerningur sem hefur áhrif á stöðu annarra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

TIL HAMINGJU MEÐ DAGINN!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!

Í dag er þjóðhátíðardagur Noregs og vil ég nota tækifærið og óska öllum Norðmönnum, hvort sem þeir eru búsettir í Noregi eða annars staðar svo og Íslendingum sem eru búsettir í Noregi,  til hamingju með daginn og velfarnaðar í framtíðinni.

ÞESSARI HELGI VILL ALONSO SENNILEGA GLEYMA..................

Tvisvar sinnum um helgina hefur Alonso verið refsað fyrir að halda ekki fullri einbeitingu í Monaco og að mínu mati var örugglega sárari seinni "refsingin" fyrir hann en sú fyrri,  það hefur nú ekki verið mjög kært á milli þeirra tveggja í gegnum tíðina.  Vissulega eiga dómara eftir að úrskurða um framúraksturinn hjá Schumacher í restina en að mínum dómi var hann eðlilegur Alonso hreinlega sofnaði á verðinum og þetta voru afleiðingarnar. Þetta atvik ætti að kenna honum að keppninni er EKKI lokið fyrr en flaggið fellur.  Yfirburðir Red Bull voru algjörir í þessari keppni í rauninni var enginn sem gat ógnað þeim í fyrsta og öðru sæti.  Kubica gat náð Vettel en það er nokkuð annað að ná en að komast framúr, sérstaklega á þessari braut þá sýndi Alonso það nokkuð oft hversu frábær ökumaður hann er en eitthvað hefur sú frammistaða kostað því í restina gerði hann mjög alvarleg mistök sem kostuðu hann sæti.  Ekki riðu Williams-menn feitum hesti frá keppninni, fyrsti maður til að falla úr keppni var Hulkenberger og svo um miðja keppnina var komið að Barichello en báðir féllu út vegna bilana í bílunum og var Bairichello heppinn að sleppa óskaddaður út úr sinu atviki, ég er ekki viss um að tæknimenn Williamsliðsins hafi verið mög kátir þegar hann kastaði stýrinu í götuna svo Trulli gæti keyrt yfir það.  En hvað sem öllu líður var þetta skemmtilegur kappakstur það eina sem skyggði á var að öryggisbíllin skyldi koma fjórum sinnum út, það hefur verið verst fyrir Webber því í öll skiptin var hann búinn að byggja upp nokkuð þægilegt forskot, en svona er kappaksturinn og ég get varla beðið eftir næstu keppni.


mbl.is Webber vinnur örugglega annan sunnudaginn í röð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband