Bloggfærslur mánaðarins, júní 2024

"GLÓBALISTARNIR" STANDA SAMAN.............

En nú kemur sko heldur betur til með að reyna á Höllu Tómasdóttur, allt sem hún sagðist ætla að gera að standa með og vinna að hagsmunum Íslensku þjóðarinnar, það verður fylgst VEL með störfum hennar í þessu embætti.  Henni hefur ekki tekist, á trúverðugan hátt, að svara fyrir tengsl sín við World Economic Forum, frekar en nafna hennar Halla Hrund Logadóttir.  EN EITT DRÖGUM VIÐ ÚT ÚR ÞESSARI NÝAFSTÖÐNU KOSNINGABARÁTTU: "ÚRSLIT KOSNINGANNA VORU  EKKI Í NEINU SAMRÆMI VIÐ SKOÐANAKANNANIRNAR".  Nú er komið að því að samband okkar við "SKOÐANAKANNANIR" verði ENDURSKOÐAÐ........


mbl.is Selenskí óskar Höllu til hamingju
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

TIL HAMINGJU MEÐ DAGINN SJÓMENN OG FJÖLSKYLDUR ÞEIRRA.......

Því miður er SJÓMANNADAGURINN og hátíðahöld vegna hans ekki nema sviður hjá sjón, núna seinni árin.  Það er ekki nema á fáeinum stöðum úti á landi, sem eitthvað er gert almennilegt í tilefni dagsins og þar ber Grindavík af með það hversu hátíðahöld eru vegleg og þar í bæ, virðist fólk gera sér grein fyrir því hversu STÓRAN þátt SJÁVARÚTVEGUR OG SJÓMENNSKA EIGA Í LÍFSKJÖRUM ÞJÓÐARINNAR Í DAG.  Einhverjir virðast halda að  peningarnir verði til í fjármálageiranum.  Í Reykjavík var farið í þá vegferð, fyrir nokkrum árum, að leggja niður nafnið SJÓMANNADAGUR og þess í stað var haldin "hátíð hafsins", ekki veit ég hver var ástæðan fyrir þessari vitleysu (hvað var eiginlega að því að þetta héti SJÓMANNADAGURINN áfram?). En eitthvað var það sem vantaði og sögðu sumir að "SJARMINN" sem var yfir þessum degi væri ekki lengur til staðar.  Svo fór að þessu var breytt aftur til fyrri vegar, hátíðahöldin hafa eitthvað hjarnað við en dagurinn er ekki svipur hjá sjón enn þann dg í dag enda hefur ekki verið lagt í það að skýra frá þessari breytingu til fyrri vegar eins og þegar fyrri breytingin var gerð.....

 


ÞAÐ VERÐUR VÍST BARA AÐ SÆTTA SIG VIÐ ÞETTA EINS OG HVERT ANNAÐ "HUNDSBIT"....

Ég óska Höllu Tómasdóttur til hamingju með sigurinn og vonandi verður hún farsæl í starfi.  En ég ætla að bíða með að óska þjóðinni til hamingju  með kjör hennar þar til einhver reynsla kemur á störf hennar.  En við getum þó fagnað því að fyrrum Forsætisráðherra varð ekki fyrir valinu, eins og stefndi í.  En mér skilst að hún sé á leiðinni úr landi, þar sem hún hefur fengið vel borgaða skattfrjálsa "vinnu" og kannski verður hún áfram sendiherra WHO í aukavinnu??????


mbl.is Halla: Mér líður ótrúlega vel
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

HVERNIG SEM ALLT FER ÞÁ ER HÆGT AÐ SEGJA AÐ ÁSTÞÓR MAGNÚSSON VERÐI "RAUNVERULEGUR" SIGURVEGAGRI ÞESSARA KOSNINGA

Hvers vegna segi ég þetta?  Jú ég gat ekki betur séð, á RÚV í gærkvöldi, en að flestir ef ekki allir forsetaframbjóðendurnir ætluðu að hafa það sem forgangi að FRIÐUR yrði í forgangi í þeirra störfum í framtíðinni.  En ég get ekki látið það vera að koma að framgöngu "míns manns" í gærkvöldi: Hann hreinlega bar af í framgöngu sinni og hversu kurteis og málefnalegur hann var.  ARNAR ÞÓR SÝNDI ÞAÐ OG DANNAÐI AÐ HANN BAR HÖFUÐ OG HERÐAR YFIR AÐRA ÞÁTTTAKENDUR OG ÞAÐ VERÐUR MIKILL SÓMI AÐ ÞVÍ AÐ HAFA ÞENNAN MANN Á BESSASTÖÐUM....


mbl.is Sjöundi forseti Íslands kjörinn í dag
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband