Bloggfærslur mánaðarins, janúar 2011

ENGIN TAKMÖRK FYRIR HVAÐ MENN GETA VERIÐ ÓFYRIRLEITNIR.....

Að nefna það að langur tími sé frá ætluðum brotum, er alveg fyrir neðan allt velsæmi en kannski sýnir það líka að öllum blöskrar hve langan tíma rannsóknin hefur tekið.  En nokkur keimur fannst mér að því að fjölmiðlar séu að reyna að berra blak af sakborningi og jafnvel að afla honum samúðar, alla vega fannst mér fréttin bera keim af því.


mbl.is Engin skilyrði fyrir gæsluvarðhaldi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ÞETTA HEFUR TEKIÐ TÍMANN SINN............

Vonandi að ALLUR þessi tími, sem hefur farið í að undirbúa þessa málshöfðun (RÚM 2 ÁR), renni styrkum stoðum undir málshöfðunina svo hún verði nú ekki byggð á sandi eins og Landeyjahöfn.  Og vonandi gleymist það ekki að þessir menn voru ekkert EINIR AÐ VERKI...................


mbl.is Fjallað um gæsluvarðhaldskröfu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

STÖÐUGLEIKAMARKMIÐ????????

Þarna kemur hún inn á eitthvað sem enginn vissi að væri til.................
mbl.is Gæti hófs í kröfugerð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

HVAÐ SKYLDI ÞAÐ VERA SEM VEKUR UPP BJARTSÝNI HJÁ GUNNARSSTAÐA-MÓRA?????'

Skyldi það vera að það er útlit fyrir að hann sér jafnvel fram á að vinnan fyrir Breta og Hollendinga er kannski að skila sér????? það er jafnvel útlit fyrir að honum sé að takast að láta Íslendinga "kokgleypa" Ices(L)ave.  Það helsta sem hann hefur "afrekað" þann tíma, sem hann hefur verið í stól Fjármálaráðherra, er að HÆKKA skatta og gjöld alveg gríðarlega, skera niður til velferðarmála, næstum hefur honum tekist að stöðva atvinnulífið, hann hefur komið í veg fyrir alla framþróun í landinu, hann stendur fyrir mesta landflótta sem þekkist síðan "vesturferðirnar" áttu sér stað,................. það er svo ótrúlega margt sem hægt er að telja upp en af því sem er komið er ég gráti næst þannig að ég hætti núna (því ef ég held áfram leggst ég bara í þunglyndi).  Það er von að maðurinn sé GRÍÐARLEGA ÁNÆGÐUR með að vera búinn að koma landi og þjóð á vonarvöl!!!!!!!!!!!! 
mbl.is Steingrímur gríðarlega bjartsýnn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ÞAÐ ER ORÐIN STÓRFRÉTT EF HERJÓLFUR SIGLIR Í LANDEYJAHÖFN..

Enn á samt að halda áfram að "henda" peningum í þennan  "drullupytt" sem enginn vill gangast við í dag.................
mbl.is Herjólfur siglir til Þorlákshafnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ÞAÐ ER FYRIR LÖNGU SÍÐAN LJÓST AÐ "INNLIMUNARVIÐRÆÐURNAR" VORU OG ERU BARA VITLEYSA SEM ÞARF AÐ SNÚA OFAN AF.............

Með öðrum orðum: "ÞAÐ ER EKKERT ANNAÐ Í STÖÐUNNI EN AÐ HÆTTA ÞESSARI VITLEYSU STRAX OG ÞÓ FYRR HEFÐI VERIÐ".  það er fyrir löngu síðan búið að gera það ljóst, það var þegar stækkunarstjóri ESB (ég man ekki hvað hann heitir, enda skiptir það ekki máli), stoppaði Utanríkisráðherrann okkar af í bullinu og sagði að það yrðu ENGAR undanþágur veittar til Íslands í þessum aðildarviðræðum.  Enda er það alveg á tæru að ÖLL aðildarríki ESB lúta Rómarsáttmálanum og frá honum eru EKKI VEITTAR NEINAR UNDANÞÁGUR, ný ríki fá oftast einhvern AÐLÖGUNARTÍMA en undanþágur eru ekki veittar.  Það var mjög fróðlegt og gott viðtalið við Alfreð Gíslason í þættinum hjá Þórhalli Gunnarssyni í gærkvöldi.  Þar fannst mér Alfreð nefna mjög góð og sterk rök fyrir því af hverju Ísland ætti EKKI að ganga í ESB.
mbl.is Viðræður við ESB taldar komnar í algjört öngstræti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

NÚ ER AÐ HRÖKKVA EÐA STÖKKVA.................................

Þetta kjaftæði "haltu mér slepptu mér" getur ekki gengið öllu lengur, vilji "þremenningarnir" láta taka eitthvað mark á sér.  Beri ekki eitthvað til tíðinda mjög fljótlega má búast við að þetta upphlaup þeirra endi eins og sagan "Úlfur, úlfur", það vita allir hvernig sú saga endaði.  Það má einnig segja að þetta fólk sé helsta vona Íslendinga um að losa okkur við þessa skaðvalda, sem eru í ríkisstjórn núna. 
mbl.is Bregðast við málflutningi Árna Þórs
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Á ÞÁ AÐ FARA AÐ REYNA AÐ MOKA YFIR SKÍTINN??????

Og reyna að réttlæta að stefna flokksins var virt að vettugi??????  Það á eftir að verða hasar hjá Gunnarsstaða-Móra og attaníossum hans...............
mbl.is Vinstri grænir boða til félags- og stjórnmálafunda
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ÞAÐ ER LÍKLEGT AÐ ÞAÐ SÉ EINHVER ÁSTÆÐA FYRIR ÞESSU UPPHLAUPI....

Sendiherra Bandaríkjanna hlýtur að gefa uppi, hvað liggur þarna á bak við, þegar hann kemur til Össurar. 
mbl.is Lögmaður Assange vill ná tali af Birgittu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

EN SAMT??????????????????

Styður hún þessa ríkisstjórn.............  Er ekki ákveðinn tvískinnungur í þessu hjá henni og bara þremenningunum yfirleitt????  Og þá á ég nú sérstaklega við Ásmund Einar Daðason (þessi sem er með "kápuna" á báðum öxlum í Evrópumálunum), hann er formaður Heimsýnar og lætur jafnframt teyma sig áfram í aðlögunina, á asnaeyrunum......  Ekki veit ég fyrir hvað þetta fólk stendur og á meðan þau gera ekkert til að standa á sinni stefnu og stefnumálum og láta bara "traðka" á sér þá hefur þetta fólk EKKI minn stuðning..............


mbl.is Þjóðin klofin í fylkingar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband