Bloggfærslur mánaðarins, júlí 2011

HVERS VEGNA AÐ BYRJA Á EINHVERJUM TILRAUNUM NÚNA??????

Að maðurinn ætli að fara að ræða eitthvað af HREINSKILNInúna, nokkuð sem hann hefur aldrei gert hingað til.  Finnst mönnum hann ekki vera alveg nógu og mikið til skammar fyrir Íslenska þjóð þegar hann segir og gerir hlutina sem hann þekkir (að fara í kringum sannleikann og beita blekkingum), heldur ætlar hann að fara að gera nokkuð sem hann hefur ALDREI gert áður, að vera hreinskilinn, sem hann klúðrar örugglega??????
mbl.is Fer til Gasa í dag
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ENURSPEGLAR "HEIFTÚÐUGAN" ÁGREINING INNAN RÍKISSTJÓRNARINNAR.........

Nokkuð oft, hafa þau skötuhjúin Heilög Jóhanna og Össur, gert tilraunir til að koma Jóni Bjarnasyni út úr "ríkisstjórn fólksins" en eins og sést þá hafa þau ekki haft árangur sem erfiði.  Þó má gera ráð fyrir að sókn þeirra í því þyngist mikið, eftir að Jón opinberar ágreiningin svona hressilega og þjóðin sér það svona svart á hvítu að það er alls ekki einhugur um þetta mál og því síður vilja ekki allir LJÚGA það í gegnÞað væri óskandi að fleiri ráðherrar hefðu bein í nefinu, til að minnsta kosti að standa við stefnu eigin flokks í málinu................
mbl.is Undrast orð ráðherra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

MEIRA AÐ SEGJA ÓFÆRT ÞANGAÐ YFIR HÁSUMARIÐ!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!

Til þess að Herjólfur geti sinnt áætlunarferðum sínum í Landeyjahöfn, verður nánast að vera spegilsléttur sjórVerður kannski að fara að vera með fastar ferðir milli Þorlákshafnar og Eyja strax í byrjun ágúst??????????
mbl.is Ófært í Landeyjahöfn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Á HVAÐA LYFJUM ER MAÐURINN EIGINLEGA???????????????

Menn hafa verið alveg kófsveittir, því ALLIR (kannski fyrir utan EINN) gera sér grein fyrir að kaflinn um sjávarútvegsmál verður sá erfiðasti í öllu "INNLIMUNARFERLINU" og gæti orðið sá kafli sem allt STOPPAR á (vonandi).  En þá kemur Össur eins og skrattinn úr sauðaleggnum og segir að þetta sé nú minnsta mál í heimi.  Maður veltir því fyrir sér hvort þessi maður sé að gæta hagsmuna Íslands eða hvort hann er að vinna fyrir mótaðilann??????
mbl.is Þurfum ekki sérstaka undanþágu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ÞETTA ER NÚ MEIRA "SKÍTAVEÐRIÐ"..................

Ég var að skoða fréttir og myndir af þessu í Norsku blöðunum SJÁ HÉR, sumar mundirnar eru nú fremur sakleysislegar svona við fyrstu sýn en aðrar eru nú öllu svakalegri.  En yfir höfuð getur maður ekki sett sig í spor fólksins sem gengur í gegnum þetta.  Ég hélt að svona svakalegar rigningar þekktust ekki svona norðarlega en miðað við flóðin í mið Evrópu í fyrra þá ætti svona lagað ekki að koma mikið á óvart.............


mbl.is Varað við öðru skýfalli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

HVALASKOÐUN ER EKKI EINS "GÓÐ" OG VISTVÆN OG MENN HAFA HALDIÐ FRAM..............

Þarna kemur bara enn ein rannsóknin, þar sem kemur fram að hvalaskoðun hafi neikvæð áhrif á hvalina.  Fyrir tveimur árum vann ég ásamt fleirum skýrslu um áhrif hvalveiða á hvalaskoðanir.  Niðurstaðan var sú að áhrifin væru engin og ef þau væru einhver þá hefðu veiðar frekar jákvæð áhrif heldur en hitt, en það mátti ekki koma fram.  En við vinnslu á þessari skýrslu var mjög margt sem rak á fjörur okkar, meðal annars var þar doktorsritgerð frá Kanada  en þar er því haldið fram að hvalaskoðunarbátar valdi því að "staðsetningarbúnaður" hvala verði fyrir skaða vegna HEYRNARSKAÐA sem hvalaskoðunarbátarnir valdi, vegna þess að þeir sigla of nálægt hvölunum.  Þar af leiðandi reina hvalirnir að "FORÐA" sér lengra frá landi.  Umrædd doktorsritgerð heitir: The affects of whale watching on humback whales in New Foundland, eftir Corbell, 2006 en í þessari skýrslu koma fram nýjar og nýstárlegar kenningar um áhrif hvalaskoðana á hvali og lífshætti þeirra.  Í skýrslunni er talað um að hvalaskoðanabátarnir séu flestir komnir til ára sinna og með gamlar og háværar dísilvélar, sem hafi þau áhrif á hvalina að þeir missi heyrn og "staðsetningakerfi" þeirra ruglist, þarna sé komin skýringin á því að þeir séu komnir á dýpra vatn og séu bara einfaldlega að forðast hvalaskoðunarbátana.  En hvölunum verður ekki kápan úr því klæðinu því hvalaskoðunarbátarnir elta þá bara.  Sé þetta rétt, sem ég hef ekki ástæðu til að draga í efa en það skal tekið fram að þetta þyrfti að rannsaka betur, þá er þarna stór hluti skýringarinnar á fjölgun árekstra milli hvala og skipa og því að "hvalrekum" hefur fjölgað eins gríðarlega og raunin er, en ég er á því að stærsti orsakavaldurinn sé hin gríðarlega fjölgun hvala, sem hefur verið síðan hvalveiðibannið tók gildi 1986.  Fyrir utan það að tekjur af hvalaskoðun eru stórlega ýktar, þá virðist bara vera komið að þeim tímapunkti að það verði að endurskoða alla þessa vitleysu frá grunni og það frekar fyrr en síðar.................
mbl.is Hvalaskoðun getur truflað fæðuöflun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Föstudagsgrín

 

Vodka og klaki skemma nýrun.

Romm og klaki lifrina.

Viskí og klaki hjartað.

Gin og klaki heilann.

Bölvaður klakinn er stórhættulegur.....


« Fyrri síða

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband