Bloggfærslur mánaðarins, október 2024

"FARIÐ ÚR ÖSKUNNI Í ELDINN"........

Þegar ég las fréttina fyrst, var ég nokkuð fljótfær og hugsaði með mér að hún sýndi nú örlítil þroskamerki, en svo las ég áfram í fréttinni og sá að hún hafði farið yfir í Viðreisn.  Þá sá ég að þessari manneskju var ekki viðbjargandi.  Ég votta bara fjölskyldu og vinum hennar samúð mína......


mbl.is Gengur úr Pírötum yfir í Viðreisn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

EKKI SPURNING UM HVER YRÐI VALINN EF PRÓFKJÖR YRÐI.......

En það  verður sennilega Þórdísi Kolbrúnu til happs að það verður FLOKKSKLÍKAN Sjálfstæðisflokksins, sem velur fólk á framboðslista flokksins í kjördæmunum.  ÞÁ ER SPURNINGIN SÚ:"LÆTUR JÓN GUNNARSSON ÞETTA YFIR SIG GANGA ÞEGJANDI OG HLJÓÐALAUST"?????????


mbl.is Hundruð munu velja á milli Jóns og Þórdísar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

UM AFNÁM PERSÓNUAFSLÁTTAR TIL ÞEIRRA SEM BÚA ERLENDIS........

Þessi ólög um afnám persónuafsláttar þeirra sem búa erlendis, eiga að taka gildi um næstu áramót (1. Janúar 2025).  Það hefur vakið athygli mína og örugglega eru fleiri, sem hafa veitt því athygli hversu hljóðlega þetta hefur farið og virðist ekki nokkur maður hafa snefil af áhuga á þessu..  Ég hef ekki orðið var við það að Öryrkjabandalið eða Félag eldri borgara hafi nokkuð hreift við þessu  máli og það verður ekki annað séð  en að þetta renni bara mjúklega í „gegn“.  En að mínu áliti eru nokkur LÖGFRÆÐIMÁL óútkljáð varðandi þetta mál og kemur mér þetta sérstaklega mikið á óvart, ÞAR SEM UM 20% ALÞINGISMANNA ERU LÖGFRÆÐINGAR.  Ég man vel eftir umræðunni sem skapaðist í kringum þá tillögu að taka upp ÞREPASKIPTAN PERSÓNUAFSLÁTT; sú umræða var „slegin útaf borðinu“ og helsta forsendan var sú AÐ ÞAÐ BRYTI GEGN JAFNRÆÐISREGLU STJÓRNARSKRÁRINNAR.  Þá spyr ég bara á eitthvað annað  við um þetta og hvernig er það útskýrt?  Svo er annað atriði, sem mér er síður en svo ljúft að nefna.  En Ísland er víst, illu heilli, aðili að EES samningnum  en ég fæ ekki betur séð en að þetta „BRJÓTI“ gegn grunngildum þess samnings eða sjálfu „FJÓRFRELSINU“.  Fyrst við erum á annað borð aðilar að þessum samningi eigum við að sjálfsögðu að virða hann........


ÞA VERÐUR BETRI STARFSFRIÐUR EF "SKESSAN" FER Í FÝLU OG VILL EKKI VERA MEÐ.......

En þetta er víst bara orðrómur eins og er og ekkert staðfest í þessu sambandi.  En mig hefur grunað það að hún eigi mjög erfitt með að sætta sig við ð Bjarni hafi verið á undan henni að sprengja ríkisstjórnina og eigi eftir að "HEFNA", sem verður að hennar mati GRIMMILEG hefnd........ 


mbl.is „Ekki boðlegt“ frá RÚV: „Einhver furðukenning“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

BJARNI "STAL GLÆPNUM" AF SVANDÍSI - OG ÞAÐ FYRIRGEFUR HÚN EKKI SVO GLATT

Hún ætlaði sér alveg greinilega að hafa í hótunum við Sjálfstæðisflokkinn og sjá til hvað hún kæmist langt og auðvitað er hún alveg "draugfúl" yfir því að sú áætlun skyldi ekki ganga upp.  Og þá er bara spurningin HVAÐ GERIR HÚN NÆST því það má alveg ger því skóna, þar sem við vitum að ósvífni hennar og frekja hefur engin takmörk, þá vitum við að hún hefur ekki sagt eða gert sitt síðasta í "ríkisstjórnarsamstarfinu"........


mbl.is Fundaði með Bjarna í gær
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ÞAÐ FER ENGINN HEILVITA MAÐUR Í FJALLGÖNGU Á "STÍVÉLUM" - JAFNVEL FYRIR 100 ÁRUM.......

Það virðist bar ekki vera nein takmörk fyrir þeirri vitleysu sem ratar á síður blaðanna.  Er ekkert eftirlit með hvaða vitleysa er skrifuð og þá hvað er sett út?  Ég hélt að það vissi það hver meðalhálfviti að það er ekki til neitT sem heitir "GÖNGUSTÍGVÉL" en það hefur einhverjum "snillingum"dottið í hug að koma með þetta en greinilega hafði hann ekki eina einustu hugmynd um að það er til nokkuð sem heitir "GÖNGUSKÓR".  Ég var að lesa frétt um þetta sama í "Aftenpoeten" þar kom fram mynd af fót mannsins í GÖNGUSKÓ.  Það verður að hafa eftirlit með hvað "blaðakrakkarnir" senda frá sér...... cool wink


mbl.is Fundu stígvél 100 árum eftir dularfullt hvarf
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ÍSLAND VIRÐIST NÚ LÍKA VERA "SKÁLKASKJÓL" FYRIR HVÍTFLIBBAGLÆPAMENN Á STÓRNMÁLASVIÐINU....

Og þar virðist vera að almenningur í landinu sé algjörlega varnarlaus gagnvart þessu liði og það sem er enn verra er að almennir Alþingismenn þegja þunnu hljóði.  Það er kannski rétt að rifja upp nokkra af þessum "GLÆPUM" sem ekkert virðist vera fyrirhugað að grípa til nokkurra aðgerða.  Og þegar viðbrögð eru þannig við LÖGBROTUM á æðstu stöðum hver halda menn að þróunin verði????

  • Þáverandi Forsætisráðherra, Katrín Jakobsdóttir, þáverandi Fjármálaráðherra, Bjarni Benediktsson og þáverandi Heilbrigðisráðherra, Svandís Svavarsdóttir gerðu samning um kaup á "bóluefnum" (sem reyndust með öllu gagnslaus en vonandi hafa þau ekki vitað það þá).  Þessi samningur kostaði ríkið marga milljarða króna og það sem meira var VAR AÐ ALÞINGI ÍSLENDINGA KOM EKKERT AÐ ÞESSU EN ÞAÐ ER SKÝRT TEKIÐ FRAM Í STJÓRNARSKRÁNNI AÐ EKKI MEGI STOFNA TIL ÚTGJALDA EÐA SKULDBINDINGA FYRIR RÍKISSJÓÐ ÁN AÐKOMU ALÞINGIS.  Ég veit ekki betur  en að enn sé "TRÚNAÐUR" á þessum samningi en hafa ráðherra ENGAR trúnaðarskyldur við almenning í landinu?????  ÞAÐ VANTAR SÁRLEGA "ÓHÁÐAN" STJÓRNLAGADÓMSTÓL HÉR A LANDI....
  • Í júní 2023, braut Svandís Svavarsdóttir þáverandi Matvælaráðherra ákvæði STJÓRNARSKRÁRINNAR um atvinnufrelsi og minnst fjórar aðrar greinar á Almennum lögum með því að banna hvalveiðar með eins dags fyrirvara.  Þegar hún varð þess vör að ekki var samstaða um þessa aðgerð hennar fór hún í "veikindaleyfi"  Og svo þegar hún ætlaði að koma til baka þá beið hennar VANTRAUSTSTILLAGA, sem Flokki Fólksins tókst með ótrúlegum hætti að klúðra (en kannski var það bara ætlunin).  En hún kom sér bara yfir í annað ráðuneyti og ekki batnaði það.  ÞAÐ VANTAR SÁRLEGA "ÓHÁÐAN" STJÓRNLAGADÓMSTÓL HÉR A LANDI...
  • Vorið 2024 var kominn nýr Matvælaráðherra, Bjarkey Ólsen Gunnarsdóttir,hún dró það í marga mánuði  að  veita formlegt leyfi til hvalveiða og bar alltaf við "gögn" vantaði svo hægt væri að veita leyfið (allir vita hver afstaða VG er til hvalveiða og hún hafði séð að  Svandís hafði komist upp með að  brjóta stjórnarskrána og því ekki að láta reyna á það hvort hún gæti það ekki líka?).  ÞAÐ VANTAR SÁRLEGA "ÓHÁÐAN" STJÓRNLAGADÓMSTÓL HÉR A LANDI....
  • Fyrir nokkrum dögum átti að vísa fötluðum dreng og fjölskyldu hans frá Palestínu úr landi til Spánar, sem er algjörlega öruggt land og þar sem meira var að þar var eitt besta sjúkrahús í heimi sem sérhæfðu sig í þeim sjúkdómi sem var að hrjá drenginn.  En einhverra hluta vegna fundu ráðherra VG þá þörf hjá sér að hafa í frammi þá ótrúlegu kröfu að Dómsmálaráðherra STÖÐVAÐI lögregluaðgerð sem þegar var hafin.  Þarna fór Dómsmálaráðherra Guðrún Hafsteinsdóttir langt útfyrir lagaheimildir sínar og það virðist vera að henni finnist það bara allt í lagi.  ÞAÐ VANTAR SÁRLEGA "ÓHÁÐAN" STJÓRNLAGADÓMSTÓL HÉR A LANDI....

Þarna tek ég bara fyrir örfá dæmi en það er af nógu að taka en ef ég tæki fyrir fleira yrði greinin svo löng að enginn myndi nenna að lesa hana....


mbl.is Ísland orðið skálkaskjól fyrir netglæpamenn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

LOKSINS KEMUR EITTHVAÐ FRÁ HONUM AF VITI..........

En er þetta ekki fullseint um rassinn gripið?  Það er svolítið seint að fara á klósettið þegar allt er komið í brækurnar......  


mbl.is Flestar ferðir tilgangslausar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

EINA LEIÐIN TIL AÐ ÍSLAND HALDI SJÁLFSTÆÐI SÍNU ER AÐ SEGJA UPP EES SAMNINGNUM.....

Nú er virkileg þörf á því að  gera aðeins skil á því hvers konar breytingar hafa orðið á eðli og starfsemi ESB frá því að EES samningurinn tók gildi og það þarfnast útskýringa við HVERNIG STENDUR Á ÞVÍ AÐ EES SAMNINGURINN HEFUR EKKI  TEKIÐ NEINUM BREYTINGUM Á ÖLLUM TÍMANUM OG ÞÁ ER ÉG AÐ TALA UM BREYTINGAR Á SAMNINGNUM  FRÁ ÖLLUM SAMNINGSAÐILUNUM?  

Þegar EES samningurinn var undirritaður, var undirritaður var um að ræða VIÐSKIPTASAMNING, sem átti að tryggja EFTA ríkjunum aðgang að „sameiginlegum markaði Evrópu“.  Okkur Íslendingum var „SELDUR“ þessi samningur á þeim forsendum að SJÁVARÚTVEGSVÖRUR YRÐU TOLLFRJÁLSAR en svo kemur í ljós að sjávarútvegsvörur hafa ALDREI verið tollfrjálsar.  BER ENGINN ÁBYRGÐ Á ÞESSUM BLEKKINGUM????  Eins og ég sagði áðan þá var að um viðskiptasamning hafi verið um að ræða en þegar var verið að vina að EES samningnum var þegar verið að vinna að breytingum á ESB, með hinum svokallaða Maastricht samningi sem var gerður árið 1992 en öðlaðist ekki gildi fyrr en mörgum árum síðar vegna þess að ríki ESB voru ekki sátt við hann en eftir að samningurinn hafði verið þvingaður í gegn var reglum ESB breytt í þá átt að samninga ESB þurfti ekki lengur að samþykkja EINRÓMA  heldur ÞURFTI AÐEINS MEIRIHLUTASAMÞYKKI.  En ekki var gerð nein breyting á EES samningnum.  En stærsta breytingin á ESB varð árið 2009 með hinu svokallaða Lissabon samkomulagi, ekki hafði þáverandi Utanríkisráðherra Íslands, sem var á þessum tíma Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, fyrir því að upplýsa landsmenn um þessa miklu breytingu á ESB, sem fór meira í þá áttina að verða pólitískt samband með mun meiri heimildir til framkvæmdastjórnar ESB til miðstýringar innan ESB landanna OG ÞÁ INNAN  EES RÍKJANNA.  Getur ekki verið að BÓKUN 35 sé ein af afleiðingum Lissabon sáttmálans, þv´þessi bókun var ekki inni í upphaflega EES samningnum NEMA ÞAÐ HAFI FARIST FYRIR AÐ BIRTA HANA??????

VERÐI EKKI GRIPIÐ TILRÁÐSTAFANA STRAX OG EINA RÁÐSTÖFUNIN SEM ER FÆR ER AÐ SEGJA EES SAMNINGNUM UPP, GLATAST SJÁLFSTÆÐI LANDSINS OG LANDSMENN VERÐA „LEIGULIÐAR“  ESB.................


HVERSU MARKTÆK ER ÞESSI "SKOÐANAKÖNNUN"???????

Hvernig var hún unnin, hverjar voru forsendurnar og síðast en ekki síst, FYRIR HVERN VAR HÚN GERÐ??????


mbl.is Stuðningur við flugvöll í Vatnsmýrinni hrynur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband