Bloggfærslur mánaðarins, júní 2024

ÞAÐ LEYNIST ÞÁ ÖRLÍTIÐ LÍFSMARK Í HENNI EFTIR ALLTSAMAN.....

Ég gat bara ekki séð að þessi manneskja væri að gera nokkurn skapaðan hlut í embætti sínu nema núna á blálokin og svo þegar ríkisstjórnin er alveg á lokametrunum  þá lýsir hún því yfir að það sé meira á leiðinni. EN ÞAÐ ER BARA OF SEINT AÐ FARA Á KLÓSETTIÐ ÞEGAR ER BÚIÐ AÐ SKÍTA Á SIG......


mbl.is Hvergi nærri hætt – Boðar annað útlendingafrumvarp
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ÞAÐ ERU NÚ FORDÆMI FYRIR ÞVÍ AÐ RÁÐHERRA, SEM SÉR FRAM Á VANTRAUST, HLAUPI BARA YFIR Í ANNAÐ RÁÐUNEYTI

Og þar með sé nú bara málið úr sögunni.  Og það dapurlega við þetta er að fólk kemst upp með þetta, þingmenn virðast vera þeir AUMINGJAR að þeir láta svona lagað viðgangast, þegjandi og hljóðalaust.   STEFNA VG AÐ HVALVEIÐAR VIÐ STRENDUR ÍSLANDS VERÐI STÖÐVAÐAR FYRIR FULLT OG ALLT OG VIRÐIST VERA ALVEG SAMA HVAÐA AÐFERÐUM SÉ BEITT LÖGLEGUM EÐA ÓLÖGLEGUM.  Þessari STEFNU VG hafa ráðherrar flokksins fylgt og það alveg upp á punkt og kommu.  Fyrsti ráðherrann til þess að "fylgja þessari stefnu eftir" var Svandís Svavarsdóttir og allir þekkja til hennar starfa í þessu máli, framan af þá var hún frekar varkár og kom sér hjá því að brjóta brjóta lög í störfum sínum.  En þegar hún sá að það gekk ekki upp greip hún til "örþrifaráða" og stöðvaði hvalveiðar MEÐ EINS DAGS FYRIRVARA og þar með braut hún greinina um atvinnufrelsi í stjórnarskránni, lög um stjórnsýslu og ágreiningur er um hvort hún braut greinar í hegningarlögum einnig.  Í það minnsta ollu þessar aðgerðir hennar miklum usla í þjóðfélaginu og meðal annars var boðuð vantrausttillaga á hana þegar Alþingi kæmi saman þá um haustið (í fyrra).  Þá komu  upp "VEIKINDI" hjá Svandísi,  tilkynnt var að hún hefði greinst með krabbamein og færi í veikindaleyfi um óákveðinn tíma, beðið var með vantrausttillöguna þar til hún kæmi til baka en þegar hún kom til baka, fór hún bara í annað ráðuneyti og HÆTT VAR VIÐ AÐ LEGGJA VANTRAUSTTILLÖGUNA FRAM, það er nokkuð sem ég get ekki með nokkru móti skilið, ÞAÐ VAR VERIÐ AÐ LEGGJA FRAM VANTRAUST Á MANNESKJUNA SVANDÍSI SVAVARSDÓTTUR EN EKKI RÁÐUNEYTIÐ.  Þegar Svandís Svavarsdóttir fór í "veikindaleyfið" tók Katrín Jakobsdóttir fyrrverandi Forsætisráðherra við Matvælaráðuneytinu og virðist hún hafa ákveðið að vera stefnu VG trú og gerði bara ekki nokkurn skapaðan hlut MEÐAL ANNAR ÁKVAÐ HÚN AÐ SVARA EKKI UMSÓKN HVALS. UM LEYFI TIL HVALVEIÐA (það verður erfitt að sanna að þarna hafi verið um ásetning að ræða).  En fyrrverandi Forsætisráðherra  virðist ætla að "sleppa" fyrir horn þarna og þegar hún "flúði" úr ríkisstjórninni til að fara í Forsetaframboð, kom inn "BLÓRABÖGGULL" Bjarkey Ólsen Gunnarsdóttir, sem hafði lýst yfir MIKILLI ANDSTÖÐU VIÐ HVALVEIÐAR og hennar vinna í þessu máli hefur borið keim af því.  Vinna ALLRA VG liða í þessu máli hefur borið stefnu VG í þessu máli vitni og virðast ÖLL meðul í þessari baráttu vera notuð og skiptir þá engu máli hvort þau séu LÖGLEG EÐA EKKI. í HVAÐA RÁÐUNEYTI ÆTLI BJARKEY ÓLSEN GUNNARSDÓTTIR FARI EÐA ÆTLI HÚN SÉ EKKI TALIN ÞESS VIRÐI AÐ HAFA TILBÚNA EINHVERJA FLÓTTALEIÐ FYRIR HANA??  SVO VAKNAR ÖNNUR SPURNING: ÞAÐ ER SKILYRÐI FYRIR INNGÖNGU LANDS Í ESB, AÐ Í VIÐKOMANDI LANDI SÉU EKKI LEYFÐAR HVALVEIÐAR".  GETUR VERIÐ AÐ ÞETTA SÉ LIÐUR Í ÞVÍ AÐ VERIÐ SÉ AÐ UNDIRBÚA INNGÖNGU Í ESB??????????


mbl.is Skoða vantraust á Bjarkeyju
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

PIPARÚÐA ER SÍÐUR EN SVO BEITT ÁN ÁSTÆÐU........

Kunningi minn var staddur þarna á Austurvelli, á þeim tíma sem var hvað heitast í kolunum og satt best að  segja var hann bara hissa á þeirri þolinmæði sem lögreglan hafði fyrir þessu liði og þeim "dólgshætti" sem það  sýndi af sér, áður en farið var út í aðgerðir.  Hann sagðist ekki hafa séð neitt "FRIÐSAMLEGT"í hátterni þessa liðs og eins og áður sagði þá var hann hissa á þeirri þolinmæði sem lögreglan sýndi þessu liði.  KANNSKI ER ÞETTA LIÐ KOMIÐ MEÐ EINHVERJA NÝJA SKILGREININGU Á ÞVÍ HVAÐ SÉU "FRIÐSAMLEG MÓTMÆLI"??????


mbl.is Lögreglan beitti piparúða á mótmælendur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

NÚ "VERÐUR" AÐ FARA AÐ VIRKJA LANDSDÓM AFTUR...........

Og ekki eingöngu vegna vinnubragðanna í þessu "hvalamáli", þar sem ýmis lög hafa verið brotin og þar með STJÓRNARSKRÁIN svo var það sama gert í sambandi við "BÓLUEFNASAMNINGANA" svokölluðu en þá var stjórnarskráin þverbrotin af þáverandi Forsætisráðherra, þáverandi Heilbrigðisráðherra og þáverandi Fjármálaráðherra og er landsdómur EINA leiðin, sem landsmenn hafa til að koma lögum yfir þetta fólk en þingmenn hafa gefið það út að þeir ætla ALDREI samvisku sinnar vegna, AÐ NOTA LANDSDÓMÚRRÆÐIÐ AFTUR.  EN AÐ MÍNUM DÓMI HAFA ÞEIR EINFALDLEGA ENGA HEIMILD TIL ÞESS AÐ ÁKVEÐA AÐ ÞEIR ÆTLI EKKI AÐ FRAMFYLGJA GILDANDI LÖGUM Í LANDINU OG ÞAÐ MEIRA AÐ SEGJA STJÓRNARSKRÁNNI, SEM ÞEIR SVERJA EIÐ AÐ FYLGJA................. 


mbl.is Leiðin til að drepa atvinnurekstur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

LOKSINS VIRÐAST RÁÐAMENN HÉR Á LANDI VERA AÐ VAKNA TIL MEÐVITUNAR....

Það hefur vakið furðu margra að hælisleitendur, sem gerast brotlegir við lög, skuli ekki umsvifalaust hafa verið vísað úr landi með því skilyrði að þeir hafi EKKI heimild til að koma til landsins um alla framtíð.  Skýrasta dæmið er að sjálfsögðu þessi hælisleitandi sem truflaði störf Alþingi og hékk utaná svölunum fyrir framan sæti áhorfenda á þingpöllum og gerði hróp að þingmönnum.  En svo er annað alvarlegt mál, þetta lið virðist ekki gera sér grein fyrir því hvað það  þýðir að vera vísað úr landi.  ÞETTA FÓLK BARA KEMUR TIL BAKA OG ÞAÐ OFT Í SÖMU FLUGVÉL OG ÞEIR ERU Í SEM FYLGDU ÞEIM ÚR LANDI OG BYRJAR BARA SAMA LEIKINN UPP Á NÝTT. Það er algjört lámark að það verði tekið á svona löguðu og það á bara að beita HÖRÐUM VIÐURLÖGUM svo þessi "þurs" geri sér almennilega grein fyrir því að lög og reglur hafa gildi og það á að fara eftir þeim...........


mbl.is 72 erlendum brotamönnum vísað á brott
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

FULL ÁSTÆÐA TIL AÐ SKOÐA TENGSL SAMTAKANNA ÍSLAND-PALESTÍNA VIÐ HAMAS

Og það er mun fleira sem væri full ástæða til að skoða: Hvernig væri til dæmis að skoða þennan EINHLIÐA fréttaflutning af átökunum á Gaza?  Sem dæmi er hægt að nefna að það var MIKIÐ mál að Palestínumenn VORU DREPNIR (það er bara þannig að í stríðsátökum FALLA menn en eru ekki DREPNIR) þegar  fjórir gíslar voru frelsaðir úr höndum Hamas.  En það er EKKERT fjallað um það að þessir vesalingar í HAMAS FELA SIG í "ormagöngum" undir Sjúkrahúsum og flóttamannabúðum.  Þetta verður til þess að mannfall almennra borgara á Gaza verður mun meira fyrir vikið.  Það er talið að milli 70-90% almennra borgara sem FALLA á Gaza séu KONUR og BÖRN EN HVAR HALDA KARLMENNIRNIR SIG?  Jú þeir eru öruggir í "ormagöngunum", svo þegar árásin er yfirstaðin þá skríða mennirnir upp úr "ormagöngunum" og og eru grátandi og kveinandi yfir því að konan og börnin hafi fallið (verið drepins) í árás Ísraelsmanna.  SAMSETNING ÞEIRRA SEM FALLA Í ÁTÖKUM HLÝTUR AÐ GEFA TIL KYNNA HVERNIG SAMSETNING ÍBÚANNA ER???????


mbl.is Gert að svara um tengsl við Hamas
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

DÆMIGERT "PÓLITÍSKT" SVAR OG UNDIRSTRIKAR AUMINGJASKAP SJÁLFSTÆÐISMANNA Í ÞESSU HVALAMÁLI.......

Og ekki eru Framsóknarmenn skömminni skárri, þetta segir okkur það  bara að- þessir vesalingar (Sjálfstæðismenn og Framsóknarmenn) gera ALLT og þar með að láta VG traðka á sér, bara til að  halda þessu STEINDAUÐA ríkisstjórnarsamstarfi áfram.........


mbl.is Afgreiðsla ráðherra tekið of langan tíma
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ÞESSI VINNUBRÖGÐ VG-LIÐA ÆTTU EKKI AÐ KOMA NEINUM Á ÓVART......

Bjarkey Ólsen Gunnarsdóttir var margsinnis búin að  lýsa því yfir að hún væri  MJÖG andvíga hvalveiðum og meira að segja löngu áður en Svandís stöðvaði þær ÓLÖGLEGA með EINS DAGS FYRIRVARA og því þarf ekki að koma neinum á óvart að hún fylgi vinnubrögðum forvera sinna í matvælaráðuneytinu í þessu máli.  Það sem kemur meira á óvart er að Svandís Svavarsdóttir skuli hafa komist upp með það að hlaupa bara yfir í annað ráðuneyti TIL ÞESS AÐ KOMAST HJÁ ÞVÍ AÐ VANTRAUSTTILLAGA KOMI FRAM.  Þetta er atriði, sem ég get ekki með nokkru móti skilið.  ÞAÐ STÓÐ TIL AÐ LÝSA YFIR VANTRAUSTI VEGNA VINNUBRAGÐA SVANDÍSAR SVAVARSDÓTTUR EN EKKI MATVÆLARÁÐUNEYTIÐ SEM SLÍKT OG VINNUBRÖGÐ HENNAR BREYTAST EKKERT NEITT VIÐ ÞAÐ AÐ HÚN FARI Í ANNAÐ RÁÐUNEYTI.....


mbl.is Ætti að fá skussaverðlaun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

OG ENN Á AÐ FARA Í KRINGUM STJÓRNARSKRÁNA OG KOMA "BÓKUN 35" Í GEGNUM ÞINGIÐ SEM ÞINGSÁLYKTUNARTILLÖGU.......

Að mínu áliti standast lögin um þingssköp Alþingis númer 55/1991 þar sem „þingsályktunartillögur“ ber fyrst á góma við stjórnarskrárbreytingar árið 2001, EKKI stjórnarskrána.   Það  var svo ekki fyrr en árið 2020, sem skrifstofa Alþingis gaf út leiðbeiningar um HVERNIG vinna skyldi „þingsályktunartillögur“, fram að þeim tíma höfðu þær víst verið nokkuð skrautlegar margar hverjar.  Fyrst þegar var verið að verja það að bera skyldi fram mál sem „þingsályktunartillögur“, var því borið við að þar yrði aðeins um „SMÁMÁL“ að ræða sem væru það lítilvæg að ekki tæki því að fara með þau til forsetans til undirskriftar.  Fyrstu árin eftir árið 2001, eftir að þessu ákvæði var „laumað“ inn héldu menn sig við að  „smærri" málin voru afgreidd með þingsályktunartillögum, en í júní 2009 urðu ákveðin tímamót í þessum efnum; ÞÁ VAR SAMÞYKKT ÞINGSÁLYKTUNARTILLAGA UM AÐILDARUMSÓKN ÍSLANDS AР ESB (Þingsályktunartillaga 1/137 frá júní 2009).  Og ekki er hægt að segja að þarna sé um eitthvað SMÁMÁL að ræða, en samkvæmt mínum athugunum gerist það þarna að þingsályktunartillögum fjölgar alveg gífurlega.  En svo  við förum aftur að ESB umsóknin í júní 2009 þá er þarna ekki um neitt „SMÁMÁL“ að ræða.  Eftir óstaðfestum heimildum sem ég hef undir höndum, þá var þarna um að ræða ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur og Steingríms Jóhanns Sigfússonar og þar var Utanríkisráðherra Össur Skarphéðinsson.  Þegar umsóknin kom til tals, „strandaði“ alltaf á því að Jóhanna og flokksmenn hennar höfðu þá staðföstu trú að þáverandi forseti lýðveldisins myndi ALDREI skrifa undir þessa umsókn, sem þýddi að þá yrði þjóðaratkvæðagreiðsla og það væri alveg einsýnt að þar yrði umsóknin FELLD og þar með yrði umsóknin dauð.  Þá datt einhverjum snillingi í hug  (sagt er að sá snillingur hafi verið Össur Skarphéðinsson) að leggja aðildarumsóknina að  ESB,  fram sem þingsályktunartillögu því þá þyrfti ekki að hafa ÁHYGGJUR AF FORSETANUM.  Hvort gjörningurinn væri brot á lögum væri seinni tíma vandamál.  Eftir þetta fóru mörg STÆRRI mál í gegnum þingið sem þingsályktunartillögur.  Alls hafa 1.287 mál farið í gegn sem þingsályktunartillögur og er það vel merkjanlegt hvað þessum málum hefur fjölgað mikið síðan 2009 og „þröskuldurinn“ á stærð málanna hefur hækkað mikið.  Ég fór lauslega yfir þennan lista af þingsályktunartillögum frá, þegar ég skoðaði allt í sambandi við þær í byrjun janúar á þessu ári voru þingsályktunartillögurnar 1.287 frá upphafi og þar af voru 246, sem varða BREYTINGAR á „viðaukum“ EES samningsins og ég sem hélt að ekki væri hægt að breyta gerðum samningi jafnvel þó aðeins sé um að ræða viðauka.  Ég er ansi hræddur um að margt athugavert kæmi í ljós ef allar þessar þingsályktunartillögur yrðu skoðaðar.  Nú berast þær fréttir að enn einu sinni standi til að fara framhjá forseta Íslands og að BRJÓTA STJÓRNARSKRÁNA með því að LEGGJA "BÓKUN 35" FRAM Í ÞINGINU SEM ÞINGSÁLYKTUNARTILLÖGU og beita þar með sömu aðferðum og Ríkisstjórn Heilagrar Jóhönnu og Gunnarsstaða Móra beitu við að koma umsókninni um aðild að ESB í "gegn" (eftir því sem ég best veit hefur sú umsókn EKKI verið AFTURKÖLLUÐ).  Að mínu mati er BÓKUN 35 það STÓRT MÁL að hún VERÐI að meðhöndlast sem LAGAFRUMVARP.  EES samningurinn er að verða landi og þjóð ansi kostnaðarsamur og farinn að "höggva" mikið í sjálfstæði þjóðarinnar og ekki síst fyrir atbeina ráðamanna þjóðarinnar, þess vegna get ég ekki betur séð en að það fyrir löngu orðið tímabært að segja honum upp. Standast flestar þessar þingsályktunartillögur stjórnarskrána? Á EKKI FORSETI ÞINGSINS EKKI AÐ SJÁ TIL ÞESS AÐ STJÓRNARSKRÁIN SÉ VIRT OG ER HANN AÐ SINNA STARFI SÍNU?????

 


HVAÐ HEFUR EIGINLLEGA ORÐIÐ UM HLÝNUNINA AF MANNAVÖLDUM????

Vissulega eiga sér stað MIKLAR veðurfarbreytingar sér stað á jörðinni.  Jöklar bráðna á BÁÐUM skautum jarðar (Norður- og Suðurskauti jarðar) en þessir "loftslaghlýnunartrúðar" tengja þessar veðurfarsbreytingar EKKERT við FÆRSLU segulpólanna.  Þegar ég stundaði nám við Stýrimannaskólann í Reykjavík (1980-1981), var Norðurskaut SEGULPÓLSINS um það bil 5° í vestur og var búinn að vera þar svo árhundruðum skipti og var sveiflan aldrei meiri en 3-5° (sem þýðir að segulskekkjan var 5 gráður í mínus frá reiknuðum pól, sem er Norðurpóllinn). Ég er ekki alveg með nákvæma tölu um stöðu segulpólsins í dag en síðast þegar ég athugaði var hann í suðaustur af reiknaða Norðurpólnum (sem þýðir að hann er í um það bil 3-5 gráðum í plús, frá reiknuðum pól).  Síðast þegar ég athugaði þá voru farnir að myndast jöklar, þar sem segulpóllinn er staddur og Grænlandsjökull bráðnar hratt og svo hlýnar mikið þar sem segulpóllinn var staddur áður en kólnar aftur á móti mikið þar sem segulpóllinn er staddur núna og í kringum þá staði þar sem hann er staddur þá stundina.  Vísindamenn sem hafa fylgst með þessu flakki segulpólsins telja það að hann komi til með að enda í Indlandshafi, sem þýðir að stór hluti Asíu verður óbyggilegur vegna kulda og hvað ætla "loftslagstrúðarnir" þá að gera þegar flóttamannavandinn hefst og þeir verða búnir að eyða alveg gígantígskum fjárhæðum í að moka ofan  í skurði og greiða stórfé til einhverra "loftslagsgúrúa" í formi sjóða sem svo hverfa í einhver "loftslagsský" út í heimi????????


mbl.is Snjór og túnin kalin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband