Bloggfærslur mánaðarins, maí 2024

TIL HAMINGJU MEÐ DAGINN NORÐMENN, HEIMA OG AÐ HEIMAN.........

Ég hef orðið þess heiðurs aðnjótandi, að vera staddur út í Noregi á 17 maí, nánar tiltekið í Kristiansand í suður Noregi.  Það mikil hátíðarstemming og allir voru uppáklæddir og allir sem gátu skörtuðu þjóðbúningum eða "bunad" eins og fatnaðurinn hét á máli Norðmanna.  Allt var mjög hátíðlegt skrúðgöngur og öll hátíðarhöld sem hægt var að hugsa sér og greinilegt að þetta var mjög stór dagur í huga ALLRA Norðmanna.  Það var mikill munur að vera í Noregi á 17 maí eða á Íslandi 17 júní.  Í Noregi finnur maður og sér hversu stór og mikill þessi dagur er hjá Norðmönnum en á Íslandi liggur við að þetta sé bara næstum eins og hver annar dagur, kannski er það vegna þess að Norðmenn hafa misst sjálfstæði sitt og vita hvers virði það er????????

 


FYLGJA "RÍKISSTYRKJUM" TIL FJÖLMIÐLA ENGIN SKILYRÐI?????

Er þá ekki komið að okkur borgurum þessa lands, sem óbeint greiðum þessa fjölmiðlastyrki, með skattgreiðslum okkar: "ÞAÐ ERUM VIÐ GREIÐENDUR SKATTA Í ÞESSU LANDI, SEM NEITUM AÐ STYRKJA ÞENNAN FJÖLMIÐIL, SEM EKKI VIRÐIR LÝÐRÆÐIÐ Í LANDINU......


mbl.is Segja ákvörðun Stöðvar 2 ólýðræðislega
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

HVERNIG VÆRI AÐ RÁÐHERRA MENNTAMÁLA OG BARNAMÁLARÁÐHERRA TÆKJU ÞETTA FYRIR HÉR Á LANDI.....

Getur verið að vegna þess að ÖFL innan alþjóðlega stjórnkerfisins "vinna" að því að "BARNANÍÐ" verði samþykkt sem löglegur gjörningur, sé ekkert fjallað um þessi mál?  En samkvæmt þessari frétt vilja Bretar koma í veg fyrir þetta en þó aðeins að hluta til, það á sér kannski þá skýringu að Sunak Forsætisráðherra Bretlands er yfirlýstur fylgjandi World Economic Forum.  KYNFRÆÐSLA, HÉR Á LANDI Í GRUNNSKÓLUM OG Í LEIKSKÓLUM, HEFUR VALDIÐ MIKILLI ÚLFÚÐ EN ÉG VEIT EKKI TIL ÞESS AÐ MENNTAMÁLRÁÐHERRA EÐA BARNAMÁLARÁÐHERRA HAFI NOKKUÐ TJÁÐ SIG UM ÞESSI MÁL... 


mbl.is Vilja banna kynfræðslu barna undir níu ára
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

VONANDI VERÐUR HÚN BARA EFTIR ÞAR.......

En því miður verður mér örugglega ekki að þeirri ósk minni en það allt í lagi að láta sig dreyma.  Þar gæti hún verið í sínum "stríðsleik" án skaða fyrir Íslensku þjóðina og líklega næði hún ekki að vinna meiri skaða en þegar er orðinn......


mbl.is Þórdís Kolbrún á leið til Georgíu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

VERÐUR ÞÁ EKKI ÖÐRU SENDIRÁÐI LOKAÐ Á MÓTI??????

En það hefur lengi verið þörf á að opna sendiráð á Spáni og það  sendiráð myndi einnig þjóna Íslendingum sem búa í Portúgal.  Nú þori ég ekki alveg að fullyrða um það en mér skilst að að búi rúmlega 20.000 Íslendingar á Spáni, þannig að þörfin fyrir sendiráð er örugglega til staðar.  að hafa sendiráð staðsett á Spáni, er örugglega mun nauðsynlegra en sums staðar annars staðar.   Kannski Utanríkisráðherra hefði átt að fela Utanríkismálanefnd að kanna þörf fyrir sendiráð á Spáni þegar hún "lét" loka sendiráðinu í Rússlandi og lét svo Utanríkismálanefnd bara vita af ákvörðuninni og lét eins og Utanríkismálefnd kæmi málið ekki við.  KANNSKI ER UTANRÍKISMÁLANEFND BARA KOMIN Í "SENDLAHLUTVERK" HJÁ UTANRÍKISRÁÐHERRA???????????


mbl.is Til skoðunar að opna sendiráð í Madríd
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ENN ER VERIÐ AÐ NOTA "SKOÐANAKANNANIR" SEM EKKERT ER Á BAKVIÐ TIL AÐ "TEYMA" FÓLK ÁFRAM Á "ASNAEYRUNUM.....

Hversu MARGIR voru spurðir, hversu stórt var SVARHLUTFALLIÐ, hvernig var úrtakið valið og hver er ÁREIÐANLEIKI könnunarinnar?  Það virðist ekki vera fyrir hvern sem er að nálgast þessar upplýsingar og þaðan af síður einhverjar tölfræðilegar upplýsingar, sem eru undirstaða þess að skoðanakönnun geti kallast VÍSINDALEG.  ÆTLAR ÞJÓÐIN ENDALAUST AÐ LEYFA "ELÍTUNNI" AÐ SPILA SVONA MEÐ SIG???????


mbl.is Kappræður setja strik í reikninginn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

MÉR VAR SAGT AÐ LAGIÐ FRÁ ÍSRAEL HAFI VERIÐ EINNA SKÁRST ÞARNA Í "KEPPNINNI".....

Hvað ætli hafi valdið því að Ísland GAF því ekki 12 stig??????


mbl.is Ísland gaf Ísrael 8 stig
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

HÚN HEFUR VERIÐ MEÐ TIL "SKOÐUNAR" MARGAR BREYTINGAR Í MÁLAFLOKKI HÆLISLEITENDA ALVEG FRÁ ÞVÍ AÐ HÚN KOM Í RÁÐUNEYTIÐ....

En það hafa ekki orðið neinar breytingar landamærin eru eins og "GATASIGTI" og ekkert gerist.  Margir bundu miklar vonir við þessa manneskju en hún hefur ekkert gert af viti þarna, enda er ekki talað um hana sem næstu vonarstjörnu flokksins lengur........


mbl.is Kynnir nýja stefnu í málefnum landamæra í sumar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

NOKKUÐ LJÓST HVAÐA LEIK VG ER AÐ LEIKA.........

Það er ÖLLUM sem vilja vita, AÐ MARKMIÐI ER BARA AÐ STÖÐVA HVALVEIÐAR ANNAÐ ÁRIÐ Í RÖÐ og ráðherrastólarnir eru bara svo ÞÆGILEGIR að Sjálfstæðismenn og Framsóknarmenn LÁTA þetta yfir sig ganga.  Þetta er kallað að "PISSA Í SKÓINN SINN" það getur verið þægilegt á meðan hlandið er volgt en það kólnar og þá eru þægindin úr sögunni.  Menn verða líka að minnast þess að MJÖG styttist í KOSNINGAR og ekki öruggt að ALLIR verði búnir að gleyma hvalamálinu.......


mbl.is „Þetta þarf að fara að gerast“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

HALDA RÁÐHERRA OG ÞINGMENN AÐ STJÓRNARSKRÁIN SÉ BARA EITTHVERT GRÍN (endurbirt blogg frá 21.02.2024)

Nú er heldur betur komið að því að Alþingis-menn/konur fari að fara eftir stjórnarskránni okkar og virði hana í hvívetna EINS OG ÞEIR HAFA SVARIÐ AР GERA ÞEGAR SEST ER Á ÞING OG AÐ SJÁ TIL ÞESS AÐ LÖG SEM ALÞINGI SETUR STANDIST STJÓRNARSKRÁNA .  Nú er tækifærið til þess að fara eftir stjórnarskránni að einhverju leyti.  Málið er að ráðherrarnir eiga EKKERT erindi á Alþingi   (það er nánar fjallað um þetta síðar í greininni).  Þegar ráðherrar hafa verið skipaðir verður að kalla inn varamenn fyrir þá, en þá verður engin FÆKKUN á Alþingi.  Þá er helsta ráðið að gerð verði breyting á lögum um fjölda Alþingismanna á þessu kjörtímabili þar, sem lagt yrði til að Alþingismönnum yrði FÆKKAÐ úr 63 í 40 (Það þarf ekki fleiri þingmenn til að samþykkja þau lög og reglugerðir sem koma frá ESB og þar að auki eru mjög margir þingmenn komnir með einn eða fleiri aðstoðarmenn).  Það  verður að fara fram að minnsta kosti endurskoðun á EES samningnum og uppsögn á Schengen samkomulaginu.

Allt frá okkar fyrstu árum í skóla hefur okkur verið sagt að hin svokallaða þrískipting ríkisvaldsins sé grundvöllurinn að stjórnskipun lýðveldisins Íslands.  Eins og allir vita skiptist valdið í: LÖGGJAFARVALD, FRAMKVÆMDAVALD og DÓMSVALD.

En eftir að stöðuveitingar ráðherra komust í hámæli, þá fór ég nú að skoða þessa þrískiptingu ríkisvaldsins betur og miðað við þá skoðun þá komst ég að því að skilin þarna á milli eru orðin afskaplega óskýr og sum staðar eru þau bara alveg horfin, hafi þau einhvern tíma verið til staðar.

LÖGGJAFARVALD er samkvæmt stjórnarskránni í höndum Alþingis og forseta.  Alþingismenn og konur fá umboð sitt frá þjóðinni, til fjögurra ára í senn, þeirra hlutverk er að setja lög sem þjóðin á að fara eftir og forseti veitir þessum lögum samþykki sitt. 

FRAMKVÆMDAVALD er ráðherra viðkomandi málaflokks og staðfestir forsetinn skipan viðkomandi ráðherra.  Viðkomandi ráðherra á að sjá um framkvæmd þeirra laga sem Alþingi setur.

DÓMSVALD er í höndum dómara.

Þannig er þrískiptingu ríkisvaldsins háttað þessum ÞREMUR þáttum á að halda algjörlega aðskildum til að tryggja sem best lýðræði og réttláta meðferð þegna landsins gegn hinu opinbera.

En eitthvað virðist þetta hafa skolast til á undanförnum árum og jafnvel áratugum og hægt er með nokkuð góðri samvisku að fullyrða það að þrískipting ríkisvaldsins hafi aldrei að fullu verið til framkvæmdar hér á landi.  Þessa fullyrðingu verður að skoða nánar og mun ég gera tilraun til þess hér á eftir.

Við skulum byrja á því að skoða LÖGGJAFARVALDIÐ:  Á Alþingi sitja 63 fulltrúar kjörnir af þjóðinni, það er óumdeilt, en af þessum 63 þingmönnum eru 12 ráðherrar,  Þarna er strax komin skörun.   Það er þannig að þegar kjörnir þingmenn, verða tilnefndir sem ráðherrar, þá eiga þeir að segja af sér þingmennsku og kalla inn varamenn sína.   Það er svo tilhögunin á Alþingi, að svokölluð ráðherrafrumvörp njóta forgangs í störfum þingsins, en þetta þýðir að þau frumvörp sem eru borin upp af ráðherra hafa forgang framyfir svokölluð þingmannafrumvörp.  Ég tel að þarna sé um að ræða brot á stjórnarskránni.  Samkvæmt þrískiptingu ríkisvaldsins eiga ráðherrar ekki að hafa atkvæðisrétt á Alþingi og spurning hvort þeir eigi yfirhöfuð nokkuð að eiga sæti þar.   Það er spurning hvort störf Alþingis yrðu ekki bara “skilvirkari” ef ráðherrar myndu bara mæta einu sinni í viku eða sjaldnar í fyrirspurnartíma niður á þing?  Það er erfitt að skrifa nokkuð sérstaklega um FRAMKVÆMDAVALDIÐ vegna þess að þessi grein fjallar um það hvernig það hefur smám saman verið að “taka yfir” LÖGGJAFARVALDIÐ og DÓMSVALDIÐ.  Það verður ekki um það deilt að FRAMKVÆMDAVALDIÐ er alltaf að verða fyrirferðarmeira í stjórnsýslu okkar Íslendinga.  Þá er eftir að fara yfir DÓMSVALDIÐ.  Ekki hefur það orðið útundan í þessari þróun.  DÓMSVALDIÐ á samkvæmt stjórnarskránni að standa alveg sjálfstætt.  En er það alveg sjálfstætt?  Ég verð að viðurkenna vankunnáttu mína þar en ég veit ekki hvenær ráðherra byrjaði að skipa dómara, en í stjórnarskránni stendur í 59 grein “Skipun dómsvaldsins verður eigi ákveðin nema með lögum” (Tilvitnun líkur, leturbreytingar eru mínar), þá er það skilningur minn, samkvæmt þessu,að ráðherra eigi EKKI að skipa dómara og er þá ekki með góðu móti hægt að segja að stjórnarskráin hafi verið brotin í  mörg ár eða jafnvel áratugi?  Ekki einvörðungu hefur framkvæmdavaldið seilst til áhrifa í löggjafarvaldinu heldur er það einnig komið með puttana í dómsvaldið (samanber Það að flestir dómarar, bæði í Héraðsdómi og Hæstarétti, eru orðnir pólitískt skipaðir) og ALLIR MUNA EFTIR „FARSANUM“ Í SAMBANDI VIÐ SKIPUN DÓMARA Í LANDSRÉTT.  En í því máli tel ég að hafi verið gerð AFDRIFARÍK MISTÖK.  Í dómi mannréttindadómstóls Evrópu kom fram að ALLIR DÓMARAR LANDSRÉTTAR VÆRU ÓLÖGLEGA SKIPAÐIR, EKKI BARA FJÓRIR, VEGNA ÞESS AÐ ALÞINGI HAFI EKKI STAÐIÐ RÉTT AÐ SKIPAN ÞEIRRA. ALÞINGI ÁTTI AÐ KJÓSA UM HVERN OG EINN ÞEIRRA Í STAÐ ÞESS AÐ KJÓSA UM ALLAN HÓPINN Í EINU.  þá kom einnig fram ádeila á FORSETA LÝÐVELDISINS fyrir hans afgreiðslu á málinu.  En minnsta ádeilan var á störf Dómsmálaráðherra, sem samt var sú eina í þessu máli, sem var „látin“ sæta ábyrgð.

 Það er mín skoðun að stjórnarskráin, sem slík sé mjög gott plagg og hefur hún þolað mjög vel tímans tönn en aftur á móti hef ég meiri áhyggjur af þeim sem eru á Alþingi og eiga að sjá til þess að það sé unnið í samræmi við stjórnarskrána meðal annars á að gæta þess að lög sem eru sett séu í samræmi við stjórnarskrána á því vill nú vera misbrestur.  Það er tími til kominn að stjórnarskráin verði virt og fyrsta skrefið í þá átt er að „MOKA“ RÁÐHERRUNUM út af Alþingi enda eiga þeir alls ekki heima þar.  Sem dæmi má geta þess að það getur ekki verið eðlilegt að ráðherrarnir sitji heilu og hálfu dagana niðri á Alþingi og „bori bara í nefið á sér“.  Maður hefði haldið að það væri full vinna að stjórna landinu í það minnsta er ekki mjög trúverðugt að menn og konur geti bara gert þetta með annarri hendinni.   Það er ekki skrítið að hver ráðherra skuli hafa minnst tvo aðstoðarmenn, því ráðherrann þarf að eiða tímanum niðri á þingi, þar sem hann á EKKERT ERINDI. Svo eru þingmenn orðnir allt of margir.  Með því að henda ráðherrunum út úr Alþingishúsinu, væri stigið fyrsta skrefið í því að FÆKKA alþingismönnum, en þar væri einungis komið FYRSTA skrefið af mörgum.  Alþingismenn þurfa alls ekki að vera fleiri en 40, það sem þarf að gera er að störf Alþingis verði gerð markvissari og einfaldari.  Þegar sjónvarpað er frá þingfundi (nema „Eldhúsdagsumræðu“ hvers vegna hún hefur fengið þetta nafn er mér algjörlega hulin ráðgáta), er þingsalur yfirleitt hálftómur.  Þetta vekur þá spurningu hvort ekki væri hagstæðara að hafa þingfundi tvisvar í viku og þar af yrði annar dagurinn þar sem ráðherra tækju þátt og svöruðu fyrir embættisfærslur sínar.  Þrír dagar yrðu svo teknir í nefndastörf og önnur störf þingsins.  Áður en fólk fer að tala um að það vanti nýja stjórnarskrá er lágmark að sú stjórnarskrá sem er nú þegar til staðar sé virt.  Það hefur verið alveg með ólíkindum að horfa upp á starfsemi þingsins og oft hefur það hvarflað að manni að þingið sé með öllu stjórnlaust, ég er alveg viss um að það væri búið að reka forseta þingsins fyrir stjórnleysi og handvömm ef hann væri að vinna í einkageiranum.  Ég minntist EKKI á ÞINGSÁLYKTUNARTILLÖGURNAR í þessari samantekt minni, en að mínu áliti standast lögin um þingssköp Alþingis númer 55/1991 þar sem „þingsályktunartillögur“ ber fyrst á góma við stjórnarskrárbreytingar árið 2001,  EKKI stjórnarskrána.   Það  var svo ekki fyrr en árið 2020, sem skrifstofa Alþingis gaf út leiðbeiningar um HVERNIG vinna skyldi „þingsályktunartillögur“, fram að þeim tíma höfðu þær víst verið nokkuð skrautlegar margar hverjar.  Fyrst þegar var verið að verja það að bera skyldi fram mál sem „þingsályktunartillögur“, var því borið við að þar yrði aðeins um „SMÁMÁL“ að ræða sem væru það lítilvæg að ekki tæki því að fara með þau til forsetans til undirskriftar.  Fyrstu árin eftir árið 2001, eftir að þessu ákvæði var „laumað“ inn héldu menn sig við að  „smærri málin voru afgreidd með þingsályktunartillögum, en í júní 2009 urðu ákveðin tímamót í þessum efnum; ÞÁ VAR SAMÞYKKT ÞINGSÁLYKTUNARTILLAGA UM AÐILDARUMSÓKN ÍSLANDS AР ESB yrði útbúin og send (Þingsályktunartillaga 1/137 frá júní 2009).  Og ekki er hægt að segja að þarna sé um eitthvað SMÁMÁL að ræða, en samkvæmt mínum athugunum gerist það þarna að þingsályktunartillögum fjölgar alveg gífurlega.  En svo  við förum aftur að ESB umsóknin í júní 2009 þá er þarna ekki um neitt „SMÁMÁL“ að ræða.  Eftir óstaðfestum heimildum sem ég hef undir höndum, þá var þarna um að ræða ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur og Steingríms Jóhanns Sigfússonar og þar var Utanríkisráðherra Össur Skarphéðinsson.  Þegar umsóknin kom til tals, „strandaði“ alltaf á því að Jóhanna og flokksmenn hennar höfðu þá staðföstu trú að þáverandi forseti lýðveldisins myndi ALDREI skrifa undir þessa umsókn, sem þýddi að þá yrði þjóðaratkvæðagreiðsla og það væri alveg einsýnt að þar yrði umsóknin FELLD og þar með yrði umsóknin dauð.  Þá datt einhverjum snillingi í hug  (sagt er að sá snillingur hafi verið Össur Skarphéðinsson) að leggja aðildarumsóknina að  ESB,  fram sem þingsályktunartillögu því þá þyrfti ekki að hafa ÁHYGGJUR AF FORSETANUM.  Hvort gjörningurinn væri brot á lögum væri seinni tíma vandamál.  Eftir þetta fóru mörg STÆRRI mál í gegnum þingið sem þingsályktunartillögur.  Alls hafa 1.287 mál farið í gegn sem þingsályktunartillögur og er það vel merkjanlegt hvað þessum málum hefur fjölgað mikið síðan 2009og „þröskuldurinn“ á stærð málanna hefur hækkað mikið.  Ég fór lauslega yfir þennan lista af þingsályktunartillögum frá upphafi og af þessum 1.287þingsályktunartillögum eru 246, sem varða BREYTINGAR á „viðaukum“ EES samningsins og ég sem hélt að ekki væri hægt að breyta gerðum samningi jafnvel þó aðeins sé um að ræða viðauka.  Ég er ansi hræddur um að margt athugavert kæmi í ljós ef allar þessar þingsályktunartillögur yrðu skoðaðar.

 

Nú er sem dæmi eftir nokkra daga að hefjast fundur, þar sem verður ákveðið HVORT ÍSLAND OG 193 ÖNNUR RÍKI AFSALI SÉR ÖLLU VALDI  TIL WHO (ALÞJÓÐA HEILBRIGÐISMÁLASTOFNUNARINNAR) OG ÞÁ FARI WHO MEÐ ÖLL VÖLD Í HEILBRIGÐISMÁLUM  ÞJÓÐARINNAR.   Þarna er óumdeilt  að um sé að ræða FRAMSAL Á VALDI TIL ERLENDRA AÐILA, SEM ER MEÐ ÖLLU ÓHEIMILT SAMKVÆMT STJÓRNARSKRÁNNI.  Ég veit ekki til þess að þetta mál hafi verið rætt á Alþingi og eina umræðan sem ég hef heyrt um þetta mál e rá útvarpi Sögu og þingmenn konur hafa ekki fengist í viðtal þar og bera þeir því við að þeir hafi ekki haft tíma til að setja sig inn í málið.  Ætla þeir (þingmennirnir) að setja sig inn í málið EFTIR að búið er að skrifa undir og hvað á þá að gera??????

 

Nú reynir heldur betur á ALLA þá sem sitja á Alþingi Íslendinga.  Nú á að  leggja fram á Alþingi LANDRÁÐAFRUMVARP, sem nefnt er BÓKUN 35,  það er ekki minnsti vafi að þetta felur í sér VALDAFRAMSAL.  ÉG VEIT  EKKI BETUR  EN AÐ ALLIR SEM SETJAST Á ÞING (þar með taldir ráðherrar, sem ég tel að eigi alls ekki að sitja á þingi þar sem þeir tilheyra FRAMKVÆMDAVALDINU en ég fjalla aðeins um þetta annars staðar í pistlinum) SVERJI EIÐ AÐ STJÓRNARSKRÁNNI OG STJÓRNARSKRÁIN HEIMILAR EKKI VALDFRAMSAL.  Ég reikna nú ekki með að  þingmenn eigi að  rifja þennan eið upp við upphaf hvers þings, EN KANNSKI VÆRI EKKI VANÞÖRF Á ÞVÍ..............

 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband