Bloggfærslur mánaðarins, október 2024

VELTUSKATTUR – VIRÐISAUKASKATTUR (DÆMI UM HVERNIG SKATTALÆKKUN GETUR ORÐIÐ AÐ TEKJUAUKA FYRIR RÍKISSJÓÐ)

Ég var búinn að segja það að ég ætlaði að útskýra muninn á VIRÐISAUKASKATTINUM og VELTUSKATTI og um leið að sýna fram á ávinning þess að taka upp VELTUSKATT í stað VIRÐISAUKASKATT.   Þessi samantekt mín byggist að mestu leyti á greinum sem ég hef áður birt um þetta  efni og ekki ólíklegt að mönnum finnist þeir hafi lesið þetta áður. 

Um miðjan sjötta áratuginn var nokkuð mikil vakning hjá Íslenskum stjórnvöldum þess efnis að ganga í ESB  (þá EBE).   Þáttur í þessu var að Ísland varð, að kröfu ESB að taka upp virðisaukaskatt (en það átti að vera samræmt í öllum ESB-ríkjunum).  Hver sem  ástæðan var þá létu stjórnvöld fara fram „úttekt á fýsileika þess að tekinn yrði upp virðisaukaskattur á Íslandi“.  Úttektina gerði Jón Sigurðsson, sem síðar varð Efnahagsráðherra á vegum Alþýðuflokksins og enn síðar Seðlabankastjóri, skilaði hann svo þessari skýrslu af sér árið 1971.  Þrátt fyrir að margar skýrslur væru unnar og mörg álit skrifuð um virðisaukaskatt, þá var hann ekki innleiddur  hér á landi fyrr en árið 1990 (reyndar átti að taka upp virðisaukaskatt með lögum árið 1989, en einhverra hluta vegna var því frestað til 1 janúar 1990)  Nú hefur virðisaukaskattskerfið verið við lýði í 34 ár og komin reynsla á að það er MEINGALLAÐ, MJÖG DÝRT Í REKSTRI, AFSKAPLEGA FLÓKIÐ og UNDANÞÁGUR  Í ÞVÍ ERU MJÖG MARGAR.  Þarna er eingöngu „tæpt“ á helstu ágöllum á virðisaukaskattskerfinu að taka fyrir alla gala og „kosti“ virðisaukaskattskerfisins, væri efni í heila bók auk þess að æra óstöðugan.  En nú eru landsmenn búnir að búa við virðisaukaskattkerfið í rúmlega 34 ár og því er með góðu móti hægt að segja að komin sé allnokkur reynsla af því . Sem dæmi má nefna að þeir sem mest höfðu  sig í frami gagnavart því að virðisaukaskattkerfið yrði tekið upp fullyrtu að söluskattskerfið, sem þá var í gildi og var tekið upp  árið 1960,  „VÆRI ORÐIÐ GAMALT OG ÚR SÉR GENGIГ  þessi orð voru  látin falla árið 1984. En er þá ekki kominn tími til að endurskoða virðisaukaskattkerfið sem er búið að ver við lýði síðan 1990?  En hvað ætti þá að koma í stað virðisaukaskattskerfisins?  Svarið er einfalt, það er VELTUSKATTUR,  þar sem öll fyrirtæki landsins greiddu ákveðna prósentu af veltu fyrirtækisins og væri ENGIN undaþága veitt á því.  Þessi prósenta yrði 6,00% og af því leiddi að tekjuauki ríkisins yrðu, miðað við gögn sem ég hef undir höndum milli 60 – 80 milljarðar ári.   Ástæða þess að ég valdi þessa prósentutölu var sú að ríkissjóður er algjörlega tómur og þarf á auknum tekjum að halda, en ef tekjur ríkisins ættu að verða óbreyttar frá því sem þær eru í dag ætti veltuskattsprósentan að vera rétt rúmlega 4,50%.  Á þessu sést hversu gífurlega miklu munar um hvert prósentustig.

 

VIRÐISAUKASKATTUR – VELTUSKATTUR  ÚRBÆTUR

Virðisaukaskattur skiptist í útskatt og innskatt.  Útskattur er sá skattur sem er greiddur af tekjum sem viðkomandi greiðir af þeim tekjum sem hann hefur af starfsemi sinni. En innskattur er það sem viðkomandi fær endurgreitt af hráefniskaupum og öðrum kostnaði sem fellur til vegna starfseminnar.   Hér á landi er virðisaukaskatturinn í tveimur þrepum annars vegar 24% og hins vegar 11%, það fer eftir starfsemi viðkomandi fyrirtækis í hvoru virðisaukaskattsþrepinu fyrirtækið lendir.  Það fyrirtæki sem er með allar sínar tekjur í 11% þrepinu en hráefniskostnaði og annan rekstrarkostnað í 24% þrepinu, lendir undantekningalaust í því að innskatturinn verður hærri en útskatturinn, það er að segja að fyrirtækið fær endurgreiddan virðisaukaskatt og þá skiptir engu máli hvort hagnaður er af rekstrinum eða ekki.  Og svo greiða fyrirtæki sem selja framleiðslu sína erlendis ekki virðisaukaskatt en þau fá greiddan innskatt af hráefniskostnaði sínum og öðrum rekstrarkostnaði, til dæmis fékk stóriðjan í landinu endurgreiddan VSK 56,573 milljarða á virði ársins 2011,  á núvirði, reiknað í byrjun febrúar 2023,  105,732 milljarðar.  Veltuskattur er, eins og nafnið gefur til kynna, skattur sem er lagður á sem hlutfall af veltu (verð x magn).   Einungis er sá skattur í einu þrepi og engar undanþágur eru, þetta gerir það að verkum að eftirlit er fremur einfalt og þar af leiðandi er minni hætta á að kerfið verði misnotað.  Eins og áður hefur komið fram, þá er munurinn á að  reka þessi  tvö kerfi alveg gríðarlegur og kannski vegna þess má reikna með að gífurleg andstaða verði við að leggja virðisaukakerfið niður og taka upp veltuskatt, því það er nokkuð ljóst að starfsmönnum við eftirlit myndi fækka nokkuð mikið, svo er það mjög viðkvæmt vegna þess að VSK er eitt af skilyrðunum fyrir ESB aðild og eitt af grunnskilyrðum fyrir EES samningnum.  En sjái stjórnvöld að ekki sé grundvöllur fyrir því að leggja VSK niður og taka upp veltuskatt, þá verður að gera breytingu virðisaukaskattlögunum og setja í LÖG að ekkert fyrirtæki eða einstaklingur fái meira  greitt úr virðisaukakattkerfinu enn  hann hafi greitt i það.  Það gefur auga leið að þegar skattþrepin í virðisaukaskattinum eru þrjú eins og er hér á landi (0% skatturinn er líka þrep, þá er 11% þrep og síðast er 24% þrep).  Það er ekki bara stóriðjan sem fær endurgreiddan VSK (þótt vissulega fái hún mest), útgerðin fær nokkuð mikið, ferðaþjónustan er mjög stórtæk og svo er bókaútgáfa með nokkuð mikið.  Það er nokkuð augljóst að fyrirtæki sem eru með sínar tekjur í 11% og kostnaðinn í 24%, fær verulega endurgreidd úr VSK kerfinu og ég tala nú ekki um þá sem hafa tekjur sínar í 0%.  EN TIL ÞESS AÐ FÁ SVIPAÐAR TEKJUR OG TEKJUAUKA ÚT ÚR VSK KERFINU OG AÐ VERA MEÐ VELTUSKATT ÞYRFTI AÐ VERA MEÐ EITT VIRÐISAUKASKATTSÞREP AР UPPHÆÐ 11%.   EN  YRÐI VSK ENN OFANÁ YRÐI AÐ FÆKKA UNDANÞÁGUM Í VSK KERFINU VERULEGA MIKIÐ OG ÞAR MEÐ AÐ EINFALDA ÞAÐ MIKIÐ.

ÞEGAR KOMIÐ ER Í LJÓS AÐ SAMNINGURINN UM EES ER FARINN AÐ VALDA LANDINU VERULEGUM  FJÁRHAGSLEGUM  SKAÐA AUK ALLS ANNAR SKAÐA SEM HANN ER FARINN AÐ VALDA ÞÁ ER TÍMI TIL ALVARLEGRAR ENDURSKOÐUNAR OG JAFNVEL AÐ SEGJA SAMNINGNUM UPP.  AF ÞESSU TILEFNI ER RÉTT AÐ RIFJA ÞAÐ UPP AÐ KANADA GERÐI TVÍHLIÐA SAMNING VIÐ ESB, SEM VAR MUN HAGKVÆMARI FYRIR ÞÁ EN EES SAMNINGURINN ER OKKUR OG Í OFANÁLAG ÞURFA KANADAMENN EKKI AÐ TAKA UPP NEINAR ESB REGLUGERÐIR.  EN YRÐI ÞETTA NIÐURSTAÐAN ÞÝÐIR ÞAÐ UPPSÖGN EES SAMNINGSINS ÞVÍ FORSENDAN FYRIR ÞVÍ AÐ ÍSLENDINGAR TÓKU UPP VIRÐISAUKASKATT Á SÍNUM TÍMA VAR AÐ UM VAR AÐ RÆÐA AÐ ÖLL AÐILDARRÍKI OG ÞAR AF LEIÐANDI UMSÓKNARRÍKI ESB SKYLDU HAFA TEKIÐ UPP SAMRÆMT VIRÐISAUKASKATTSKERFI....


NÚ SÝNIR SAMFYLKINGIN SITT RÉTTA ANDLIT..........

Kannski fyrir þá er það full snemmt því kosningabaráttan er ekki búin svo fólk veit að Samfylkingin hefur ekkert breyst EINA LAUSNIN SEM ÞEIR HAFA Í EFNAHAGSMÁLUM ER AÐ HÆKKA SKATTA EN EKKI HVARFLAR AÐ ÞESSUM "SNILLINGUM" AРNÝTA BETUR ÞÁ FJÁRMUNI BETUR, SEM ÞEIR HAFA NÚ ÞEGAR TIL RÁÐSTÖFUNAR......


mbl.is Samfylkingin hyggst hækka tekjuskatt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

TVEIR "KJAFTASKAR" Í HÁR SAMAN OG BÆÐI ÞEKKT FYRIR FLJÓTFÆRNI.........

Bæði eru þau MJÖG mælsk en hvorugt þeirra er mikið að hugsa um að sannleikurinn skipti miklu máli og ekki eru þau neitt sérstaklega málefnaleg......


mbl.is Inga til Össurar: „Líttu þér nær“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

NÚ Á EKKI ALLT AÐ VERA OPIÐ OG UPPI Á BORÐUM HJÁ PÍRÖTUM???????

Eða á það bara við um allt annað en hjá þeim sjálfum??????


mbl.is Kærir Pírata til Persónuverndar vegna skjáskota
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ÞAÐ AÐ GAGNRÝNA EINHVERN ER EKKI ÞAÐ SAMA OG AÐ ÁRÁS SÉ GERÐ Á VIÐKOMANDI..

Hún þarf að endurskoða notkun sína á hugtökum og vita hvað hugtökin þýða......


mbl.is Segir að ráðist sé á kennara og hart sótt að þeim
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ÞAU GERA SÉR LÍKLEGA GREIN FYRIR STÖÐU SINNI OG FLOKKSINS..........

En þau fáu sem eftir eru eiga líklega enn eftir að meðtaka og sætta sig við raunveruleikann og einhver þeirra eiga eftir að kyngja mikilmennskubrjálæðinu, hrokanum og ósvífninni, sem hefur einkennt þau í störfum þeirra hingað til...


mbl.is Meirihluti þingmanna VG farinn á brott
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

BARA ENN EINN "NAGLINN Í LÍKKISTUNA"

Og úrslit helgarinnar í "niðurröðunina" á lista flokksins fyrir kosningarnar í lok nóvember sýna nokkuð vel hvert flokkurinn er að stefna.  En hefur það ekki gleymst að ÞAÐ Á EFTIR AÐ KJÓSA???????


mbl.is Ákvörðun Sigríðar vonbrigði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ÞVÍLÍKT ENDEMIS BULL Í MANNESKJUNNI..........

Hún hefði í það minnsta geta "æft þessa ræðu sína" að eins betur, þannig að það væri smá von til þess að fólk sem er þó með einhverja smá vitglóru í hausnum, myndi trúa því sem hún léti út úr sér.  Ekki reikna ég með því að hún hafi trúað þessu sjálf??????


mbl.is Lokun sendiráðsins gerði ekki út af við Skagann 3X
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

EF FÓLK ER ANDVÍGT INNGÖNGU Í ESB ÞÁ GETUR ÞAÐ EKKI VERIÐ OPIÐ FYRIR VIÐRÆÐUM.....

Með þessari yfirlýsingu sinni er hún hreinlega að gefa til kynna að henni sé bara engan veginn treystandi og við gætum bara verið komin inn í ESB ef pólitískir vindar "blésu" þannig.  Hún virkar nú ekki þannig að hún sé mikil samningamanneskja........


mbl.is Áslaug opin fyrir að ræða atkvæðagreiðslu um ESB
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

RÁÐHERRAR VG HAFA BARA VERIÐ ÓALANDI OG ÓFERJANDI Á ÞESSUM TÍMA OG ÖÐRUM...

Og þá hlýtur spurningin að vera: "HVERS VEGNA VAR EKKI SLEGIÐ Á PUTTANA Á ÞEIM MIKIÐ FYRR"???????????  TÍÐKAST ÞAÐ EINHERS STAÐAR AÐ RÁÐHERRA SÉU AÐ HRINGJA Í EMBÆTTISMENN UM MIÐJAR NÆTUR OG FORVITNAST UM MÁL, SEM ERU EKKI EINU SINNI Á ÞEIRRA BORÐI????????


mbl.is Hringdi til að athuga hvort „hasar“ væri í gangi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband