Bloggfærslur mánaðarins, maí 2010
7.5.2010 | 16:20
SKO MINN MANN - HANN ER AÐ "VOLGNA"!!!!!!!
Mig grunaði að það væri aðeins tímaspursmál hvenær hann færi að sýna "gamla" takta. Nú er bara að sjá hvað hann gerir í tímatökunni á morgun og keppninni á sunnudag.
Vettel og Red Bull svara fyrir sig | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Og þá kemur væntanlega í ljós hver sagði hvað og hvenær en sjálfsagt nær Heilög Jóhanna að láta "léttadrenginn" sinn kjafta sig frá málinu!!!!!!!
Formaður bankaráðs krafinn svara | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
7.5.2010 | 07:42
Föstudagsgrín
- Hefur þú orðið svo fullur að þú hafir kysst konu á naflann??
- Já, blessaður vertu,,,,,mikið fyllri...........
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
6.5.2010 | 15:48
ER LOKSINS EITTHVAÐ AAÐ FARA AÐ GERAST??????????????
Það er nú ekki mikið hægt að segja um þessa frétt nema ég held að flestum finnist hún minnst einu ári of seint á ferðinni!!!!!!!!!!!!!
Hreiðar Már handtekinn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
6.5.2010 | 15:10
ÞETTA ER LYGILEG UMRÆÐA!!!!!!!!!!!!!!!!
Og það er að bera í barmafullan lækinn að bæta hér nokkru við. En finnst mönnum það ekkert athugavert að Heilög Jóhanna VILL ekki tjá sig um málið og á meðan liggur Lára V.Júlíusdóttir undir því að segja ósatt???? Svo til þess að hella enn meiri olíu á eldinn, þá lætur Heilög Jóhanna senditíkina sína, hinn mjög svo trúverðuga skattsvikara, sem er aðstoðarmaður hennar, segja að hún hafi engin loforð gefið???? Ja einhversstaðar hefðu menn verið "GRILLAÐIR" fyrir svona vinnubrögð!!!!
Segist engin loforð hafa gefið | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
6.5.2010 | 13:11
HVAÐ LIGGUR ÞARNA Á BAKVIÐ?????
Er LÍÚ-klíkan búin að ná sínu fram???? Það er öllum ljóst og hefur verið lengi að skuldastaða sjávarútvegsins er slæm en það hefur ekki farið fram nein vitræn umræða fram um það hvernig standi á þessu, hverju er um að kenna og hvernig eigi það leysa þetta vandamál. Eina sem heyrist er að ef það koma fram einhverjar tillögur um að hreifa eitthvað við "GJAFAKVÓTAKERFINU" þá verðá LÍÚ og "taglhnýtingar" þeirra alveg "útfjólubláir" af heilagri vandlætinguog byrja með sitt harmakvein og fundarherferðir út um allt land til þess að verja þetta SKRÍMSLI sem er búið að leggja mörg sjávarþorp á landinu í rúst og þær verða fleiri sjávarbyggðirnar sem fara, verði EKKERT að gert. Kannski finnst Birni Vali og fleirum MIKILVÆGARA að vernda hagsmuni örfárra kvóta"eigenda" en margra byggða í landinu??????????????
Björn Valur: Fyrningaleiðin ófær | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
6.5.2010 | 11:13
HVAÐ ER ÓMÁLEFNALEGT VIÐ GAGNRÝNINA???????????????
Þvert á móti UNDIRSTRIKA tölurnar frá Viðskiptablaðinu þá óstjórn, spillingu og og hagsmunapot, sem átt hefur sér stað innan stjórna lífeyrissjóðanna árin fyrir HRUN. Að halda því einnig fram að HRUNIÐ á Íslandi eigi EKKERT sameiginlegt með kreppunni í Grikklandi, er eins og að halda því fram að tunglið sé úr osti og sólin köld. Svo bítur hann hausinn af skömminni með því að halda því fram að lífeyrissjóðirnir bjargi okkur úr kreppunni???? Ég hjó sérstaklega eftir því að hann sagði að lífeyrissjóðir Á VEGUM Samtaka Atvinnulífsins og Verkalýðshreyfingarinnar hefðu orðið fyrir gagnrýni fjölmiðla og almennings. Ég veit EKKI til þess að Samtök Atvinnulífsins eig aðild að NEINUM lífeyrissjóði launamanna. Þarna á hann greinilega við lífeyrissjóðinn Gildi , en SA hefur með klækjum komið sér í stjórn þar og annarra lífeyrissjóða SJÁ HÉR og þetta segir hann án þess að blikka auga. En það sem stendur upp úr í þessari grein er að hann segir að gagnrýnin sé ÓMÁLEFNALEG en lætur þess EKKI getið í hverju þetta ÓMÁLEFNALEGA sé fólgið........ Er kannski komið "skothelt" gler í glerhúsið hans????
Segir gagnrýni á lífeyrissjóði ómálefnalega | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
5.5.2010 | 23:04
HVAR ER UMBURÐARLYNDIÐ SEM PRESTAR BOÐA Á SUNNUDÖGUM????
Eða er það bara eingöngu í gildi þegar er talað úr predikunarstólnum við hátíðleg tækifæri????? En sem betur fer, verð ég að segja, þá eru ekki ALLIR prestar á Íslandi, sem tilheyra hinum "fornu, miðaldasinnuðu og bókstafstrúuðu svokölluðum SVARTSTÖKKUM", það hafa nokkrir prestar lýst yfir stuðningi við frumvarp dómsmálaráðherra, um ein hjúskaparlög á Íslandi. Það er alveg með ólíkindum að nú árið 2010 skuli svoleiðis ofsatrúarlið og afturhaldsgengi halda þjóðkirkjunni í gíslingu. Er ekki tími til kominn að aðskilja ríki og kirkju?
Vilja ein hjúskaparlög á Íslandi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
5.5.2010 | 15:22
ÞÁ HLÝTUR BENSÍNIÐ AÐ FARA AÐ HÆKKA HÉR!!!!!!
Það virðist í það minnsta vera "tendensinn" að ef verð HÆKKAR á heimsmarkaði þá hækkar verðið hér og líka ef það LÆKKAR á heimsmarkaði þá hækkar verðið hér líka .
Heimsmarkaðsverð á olíu lækkar mikið | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
4.5.2010 | 21:28
HÆTTULEGA ÖRUGGT!!!!!!!!!!!!!!!
Haukarnir höfðu hreinleg ALGJÖRA yfirburði í kvöld, þeir voru betri á öllum sviðum nema markvarslan var nokkuð lengi í gang en hún kom svo um munaði í seinni hálfleik. Ég vona bara að Haukarnir verði svona rosalega góðir á fimmtudaginn og hirði bikarinn en mér er svosem nokkuð sama þótt það verði að bíða þar til í fimmta leiknum á Ásvöllum.
Öruggur sigur Hauka | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)