Bloggfærslur mánaðarins, maí 2010

ÞYKIST BARA EKKERT VITA!!!!!!!!!!!!!!!!!

Heldur hann að það þýði eitthvað að segja við almenning, þegar allt er komið í óefni, að hann hafi ekkert VITAÐ um samkomulag Heilagrar Jóhönnu og seðlabankastjóra?????  Enda ROÐNAÐI hann ekkert þegar hann sagðist ekkert vita, það er sagt að hann ROÐNI ef honum verður það á að segja SATT.
mbl.is Hækkun kemur ekki til greina
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

BROWN OG HEILÖG JÓHANNA EIGA ÞÁ ÝMISLEGT SAMEIGINLEGT!!!!

Enda tilheyra þau bæði þessari "sósíaldemókrataklíku" sem heimsbyggðin virðist loksins búin að fá nóg af.  Þetta smellpassar alveg Brown er bresku þjóðinni til skammar og Heilög Jóhanna þeirri Íslensku, þetta lið er bara alveg á rangri hillu í lífinu fyrir það fyrsta áttu þau alveg að láta stjórnmálin í friði.
mbl.is Segir Brown versta forsætisráðherra sögunnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

AÐ NOKKRUM MANNI SKULI DETTA Í HUG AÐ KOMA MEÐ SVONA FULLYRÐINGAR....

Það sér það hver heilvita maður að það er EKKI TIL NEITT Í HLUTABRÉFAVIÐSKIPTUM SEM HEITIR ÁHÆTTULAUS viðskipti alveg eins og það er ekki til NEITT í byggingum sem heitir VIÐHALDSFRÍTT.  Það er hægt að lágmarka áhættuna í hlutabréfaviðskiptum og það er einni hægt að lágmarka viðhald bygginga en það er EKKI hægt að gera áhættuna og viðhaldið að núlli.  Ég er nú utan af landi og hef oft heyrt þetta "með þessa andskota að sunnan" og sjálfsagt tekið þátt í þessu kjaftæði en þegar menn kenna "jakkafataklæddum mönnum úr Reykjavík" um eigin heimsku og trúgirni er einum of langt gengið í HREPPARÍGNUM.
mbl.is Sögðu að lán til stofnfjárkaupa væru áhættulaus
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

HVER ER EIGINLEGA TILGANGURINN MEÐ ÞVÍ AÐ FALSA GENGIÐ?????

Fari maður erlendis og kaupi maður t.d evrur eru þær keyptar á gengi sem er skráð af Seðlabanka Íslands.  Svo þegar maður kemur erlendis, þá fer maður með þessar sömu evrur og selur þær fyrir Íslenskar krónur og þá fær maður u.þ.b tvöfalt það verð fyrir þær sem greitt var á Íslandi???!!??  Eru stjórnvöld að "fela" raunverulega stöðu efnahagsmála hér á landi, hver getur tilgangurinn annars verið????
mbl.is Evran 170 krónur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ÞAÐ RÉTTLÆTIR ALVEG UPPSAGNIRNAR!!!!!!!!!!!!

Að enginn leikari hafi verið meðal þeirra sem sagt var upp segir ekkert annað en að Þjóðleikhússtjóri álítur að leikarar tilheyri einhverjum ósnertanlegum elítuhópi.  ER ÞAÐ SVO?????
mbl.is Tveimur sagt upp í Þjóðleikhúsinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ÞETTA ER VISSULEGA RÉTT HJÁ HONUM!!!!!!!!!!!!!!!

En hefði hann þá ekki átt að notfæra sér þessi forréttindi og gera eitthvað af viti til að rétta efnahagslífið við??? Nei hann gerði það ekki heldur hélt hann að allt myndi lagast við það að hækka skatta og gjöld á fólk sem barðist við að reyna að lifa á því litla sem það hafði fyrir.  Ef við hefðum verið svo álánsöm að vera gengin í ESB og búin að taka upp evruna, áður en hrunið skall á, hefði hagstjórnin verið í höndum evrópska seðlabankans og við hefðum ekki haft neitt um það að segja hvaða aðgerða hefði verið gripið til (sem hefði kannski ekki skipt meginmáli í þessu tilfelli).  Því ESB tekur EINGÖNGU tillit til MEÐALTALA í sinni hagstjórn, það er ekki tekið mið af því þótt verðbólga í einu ríki sé mikil það er eingöngu litið á meðaltölin, þeirra mottó er að ef þú ert með aðra löppina í fötu með ísköldu vatni og hina í fötu með sjóðandi vatni þá hefurðu það að MEÐALTALI ágætt!!!!
mbl.is Steingrímur þakkar fyrir krónuna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

HVAÐAN FÁ ÞEIR EIGINLEGA SÍNAR HEIMILDIR??????????????

Var að lesa um þennan atburð í AFTENPOSTEN þar eru hermennirnir orðnir ÁTTA en í frétt mbl.is eru þeir SEX.  Ef mbl.is ætlar að halda áfram að bera okkur fréttir þá er eiginlega lágmarkskrafan að þær séu RÉTTAR.
mbl.is Sex norskir hermenn særðust
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

TRÚÐI MAÐURINN ÞESSU VIRKILEGA????????

Eða fékk hann bara vel borgað fyrir að segja þessa vitleysu????  Ég fékk nú bara "nettan" aulahroll þegar ég horfði á þetta kjaftæði í honum.  Því er haldið fram og það held ég að sé alveg rétt, að upphaf "HRUNSINS" megi rekja aftur til þess tíma þegar fiskveiðistjórnunarkerfið var sett á og svo var það enn betur fest í sessi þegar leyfi var veitt til þess að veðsetja kvótann.  Það er ekki nokkur vafi á því að með þeim gjörningi VORU LÖG BROTIN því það er ósköp einfalt að ekki er hægt að veðsetja það sem maður ekki á.  Því í fiskveiðistjórnunarlögunum stendur það skýrt "AÐ FISKURINN Í SJÓNUM SÉ SAMEIGN ÞJÓÐARINNAR" en samt sem áður fá kvóta"eigendur" leyfi til að veðsetja hann?????  Eiga alþingismenn/konur ekki að gæta þess að lög brjóti ekki í bága við stjórnarskrána, var það gert í þessu tilfelli og mörgum öðrum?????????????

NÚ ER AÐ DUGA EÐA DREPAST.............................

Ég vil nú ekki skrifa undir það strax að endurkoma Schumachers hafi verið mistök, en það verður að segjast eins og er að árangurinn hingað til hefur verið nokkuð langt undir væntingum.  En ég er ekki tilbúinn til þess að afskrifa hann, það eru gerðar óraunhæfar kröfur til hans og er það ekki hluti af því hversu "ílla" honum hefur gengið?  Ég er sannfærður um að hann á eftir að gera góða hluti en ég er þess fullviss að menn bíða ekki endalaust eftir að það verði.
mbl.is Endurkoma Schumacher voru mistök
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

EFTIRLIT, EFTIRLIT OG EFTIRLIT MEÐ EFTIRLITINU..............................

Þetta eftirlitskjaftæði er orðin ein stór hyrstería.  Ólafur Björn Kárason, var að tala um þann fáránleika sem er í gangi með þetta eftirlitsbull sem er núna í kjölfar hrunsins.  Auðvitað þarf að vera ÖFLUGT eftirlit í gangi en það er nú alveg til að toppa fáránleikann að margir aðilar hafi eftirlit með sama hlutnum, þeir komast að mismunandi niðurstöðum, áherslan er misjöfn og þá standa forráðamenn fyrirtækisins frammi fyrir því að ákveða eftir hvorum eftirlitsaðilanum á að fara???  Væri ekki gáfulegra að efla þær stofnanir sem fara með eftirlitið í dag, þannig að þær verði færar um að sinna skyldum sínum heldur en að vera að búa til eitthvað "austantjaldseftirlitskerfi" sem er búið að  sannreyna að er handónýtt og gerir ekkert annað en að vinna skaða og er þar að auki rándýrt?  Það eru held ég allir sammála um að eftirlitið brást í aðdraganda hrunsins en það að bæta við eftirlitsstofnunum, sem ALLAR verða örugglega í fjársvelti, þá væri nær að sjá sóma sinn í að vera með EINA öfluga stofnun og búa almennilega að henni.
mbl.is 200 greiddu arð án heimildar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband