Bloggfærslur mánaðarins, desember 2023
16.12.2023 | 13:22
HVAÐ ER EIGINLEGA UM AÐ VERA???????
Og hvað er eiginlega að frétta hjá "nýja" dómsmálráðherranum? Kom hún bara inn vegna þess að Jón Gunnarsson var óþægilegur fyrir VG liða og gerði of mikið í þessum hælisleitendamálum? Ég held að það hljóti að vera því ekki hef ég orðið var við að núverandi Dómsmálaráðherra geri nokkurn skapaðan hlut......
Heyrnarlausir hælisleitendur leita hingað | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
15.12.2023 | 11:37
KEMUR ÞETTA EINHVERJUM Á ÓVART???????????????
Þetta staðfestir bara að í þessum flokki hefur ekki orðið nein breyting og áfram er hver höndin uppi á móti annarri. Og svo flýgur þessi flokkur með himinskautum í skoðanakönnunum þar sem næstum sami gamli grauturinn er í sprunginni skál, þar sem er búið að "sparsla" í stærstu og verstu sprungurnar......
Óeining um orku í Samfylkingu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
14.12.2023 | 10:58
ENDA ER HLUTABRÉFAMARKAÐURINN HÉR Á LANDI BARA HANDÓNÝTT "KLÍKUSAMFÉLAG" ÖRFÁRRA AÐILA.....
Þessi hlutabréfamarkaður hér á landi er eins óskilvirkur og hægt er, ÞESSIR ÖRFÁU AÐILAR, SEM "STJÓRNA" VERÐUNUM Á HLUTABRÉFUNUM HÉR, ÁKVEÐA ÞAÐ SÍN Á MILLI HVERJIR HAGNAST OG HVERJIR TAPA..........
Þörf fyrir hlutabréfamenningu á Íslandi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
13.12.2023 | 11:06
"POPPÚLISTAFLOKKUR"............
Síðan nýr formaður tók við stjórnartaumunum í "LANDRÁÐAFYLKINGUNNI" hefur nýi formaðurinn verið að styrkja sig í sessi með ýmsum "YFIRLÝSINGUM" sem talið er að gangi vel í landsmenn og fylgi flokksins RÝKUR upp í skoðanakönnunum. ER MINNI KJÓSENDA Á ÍSLANDI VIRKILEGA SVONA "DAPURT" AÐ FÓLK SÉ STRAX BÚIÐ AÐ GLEYMA ÞVÍ HVERNIG ALMENNINGUR VAR LEIKINN SÍÐAST ÞEGAR SAMFYLKINGIN VAR Í STJÓRN LANDSINS? HVAÐ HEFUR EIGINLEGA BREYST Í SAMFYLKINGUNNI SÍÐAN ÞÁ? SVARIÐ ER EINFALT: AKKÚRAT EKKI NEITT. "Af ávöxtunum skuluð þið þekkja þá". Það kemur mikið á óvart að Samfylkingin skuli fara með "himinskautum" í skoðanakönnunum, undir forystu Kristrúnar Frostadóttur, er kjósendur búnir að gleyma "afrekum" Samfylkingarinnar þegar hún var síðast í ríkisstjórn "INNIHALDIÐ ER ÞAÐ SAMA ÞÓTT UMBÚÐIRNAR SÉU NÝJAR"? Hefur einhver haft fyrir því að skoða pólitískan feril Kristrúnar Frostadóttur? Hún hóf sinn pólitíska feril í Sjálfstæðisflokknum og var víst nokkurn vegin til friðs þar í nokkur ár. Þá er eins og hún hafi áttað sig á því að innan þess flokks var ENGIN von um framgang og það er nokkuð öruggt að hún ætlaði sér ekki að raða stólum og baka þannig að hún tók þátt í að stofna Viðreisn, en þar voru þvílíkar "kanónur" innanborðs að hún sá sinn kost vænstan að forða sér og þá var Samfylkingin næsta stoppistöð hjá henni, þar sem henni var tekið fagnandi (af öllum nema Helgu Völu Helgadóttur,segja má að hennar tími í flokknum sé á lokametrunum þó svo að fáir vilji viðurkenna það) og nú hefur hún styrkt stöðu sína rækilega með því að verða þar formaður. ERU KJÓSENDUR MEÐ SVO MIKIÐ "GULLFISKAMINNI" AÐ ÞEIR LÁTI BLEKKJA SIG SVONA? EF ÞETTA ER EKKI TÆKIFÆRISMENNSKA ÞÁ ER HÚN EKKI TIL Ég veit ekki til að það að skipta út EINNI MANNESKJU GJÖRBREYTI HEILUM STJÓRNMÁLAFLOKKI.......
Samfylkingin styður aukna orkuöflun | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 11:23 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
11.12.2023 | 10:11
BESTU ÞAKKIR "NÁTTÚRUVERNDAR AYATOLLAR"..............
AÐALMÁLIÐ ER AÐ HÉR Á LANDI HEFUR EKKI RISIÐ VATNSAFLSVIRKJUN Í 10 ÁR. Og hver skyldi ástæðan vera? Jú hérna eru öfgahópar sem berjast gegn vatnsaflsvirkjunum með kjafti og klóm og verður bara "vel" ágengt í þessari baráttu sinni. En hver eru svo áhrifin af þessu brölti? JÚ VIÐ SEM ÞJÓÐ ERUM AÐ GANGA Í GEGNUM SVOKÖLLUÐ ÖFUG ORKUSKIPTI VIÐ ERUM AÐ FÆRA OKKUR YFIR Í JARÐEFNAELDSNEYTI Í STAÐ GRÆNNAR ORKU. Sem dæmi um þetta er að fiskimjölsverksmiðjurnar þurfa að kera á OLÍU vegna þess að ekki er til rafmagn, almenningur horfir fram á rafmagnsskömmtun og svona mætti lengi telja. Svo kemur það hlálega, við höfum "SELT" FRÁ OKKUR GRÆNU ORKUNA OG ÞAÐ EINGÖNGU Á PAPPÍRUNUM. Það kemur fram á rafmagnsreikningunum okkar landsmanna að það rafmagn sem við notum sé unnið með OLÍU, KOLUM og KJARNORKU MINNI HLUTI ÞESS SÉ UNNINN MEÐ "GRÆNNI ORKU". Ég hef leitað nokkuð vel og lengi að KJARNORKUVERI á landi og Ekkert fundið og í innflutningsskýrslum hef ég ekki getað séð að einn einasti KOLAMOLI hafi verið fluttur inn til landsins. Er ekki til málsháttur sem segir að "margur verði af aurum api"? Þetta virð eiga ágætlega við um okkur Íslendinga eða í það minnsta ráðamenn okkar. VIÐ GETUM EKKI GORTAÐ OKKUR AF ÞVÍ AÐ NOTA GRÆNA ORKU ÞEGAR VIÐ HÖFUM SELT FRÁ OKKUR RÉTTINN AF ÞVÍ AÐ MEGA SEGJA ÞAÐ Á ALÞJÓÐAVETTVANGI. Það er nokkuð augljóst að við verðum að fara að endurskoða orkumálin okkar alveg frá grunni..............
Frumvarp um skömmtun á raforku tekur breytingum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
10.12.2023 | 15:23
ALVEG ER ÞESSI STUÐNINGUR "VINSTRI HJARÐARINNAR" VIÐ HRYÐJUVERKASTÓÐ MEÐ ÓLÍKINDUM......
Auðvitað spyr maður þeirrar spurningar; "HVORT ÞETTA LIÐ GANGI Á ÖLLUM"??????
Samstöðufundur á alþjóðlegum degi mannréttinda | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
8.12.2023 | 16:37
ER EKKI KOMINN TÍMI Á LEIÐRÉTTINGU????????
Alveg frá því að ég hóf að greiða af fyrsta verðtryggða láninu sem ég tók (rétt eftir 1980), hugsaði ég með mér að það væri eitthvað að við verðtryggingarútreikningana en þá skorti mig þekkingu á fyrirbærinu til að geta fest hendur á því í hverju þessi villa lá. Árið 1989 fór ég í nám í Noregi og það helsta sem ég varð áskynja þar var að VERÐTRYGGINGU hafði aldrei verið minnst á þar og ekkert fann ég um hana í þarlendum bókum, né í Sænskum bókum eða Dönskum (enda kannski ekki að undra því mér skilst að verðtrygging sé hvergi þekkt fyrirbæri nema á Íslandi, Ísrael og Argentínu). En í áðurtöldum löndum hefur verðbólga verið viðvarandi vandamál áratugum saman og segir okkur það fyrst og fremst að EFNAHAGSSTJÓRNUNIN í þessum löndum er ekki upp á marga fiska. Eftir námið í Noregi kom ég aftur í verðtrygginguna á Íslandi (sem voru mín stærstu mistök en það þýðir víst ekki endalaust að vera að horfa í baksýnisspegilinn heldur verður maður víst að læra að lifa með mistökunum) og mér varð ekkert ágengt með að læra á leyndardóma verðtryggingarinnar. Það var ekki fyrr en ég hóf að kenna við framhaldsskóla á Stór Hafnarfjarðarsvæðinu og kenndi þá meðal annars verslunarreikning þar sem ágætlega var farið yfir verðtrygginguna og eðli hennar (en ég komst að því seinna meir að eðlið var nokkuð skítlegt). Þegar þarna var komið var ég orðinn verulega pirraður, því ég sá að hugsunin á bak við vertrygginguna var svosem allt í lagi en framkvæmdin var eitthvað meira en lítið skökk. Svo eftir kennsluna fór ég í önnur störf og vegna anna varð ég að leggja þessar pælingar á ís og svo eftir HRUNIÐ hóf ég nám í Viðskiptafræði, sem ég var í, í fjarnámi og vegna aldurs og almennrar leti tók ég því mjög rólega og þegar upp var staðið tók það mig tíu ár að ljúka því námi. Eftir námið fór ég að sinna ýmsu en alltaf var ég með verðtygginguna hangandi yfir mér. Það var svo ekki fyrr en árið 2022 sem ég fór eitthvað að taka á henni af alvöru og loksins um mitt árið 2022 áttaði ég mig á í hverju VILLAN VAR FÓLGIN. Ég dreif í að reikna þetta út og þessir útreikningar staðfestu grunsemdir mínar. Villan fólst í því að GRUNNVÍSITALAN ER NOTUÐ ÚT Í GEGN VIÐ ÚTREIKNING Á AFBORGUNUM LÁNSINS ÞAR TIL ÞAÐ HEFUR VERIÐ GREITT UPP. Þetta er að sjálfsögðu ekki rétt nálgun, það á EINGÖNGU að notast við GRUNNVÍSITÖLUNA ÞEGAR FYRSTA AFBORGUN LÁNSINS ER REIKNUÐ það gefur auga leið að við erum að greiða lánið til baka að FULLU þegar vísitalan er tekin með í reikninginn (það er að segja ). ÞAR MEÐ Á ÚTREIKNINGURINN AÐ VERA EFTIRFARANDI:
(FÖST AFBORGUN X (NEYSLUVÍSITALA GREIÐSLUMÁNAÐAR/GRUNNVÍSIÖLU)) EFTIR ÞAÐ Á AÐ REIKNA (FÖST AFBORGUN X (NEYSLUVÍSITALA GREIÐSLUMÁNAÐAR/NEYSLUVÍSITALA SÍÐUSTU GREIÐSLU))
Lausnin á vandanum var svo einföld að ég er hundfúll út í sjálfan mig fyrir að hafa ekki séð þetta fyrir löngu síðan. Í staðinn fyrir að marfalda föstu afborgunina með vísitölu greiðslumánaðarins og deila síðan með vísitölu síðasta greiðslumánaðar, var föst mánaðargreiðsla margfölduð með vísitölu greiðslumánaðarins og síðan deilt með grunnvísitölunni, sama hvar í röðinni greiðslan var. Þetta veldur MIKILLI SKEKKJU í útreikningum og er hægt að fullyrða að bankarnir, lífeyrissjóðirnir og aðrar lánastofnanir hafi OFTEKIÐ HUNDRUÐ MILLJARÐA KRÓNA í gegnum árin vegna þessara villu í útreikningunum eins og ég sýni fram á í útreikningum mínum. Sama á við um alla útreikninga á gjaldi þar sem verðtrygging kemur við sögu svo sem húsaleigu.
Mynd 1. Útskýringar vegna verðtryggðra lána
Mynd 2. Mismunur afborgana af verðtryggðu láni á 1. ári
Mynd 3. Mismunur afborgana af verðtryggðu láni á 5. ári
Mynd 4. Mismunur afborgana af vertryggðu láni á 10. ári
Mynd 5. Mismunur afborgana af verðtryggðu láni á 12. ári
Mynd 6. Mismunur á mánaðarlegri greiðslu húsaleigu á öðru ári samnings
Á þessum myndum sést vel hversu þungi afborgana af verðtryggðum lánum eykst gífurlega eftir því hversu líður á lánstímann. Í dæminu hér fyrir ofan er tekið dæmi um 10.000.000 lán til 25 ára og er greitt af því mánaðarlega, síðustu gögn sem við höfum um þróun vísitölu eru fyrir árið 2022 og þá strax er mismunurinn orðin rúmlega 380.000 krónur eftir því hvor aðferðin er notuð og þá er aðeins búið að greiða TÆPLEGA helming afborgana. Þá væri fróðlegt að skoða verðtryggt lán til 40 ára.
Þá sýndi ég einnig fram á hvernig útreikningi vegna verðtryggðrar húsaleigu væri háttað og hver mismunurinn væri, eftir því hvor aðferðin væri notuð. Það sama gerist og með verðtryggða lánið að mismunurinn eykst eftir því sem lengra líður á samningstímann.
Ég gerði það að ég sendi ÖLLUM þingmönnum og varamönnum í Efnahags- og Viðskiptanefnd, þessir þingmenn voru; Teitur Björn Einarsson, Ágúst Bjarni Garðarsson, Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, Ásthildur Lóa Þórsdóttir, Diljá Mist Einarsdóttir, Guðbrandur Einarsson, Hafdís Hrönn Hafsteinsdóttir, Kristrún Frostdóttir, Steinunn Þóra Árnadóttir, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, Bryndís Haraldsdóttir, Guðmundur Ingi Kristinsson, Halldóra Mogensen, Jódís Skúladóttir, Jóhann Friðrik Friðriksson, Logi Einarsson, Óli Björn Kárason, Sigmar Guðmundsson og Stefán Vagn Stefánsson. Aðeins tveir af öllum þessum hópi létu svo lítið að svara. Annað svarið kom nú ekki til af góðu,því að ég hafði sent þessum þingmanni þetta sama erindi nokkuð áður og því ekki verið svarað þá og gagnrýndi ég það nokkuð í því maili og það sem meira var að hann/hún virtist ekki með nokkru móti getað SKILIÐ hvað umfjöllunarefnið fjallaði. Hinn þingmaðurinn sendi kurteysislegt svar til baka að pósturinn hefði verið móttekinn og farið yrði yfir hann seinna. ÉG HEFÐI NÚ TALIÐ AÐ ÚTREIKNINGUR VERÐTRYGGINGARINNAR VÆRI NOKKUÐ STÓRT MÁL OG ALLT Í LAGI FYRIR ÞINGMENN AÐ SKOÐA SVONA LAGAÐ ÞEGAR ÞAÐ KEMUR UPP. Ég get nú ómögulega gert að því að sumt sem er verið að ræða á Alþingi er ekki ýkja merkilegt en samt eru teknir margir klukkutímar í eitthvað blaður sem skiptir ekki nokkru einasta máli.......
6.12.2023 | 11:18
ER NÝ STOFNUN SVARIÐ?????????
Þessi manneskja, sem á að taka á þessu máli, hvorki vill eða sennilega hefur ekki getu til að taka á þessu máli og til að breiða yfir vanmátt sinn þá kemur hún með þessa fáránlegu tillögu. Það er það fyrsta að menn verða að komast að því í hverju vandamálið er fólgið og bregðast svo við í samræmi við niðurstöðu þeirrar skoðunar. Í mínum huga er augljóst hver ástæðan er; "STÆRSTA ÁSTÆÐAN ER, ÞESSI STJÓRNLAUSI INNFLUTNINGUR HÆLISLEITENDA". Það gefur auga leið að kennari ræður ekkert við að kenna 30 manna bekk þar sem töluð eru 10 - 15 tungumál og svo er nokkuð augljóst að það er lítill áhugi hjá nemendum að læra þegar þeir vita ekki hvað fer fram í skólastofunni og nemendur sem vilja læra geta það ekki því kennarinn er að reyna að hjálpa þeim sem ekkert skilja það sem fram fer........
Niðurstöðunum haldið leyndum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
4.12.2023 | 20:51
NORÐMENN ÞURFA LÍKA AÐ DÍLA VIÐ "HRAÐLYGNA" INNLIMUNARSINNA..
Nú er rafmagnsverðið í Suður Noregi og á Oslóarsvæðinu komið í 3,86NKR kílówattstundin sem eru um það bil 50 krónur Íslenskar og er þetta langhæsta rafmagnsverð sem Norðmenn hafa fengið í hausinn til þess og ekkert er annað í kortunum en rafmagnið eigi eftir að hækka enn meira, því ekki er lát á kuldakastinu í Evrópu. Eitthvað fer nú lítið fyrir "hlýnuninni". Svo horfði ég á umræðuþátt í Norska sjónvarpinu þar sem var verið að tala um rafmagnsverðið og talsmaður frá Fremskridtspartiet vildi meina að rafmagnsverðið mætti rekja bent til ORKUPAKKA 3, þetta sagði varaformaður Høyre að væri bara tómt kjaftæð "ORKUPAKKI 3 HEFÐI EKKERT MEÐ RAFMAGNSVERÐIÐ AÐ GERA".Þessi kona er harður INNLIMUNARSINNI og Høyre eins og þeir leggja sig (þetta er svona svipaður flokkur og Viðreisn). MÉR SKILST NÚ AÐ ÞAÐ SÉU EKKI MARGIR RAFMAGNSBÍLAR Á FERÐINNI Í NOREGI UM ÞESSAR MUNDIR......
Það er bara virkileg dapurlegt að það skuli ekki vera fleiri sem þora gegn "hallelúja"-kórnum. Enda hafa ENGIN gögn verið lögð fram sem sýna framá hlýnun af mannavöldum..........
Forseti COP28 sagður afneita hlýnun jarðar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)