ER NÝ STOFNUN SVARIÐ?????????

Þessi manneskja, sem á að taka á þessu máli, hvorki vill eða sennilega hefur ekki getu til að taka á þessu máli og til að breiða yfir vanmátt sinn þá kemur hún með þessa fáránlegu tillögu.  Það er það fyrsta að menn verða að komast að því í hverju vandamálið er fólgið og bregðast svo við í samræmi við niðurstöðu þeirrar skoðunar.  Í mínum huga er augljóst hver ástæðan er; "STÆRSTA ÁSTÆÐAN ER, ÞESSI STJÓRNLAUSI INNFLUTNINGUR HÆLISLEITENDA".  Það gefur auga leið að kennari ræður ekkert við að kenna 30 manna bekk þar sem töluð eru 10 - 15 tungumál og svo er nokkuð  augljóst að það er lítill áhugi hjá nemendum að læra þegar þeir vita ekki hvað fer fram í skólastofunni og nemendur sem vilja læra geta það ekki því kennarinn er að reyna að hjálpa þeim sem ekkert skilja það sem fram fer........ 


mbl.is Niðurstöðunum haldið leyndum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður Kristján Hjaltested

Þetta er stór hluti af vandamálinu Jóhann. En ég held að grunnurinn af vandamálinu sé eldri

eins og Páll Vilhjálmsson bendir á og einnig Jón Magnússon. Athugasemd sem ég setti

inn hjá Páli..

Þetta er meinið Páll. Það er marg búið að benda á þessa vitleysu með 

skóla án aðgreiningar. Nemendur sem sköruðu framm úr og höfðu áhuga á

því að læra voru settir útir í horn og látnir teikna og leira á meðan

hinir sem hefðu þurft allt annað úrræði gætu náð sömu hæfni.

Námsáhuginn var hægt og rólega drepinn niður. Nú eru skólarnir komnir með

nýtt kennsluefni sem snýst meira og minna um hin öll kynin og nýrði sem

enginn bað um. Þetta er arfleið kúlulánadrottningar sem er nú í dag

formaður Viðreisnar. Skóli án aðgreiningar var troðið í gegn þrátt fyrir

fjölda viðvarana og þetta er útkoman.

Sigurður Kristján Hjaltested, 6.12.2023 kl. 11:49

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

Mikið er ég sammála þér Sigurður Kristján, ég er á því  og hef verið í mörg á "OKKUR VANTAR SKÓLA MEÐ AÐGREININGU" og svo eiga innflytjendurnir að vera sér  þangað til þeir eru orðnir færir um að fylgja jafnöldum sínum eftir í námi.....

Jóhann Elíasson, 6.12.2023 kl. 12:43

3 Smámynd: Sigurður I B Guðmundsson

Vonandi fer fólkið í landinu að sjá að það verður að stöðva þetta flóð hælisleitenda. Öryrkjar lepja dauðan úr skel og fátækt sjaldan eða aldrei verið meiri en nú. Hvernig á að vera hægt að læra í bekk þar sem útlendingar sem ekki kunna málið er stór hluti nemanda. 

Sigurður I B Guðmundsson, 6.12.2023 kl. 16:13

4 Smámynd: Jóhann Elíasson

Já Sigurður, hælisleitendaflóðið hefur fleiri neikvæð áhrif en margir gera sér grein fyrir........

Jóhann Elíasson, 6.12.2023 kl. 18:38

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband