Bloggfærslur mánaðarins, október 2016
31.10.2016 | 15:52
ÉG ER NOKKUÐ VISS UM AÐ ÞJÓÐIN VAR EKKI AÐ FARA FRAM Á AÐ HANN YRÐI FORSÆTISRÁÐHERRA EFTIR KOSNINGAR....
Þó svo að Viðreisn hafi hlotið ágætis kosningu, þá mátti hann þakka fyrir að hafa sloppið inn á Alþingi. Þessi maður hefur ekkert til að bera, þannig að hann gæti valdið forsætisráðherraembættinu............
Vill leiða stjórnarmyndun | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:11 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
31.10.2016 | 09:16
AÐ MESTU ER HÆGT AÐ VERA SAMMÁLA ÞESSU
Ég held að það hafi verið nokkuð stór mistök hjá Framsókn að vera að fara út í formannsskipti svona rétt fyrir kosningar. En RÚV og fjármálaklíkan höfðu betur að þessu sinni, þeim tókst ætlunarverk sitt, að koma Sigmundi Davíð frá enda var hann búinn að reynast fjármálaklíkunni dýr og það var náttúrulega ekkert betra en að fá RÚV með sér og láta þá vinna "skítverkin".....
Hefði farið með Framsókn í 19% | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
30.10.2016 | 21:54
ÞAU SETTU ÞENNAN "VINSTRISTIMPIL" Á SIG SJÁLF OG FESTU HANN RÆKILEGA
Þannig að það var nú hægara sagt en gert að ná honum af í einu vettvangi en þau voru búin að vinna eins og aðrir í "Vinstri Hjörðinni" allt kjörtímabilið.
Hefði átt að þvo vinstristimpilinn af | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
30.10.2016 | 21:47
51 SIGUR HAMILTONS
Þar með hefur hann jafnað Alan Prost, sem er annar sigursælasti ökumaðurinn í Formúlu 1 en Michael Scumacher er í fyrsta sætinu og verður þar eitthvað áfram. Það var nú svo sem ekki mikið sem gerðist þarna í þessum kappakstri nema Massa tókst alveg ótrúlega vel upp við að halda Sergio Perez aftan við sig eða í tæplega 18 hringi og er það alveg aðdáunarverður árangur. Þá var það ekki nokkur spurning að Raikkonen færi fram úr Nico Hulckenberg, þegar fimm hringir voru eftir en Hulckenberg var þrjóskur og reyndi of mikið að halda Raikkonen fyrir aftan sig, sem endaði með því að hann seri bílnum og missti að tvo bíla fram fyrir sig, enda voru dekkin hjá honum mikið slitnari og í verra ásigkomulagi en hjá Raikkonen. En hasar dagsins átti Max Verstappen, þegar hann í örvæntingu sinni við að halda Sebastian Vettel fyrir aftan sig, fór alltof vítt í eina beygjuna, náði henni ekki fór út úr brautinni, sleppti beygjunni og kom inná hana framan við Vettel. Honum var sagt í talstöðina, af liðsfélögum, að hann yrði að hleypa Vettel framúr enn það gerði hann ekki, þannig að dómarar keppninnar refsuðu honum um fimm sekúndur og varð niðurstaðan sú að Sebastian Vettel varð þriðji, Daniel Ricciardo varð fjórði og Max Verstappen varð í fimmta sæti. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem Max Verstappen lætur keppnisskapið bera sig ofurliði, hann var búinn að fá aðvörun en nú eru dómararnir farnir að taka hann föstum tökum. Það er bara einfalt hann verður að virða reglurnar eins og aðrir. Vonandi er að hann læri bara af þessu, en ég get ekki neitað því að strákurinn er í svolitlu uppáhaldi hjá mér og það er alveg klárt að þarna er framtíðar heimsmeistari á ferðinni. Þegar tvær keppnir eru eftir á tímabilinu er bilið milli Rosbergs og Hamiltons einungis 19 stig, Rosberg í hag og ljóst að það má ekkert klikka hjá hvorugum til að "ballið" sé búið. Svona viljum við hafa það spennu alveg þar til í lokin..
Gerði það nauðsynlega - Verstappen refsað | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
30.10.2016 | 14:52
ÞAÐ ER EKKI HÆGT AÐ SEGJA AÐ ÞESSI MAÐUR ÞJÁIST AF MINNIMÁTTARKENND
En á móti er hægt að segja að ofmat á eigin ágæti sé svo sem til staðar. Það verður ekki séð að hann hafi nokkra burði til að leiða ríkisstjórn, það sem hann myndi gera er að INNLIMA landið í ESB og leiða landið til efnahagslegra glötunar með þessu myntráði sínu og að tengja krónuna við evruna....
Eðlilegt að Viðreisn fái umboðið | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
30.10.2016 | 09:53
ÞETTA ER NÁTTÚRULEGA HÁMARK NIÐURLÆGINGARINNAR........
Að formaðurinn skuli "sleppa" inn á þing sem UPPBÓTARÞINGMAÐUR, þar af eru TVEIR uppbótarþingmennog aðeins EINN kjördæmakjörinn. Hver af þesssum ÞREMUR verði ÞINGFLOKKSFORMAÐUR? Einhverjir myndu segja: "Nú er Snorrabúð Stekkur".....
Oddný: Leyfum nóttinni að líða | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
30.10.2016 | 01:43
"BJÖRGUNARBÁTURINN" ER BARA AÐ GERA MUNN BETRI HLUTI EN "MÓÐURSKIPIÐ"
Björt Framtíð bjargaði sér úr brotsjónum á meðan LANDRÁÐAFYLKINGUNA rak stjórnlausa upp í fjöru. Skipstjóranum og áhöfn tókst ekki að koma akkerinu út. Ætli þeim takist að ná skipinu út aftur, eða skiptir skipstjórinn yfir í hlutverk útfararstjóra?
Sigur að halda flokknum á þingi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
29.10.2016 | 20:59
EN EINN OG EINN HALDA SUMIR ENN Í VONINA - JAFNVEL ÞÓ ÚTLITIÐ SÉ SVART
Einn kjósandi LANDRÁÐAFYLKINGARINNAR, er búinn að vera duglegur á blogginu í dag og hvetur "jafnaðarmenn" til að mæta á kjörstað jafnvel þó svo að ENGINN almennilegur jafnaðarmannaflokkur sé til lengur á Íslandi. Því miður vita jafnaðarmenn ekkert hvað á að kjósa svo er "björgunarbáturinn" (Björt Framtíð) hriplekur þarna er kannski komin ástæðan fyrir því að LANDRÁÐAFYLKINGIN dettur út af þingi núna í það minnsta þarf formaðurinn að leita sér að annarri vinnu..
35,82% hafa kosið í Reykjavík | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
29.10.2016 | 12:51
ÆTLI HANN KLÆÐIST SVÖRTU EFTIR KOSNINGAR??????
Eða verður honum bjargað fyrir horn af einhverjum AUMINGJAGÓÐUM kjósendum, sem er nokkuð sama þótt hann vilji SVÍKJA landið undir ESB og fylla landið af hælisleytendum..
Klæðnaðurinn verður bjartari með deginum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
28.10.2016 | 00:05
Föstudagsgrín
Maður nokkur var að aka bíl sínum heim í mikilli rigningu, þegar hann sér unga konu við bilaðan bíl sem veifar til hans, Maðurinn tekur konuna gegnvota upp í, og spyr hvert hún sé að fara, hún segist vera á leið í næsta bæ, Maðurinn býður henni því heim, þar sem stutt var heim til hans og hún rennvot.Þegar heim er komið, eru skilaboð frá konunni hans að hún hafi farið út að hitta vinkonur sínar.
Nokkru seinna kemur frúin heim og fer upp í svefnherbergi, og sér þar manninn sinn vera í samförum við ókunnuga konu. Konan hleypur niður og maðurinn á eftir, og í miðjum stiganum meðan hann hysjar upp um sig buxurnar kallar hann, "ég get útskýrt" konan stoppar og segir "ég myndi elska að heyra þig útskýra þetta". " Sko, ég var að keyra heim og stoppa fyrir konunni þar sem hún stóð út í rigningunni og bauð hjálp mína, svo komum við hingað og hún spurði mig hvort konan mín ætti einhver gömul föt til að lána henni", "ég sagði þá að þú ættir buxur sem þú væri löngu hætt að nota, og blússu sem þú værir löngu, löngu hætt að nota, einnig lét ég hana hafa sokka og skó sem þú varst löngu síðan hætt að nota, og að endingu lét ég hana hafa jakka sem þú varst fyrir lifandis löngu hætt að nota". Svo sagði maðurinn daufum orðum, "svo spurði stúlkan mig hvort það væri eitthvað fleira sem þú værir hætt að nota"........
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)