31.5.2024 | 10:35
HEFUR FYRIRHUGAÐUR STUÐNINGUR ÍSLANDS VIÐ ÚKRAINU FARIÐ FYRIR ÞINGIÐ????
Því samkvæmt stjórnarskránni má ekki skuldbinda ríkissjóð án aðkomu og samþykkis Alþingis, þó svo að nokkur dæmi séu um að það hafi verið gert og má þá meðal annars nefna "bóluefnasamningana", til stóð að Icesavesmningur númer eitt færi í gegn án aðkomu þingsins (en til allrar hamingju gekk það ekki eftir), mér er ekki kunnugt um að þingið hafi fjallað um framlög til Úkraínu fyrr en eftirá og "snobbráðstefnan" í Hörpu, var með öllu ófjármögnuð enda var skíturinn svo gríðarlegur að aðeins hluti hans komst "undir teppið". Svona mætti lengi telja en Sjómannadagurinn er á sunnudaginn og svo verða Forsetakosningar á morgun og ég vil bara ekki vera að koma fólki í vont skap og eyðileggja helgina fyrir fólki með einhverjum leiðinda upptalningum....
![]() |
Bjarni fundar með Selenskí |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Utanríkismál/alþjóðamál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Um daginn var þáttur á Útvarpi Sögu, þar sem rætt var við Helgu Þórisdóttur forstjóra Persónuverndar sem er í leyfi frá störfum vegna forsetkosninganna, vegna bréfaskrifta milli fyrrverandi Forsætisráðherra og forstjóra Íslenskrar Erfðagreiningar. Þáttinn í heild sinni má finna HÉR. Í mínum huga er þetta svo alvarlegt mál að það HLÝTUR að hafa áhrif á komandi forsetakosningar. Ef fólki finnst ekkert athugavert við afgreiðslu þessa máls þá er eitthvað mikið að í þessu þjóðfélagi. Og annað sem er undarlegt að það er ekki áhugi á að fjalla um þetta mál hjá helstu FJÖLMIÐLUM LANDSINS en í flestum lýðræðislöndum í hinum VESTRÆNA HEIMI hefur þetta þau áhrif að viðkomandi frambjóðandi ætti ekki minnsta möguleika á forsetaembættinu en er það staðreyndin á Íslandi?????
29.5.2024 | 08:29
HVERJU ORÐI SANNARA OG VERT AÐ SKOÐA MÁLIÐ FRÁ FLEIRI HLIÐUM.....
Það er kominn tími til að við skoðum þetta "HVALAMÁL" út frá því hvernig það hefur verið STEFNA VG AÐ HVALVEIÐAR VIÐ STRENDUR ÍSLANDS VERÐI STÖÐVAÐAR OG VIRÐIST VERA ALVEG SAMA HVAÐA AÐFERÐUM SÉ BEITT LÖGLEGUM EÐA ÓLÖGLEGUM. Þessari STEFNU VG hafa ráðherrar flokksins fylgt og það alveg upp á punkt og kommu. Fyrsti ráðherrann til þess að "fylgja þessari stefnu eftir" var Svandís Svavarsdóttir og allir þekkja til hennar starfa í þessu máli, framan af þá var hún frekar varkár og kom sér hjá því að brjóta brjóta lög í störfum sínum. En þegar hún sá að það gekk ekki upp greip hún til "örþrifaráða" og stöðvaði hvalveiðar MEÐ EINS DAGS FYRIRVARA og þar með braut hún greinina um atvinnufrelsi í stjórnarskránni, lög um stjórnsýslu og ágreinIngur er um hvort hún braut greinar í hegningarlögum einnig. Í það minnsta ollu þessar aðgerðir hennar miklum usla í þjóðfélaginu og meðal annars var boðuð vantrausttillaga á hana þegar Alþingi kæmi saman þá um haustið (í fyrra). Þá komu upp "VEIKINDI" hjá, tilkynnt var að hún hefði greinst með krabbamein og færi í veikindaleyfi um óákveðinn tíma, beðið var með vantrausttillöguna þar til hún kæmi til baka en þegar hún kom til baka, fór hún bara í annað ráðuneyti og HÆTT VAR VIÐ AÐ LEGGJA VANTRAUSTTILLÖGUNA FRAM, það er nokkuð sem ég get ekki með nokkru móti skilið, ÞAÐ VAR VERIÐ AÐ LEGGJA FRAM VANTRAUST Á MANNESKJUNA SVANDÍSI SVAVARSDÓTTUR EN EKKI RÁÐUNEYTIÐ. Þegar Svandís Svavarsdóttir fór í "veikindaleyfið" tók Katrín Jakobsdóttir fyrrverandi Forsætisráðherra við Matvælaráðuneytinu og virðist hún hafa ákveðið að vera stefnu VG trú og gerði bara ekki nokkurn skapaðan hlut MEÐAL ANNAR ÁKVAÐ HÚN AÐ SVARA EKKI UMSÓKN HVALS HF. UM LEYFI TIL HVALVEIÐA (það verður erfitt að sanna að þarna hafi verið um ásetning að ræða). En fyrrverandi Forsætisráðherra virðist ætla að "sleppa" fyrir horn þarna og þegar hún "flúði" úr ríkisstjórninni til að fara í Forsetaframboð, kom inn "BLÓRABÖGGULL" Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir, sem hafði lýst yfir MIKILLI ANDSTÖÐU VIÐ HVALVEIÐAR og hennar vinna í þessu máli hefur borið keim af því. Vinna ALLRA VG liða í þessu máli hefur borið stefnu VG í þessu máli vitni og virðast ÖLL meðul í þessari baráttu vera notuð og skiptir þá engu m´li hvort þau sé LÖGLEG EÐA EKKI.........
![]() |
Segir vinnubrögðin með ólíkindum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
27.5.2024 | 08:01
ALLIR SEM HAFA EINHJVERJA GAGNRÝNA HUGSUN HLJÓTA AÐ GERA FYRIRVARA VIÐ "SKOÐANAKANNANIRNAR"........
Mér gekk nú illa að finna nokkrar almennilegar tölfræðiupplýsingar um þessa könnun, sem ég er með til umfjöllunar núna, eins og vikmörk, öryggi (hversu áreiðanleg þessi könnun vær) og það að hægt sé að vinna tölfræðilega er grundvöllur þess að skoðanakönnun geti kallast "VÍSINDALEG". Málið er það að á síðustu árum hefur framkvæmd skoðanakannana breyst alveg gríðarlega, að mínu mati til hins verra, þeim sem lenda í skoðanakönnuninni er skipt í mismunandi flokka eftir aldri, búsetu og ýmsu öðru og hafa allir þessir flokkar ákveðið vægi. En núna er HÆTT að hringja út og fara þær nær EINGÖNGU fram á NETINU, þetta verður til þess að vissir hópar, taka ALDREI þátt í skoðanakönnunum og segir sig alveg sjálft að áreiðanleiki könnunarinnar verður MUN minni fyrir vikið. að fjöldi þeirra sem voru spurðir var 2.871 en þeir sem svöruðu voru 1.447 eða um 50% (nákvæmlega 50,4%). Af því að lesa textann var hægt að áætla að vikmörkin væru +/-5%, sem ég dreg stórlega í efa því þar sem svarhlutfallið er einungis rétt rúm 50% segir það sig nokkurn vegin sjálft að það hlýtur að koma niður á vikmörkunum og þar með áreiðanleika hennar. Og þarna komum við að kjarnanum, svo er rétt að minnast á könnun frá Félagsvísindastofnun og þar var svarhlutfallið innan við 30% OG SVONA LAGAÐ ER KYNNT SEM EINHVER HEILAGUR SANNLEIKUR OG ÞETTA Á FÓLK GLEYPA HRÁTT???????
![]() |
Arnar Þór: Gerir mikla fyrirvara við skoðanakannanir |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
26.5.2024 | 11:28
EINI FRAMBJÓÐANDINN, TIL EMBÆTTIS FORSETA, SEM HEFUR GEFIÐ ÞAÐ SKÝRT TIL KYNNA AÐ HANN ÆTLI AÐ VERJA SJÁLFSTÆÐIÐ OG STANDA MEÐ LÝÐRÆÐINU OG ÞJÓÐINNI...
En hvað gerist? Samkvæmt "SKOÐANAKÖNNUNUM" ætlar fólk að kjósa kjósa til starfans fólk, sem er á mála hjá alþjóðlegum samtökum og vinnur að því hörðum höndum að koma landinu undir stjórn erlendra aðila, setja höft á almennt málfrelsi og stuðla að afnámi lýðræðis í landinu. Loksins þegar kemur fram maður sem vill og ætlar sér að segja landlægri spillingu hér á landi stríð á hendur kýs almenningur í landinu að loka augunum, því sumum finnst "þægilegra" að lýta bara í hina áttina. Voru það ekki Bítlarnir, sem sögðu í textanum við lagið "Strawberry Fields Forever" "LIVING WITH EYES CLOSED IS EASY"........
![]() |
Hefði ekki hleypt Bjarna í annan ráðherrastól |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
24.5.2024 | 09:52
"MÁLSKOTSRÉTTURINN" OG FLEIRA.........
Ég hef undanfarið fylgst með viðtölum á hinum ýmsu fjölmiðla við flesta forsetaframbjóðendurna og þá kynningar á viðkomandi. En ég verð að segja að ég sakna þess að ég minnist þess ekki að rætt hafi verið við Viktor Traustason (ég ver vonandi leiðréttur ef ég fer ekki með rétt mál). Það hefur verið nokkuð sama svarið hjá þeim öllum, NEMA EINUM, þeir ætla að "NOTA MÁLSKOSTSRÉTTINN EF ÞÖRF KEFUR" (málskotsrétturinn er grein 26 í stjórnarskránni). Þá kemur spurningin: "HVER METUR ÞAÐ HVORT ÞÖRF SÉ TIL STAÐA OG HVER ERU VIÐMIÐIN"?. EINI FRAMBJÓÐANDINN SEM VAR ALGJÖRLEGA AFDRÁTTARLAUS Í SVARI SÍNU, VARÐANDI AÐ NOTA MÁLSKOTSRÉTTINN, VERJA LÝÐRÆÐIÐ OG MÁLFRELSIÐ OG STANDA VÖRÐ SJÁLFSTÆÐI LANDSINS, VAR ARNAR ÞÓR JÓNSSON. Fyrrverandi forsætisráðherra sagðist ætla að fara "SPARLEGA" með málskotsréttinn (það vita ALLIR hvað það þýðir)........
22.5.2024 | 09:19
ER ÞARNA KOMIÐ UPP MÁLIÐ SEM GERIR AÐ ENGU VONIR KATRÍNAR AÐ KOMAST Á BESSASTAÐI???
Í gær var þáttur á Útvarpi Sögu, þar sem rætt var við Helgu Þórisdóttur forstjóra Persónuverndar sem er í leyfi frá störfum vegna forsetkosninganna, vegna bréfaskrifta milli fyrrverandi Forsætisráðherra og forstjóra Íslenskrar Erfðagreiningar. Þáttinn í heild sinni má finna HÉR. Í mínum huga er þetta svo alvarlegt mál að það HLÝTUR að hafa áhrif á komandi forsetakosningar. Ef fólki finnst ekkert athugavert við afgreiðslu þessa máls þá er eitthvað mikið að í þessu þjóðfélagi. Og annað sem er undarlegt að það er ekki áhugi á að fjalla um þetta mál hjá helstu FJÖLMIÐLUM LANDSINS??????
21.5.2024 | 07:16
"AFSAKIÐ Á MEÐAN ÉG ÆLI"..........
Heldur fólk virkilega að það hafi orðið STÖKKBREYTING á manneskjunni SÍÐAN hún var Forsætisráðherra á landinu í RÚM SJÖ ÁR, fyrir AÐEINS RÉTT TÆPUM MÁNUÐI SÍÐAN??? HVERSU EINFALDIR GETA MENN VERIÐ?????????
![]() |
Mun aðeins sýna þjóðinni hollustu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
20.5.2024 | 13:28
VINNA ÍSLENSKIR RÁÐHERRAR OG ÞINGMENN AÐ ÞVÍ AÐ KOMA LANDINU UNDIR ERLEND YFIRRÁÐ???
Það er löngu kominn tími til þess að stjórnmálamenn og aðrir landsmenn fari að skoða þau mál af einhverju viti og á gagnrýninn hátt. Nú er það svo að samningurinn um EES var gerður árið 1993 og tók svo gildi árið 1994. En það virðist vera að árið 1994 hafi tíminn hér á landi bara hafa STOPPAÐ gagnvart þessum samningi en sú hefur síður en orðið raunin innan ESB. Árið 1994 hét ESB EBE og byggðist samningurinn um EES á Rómarsáttmálanum en árið 2009 var Rómarsáttmálanum kastað fyrir róða og tekinn var upp svokallaður Lissabon sáttmáli, sem fól í sér miklar breytingar á EES sáttmálanum OG ÞAÐ MEIRA AÐ SEGJA GRUNDVALLARBREYTINGAR. Í flestum aðildarríkjum ESB fóru fram umræður og "kosning" um þessar breytingar (en það er deilt um hversu lýðræðislegar þær kosningar voru því það var kosið um þær í hverju landi fyrir sig ÞAR TIL ÞÆR VORU SAMÞYKKTAR HVORT SEM ÞURFTI AÐ KJÓSA ÞRISVAR SINNUM EÐA TÍU SINNUM) en það fór ekki fram nein kynning á þessum breytingum innan EFTA landanna. Þessi breyting hafði í för með sér mun meiri MIÐSTÝRINGU FRÁ BRÜSSEL OG SAMNINGURINN NÁÐI TIL MUN FLEIRI ÞÁTTA EN ÁRIÐ 1993 ÞEGAR HANN VAR SAMÞYKKTUR. Nú liggur fyrir Alþingi Íslendinga að Utanríkisráðherra ætlar að KEYRA Í GEGN frumvarp, BÓKUN 35, SEM FELUR ÞAÐ Í SÉR AÐ ÍSLENSK LÖG VÍKI FYRIR LÖGUM ESB ÞAR SEM ÞAU SKARAST. ÞETTA SÝNIR FRAM Á NAUÐSYN ÞESS AÐ EES SAMNINGNUM VERÐI SAGT UPP HIÐ SNARASTA OG Í ÞAÐ MINNSTA ENDURSKOÐAÐUR. SVO ER ÞAÐ ALVEG FORKASTANLEGT AÐ SJÁLFSTÆÐI LANDSINS SKULI STAFA MEST HÆTTA AF RÁÐHERRUM OG ÞINGMÖNNUM LANDSINS. ÞVÍ ER NAUÐSYNLEGT FYRIR LANDSMENN AÐ KJÓSA OKKUR SEM FORSETA MANN SEM HEFUR GEFIÐ ÞAÐ SKÝRT TIL KYNNA AÐ ÆTLI AÐ STANDA VÖRÐ UM LÝÐRÆÐIÐ OG SJÁLFSTÆÐI ÞJÓÐARINNAR. ARNAR ÞÓR JÓNSSON ER EINI FRAMBJÓÐANDINN TIL EMBÆTTIS FORSETA ÍSLANDS, SEM HEFUR GEFIÐ ÞAÐ TIL KYNNA AÐ ÞETTA VERÐI HANS HELSTA VERK Á BESSASTÖÐUM NÁI HANN KJÖRI......
18.5.2024 | 11:21
ER FÓLK EKKI BARA FARIÐ AÐ SKOÐA FRAMBJÓÐENDUR BETUR EN ÞAÐ GERÐI????
Og skoða betur hvað það gerði áður og þar með hvort því sé treystandi til að gera það sem það segist ætla að gera með tilliti til hversu minnugt það sé á gjörðir sínar í fortíðinni??????
![]() |
Fylgi Katrínar og Höllu Hrundar dalar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 11:34 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
17.5.2024 | 07:27
TIL HAMINGJU MEÐ DAGINN NORÐMENN, HEIMA OG AÐ HEIMAN.........
Ég hef orðið þess heiðurs aðnjótandi, að vera staddur út í Noregi á 17 maí, nánar tiltekið í Kristiansand í suður Noregi. Það mikil hátíðarstemming og allir voru uppáklæddir og allir sem gátu skörtuðu þjóðbúningum eða "bunad" eins og fatnaðurinn hét á máli Norðmanna. Allt var mjög hátíðlegt skrúðgöngur og öll hátíðarhöld sem hægt var að hugsa sér og greinilegt að þetta var mjög stór dagur í huga ALLRA Norðmanna. Það var mikill munur að vera í Noregi á 17 maí eða á Íslandi 17 júní. Í Noregi finnur maður og sér hversu stór og mikill þessi dagur er hjá Norðmönnum en á Íslandi liggur við að þetta sé bara næstum eins og hver annar dagur, kannski er það vegna þess að Norðmenn hafa misst sjálfstæði sitt og vita hvers virði það er????????
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
16.5.2024 | 14:01
FYLGJA "RÍKISSTYRKJUM" TIL FJÖLMIÐLA ENGIN SKILYRÐI?????
Er þá ekki komið að okkur borgurum þessa lands, sem óbeint greiðum þessa fjölmiðlastyrki, með skattgreiðslum okkar: "ÞAÐ ERUM VIÐ GREIÐENDUR SKATTA Í ÞESSU LANDI, SEM NEITUM AÐ STYRKJA ÞENNAN FJÖLMIÐIL, SEM EKKI VIRÐIR LÝÐRÆÐIÐ Í LANDINU......
![]() |
Segja ákvörðun Stöðvar 2 ólýðræðislega |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
16.5.2024 | 09:25
HVERNIG VÆRI AÐ RÁÐHERRA MENNTAMÁLA OG BARNAMÁLARÁÐHERRA TÆKJU ÞETTA FYRIR HÉR Á LANDI.....
Getur verið að vegna þess að ÖFL innan alþjóðlega stjórnkerfisins "vinna" að því að "BARNANÍÐ" verði samþykkt sem löglegur gjörningur, sé ekkert fjallað um þessi mál? En samkvæmt þessari frétt vilja Bretar koma í veg fyrir þetta en þó aðeins að hluta til, það á sér kannski þá skýringu að Sunak Forsætisráðherra Bretlands er yfirlýstur fylgjandi World Economic Forum. KYNFRÆÐSLA, HÉR Á LANDI Í GRUNNSKÓLUM OG Í LEIKSKÓLUM, HEFUR VALDIÐ MIKILLI ÚLFÚÐ EN ÉG VEIT EKKI TIL ÞESS AÐ MENNTAMÁLRÁÐHERRA EÐA BARNAMÁLARÁÐHERRA HAFI NOKKUÐ TJÁÐ SIG UM ÞESSI MÁL...
![]() |
Vilja banna kynfræðslu barna undir níu ára |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
15.5.2024 | 07:23
VONANDI VERÐUR HÚN BARA EFTIR ÞAR.......
En því miður verður mér örugglega ekki að þeirri ósk minni en það allt í lagi að láta sig dreyma. Þar gæti hún verið í sínum "stríðsleik" án skaða fyrir Íslensku þjóðina og líklega næði hún ekki að vinna meiri skaða en þegar er orðinn......
![]() |
Þórdís Kolbrún á leið til Georgíu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Utanríkismál/alþjóðamál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
14.5.2024 | 14:17
VERÐUR ÞÁ EKKI ÖÐRU SENDIRÁÐI LOKAÐ Á MÓTI??????
En það hefur lengi verið þörf á að opna sendiráð á Spáni og það sendiráð myndi einnig þjóna Íslendingum sem búa í Portúgal. Nú þori ég ekki alveg að fullyrða um það en mér skilst að að búi rúmlega 20.000 Íslendingar á Spáni, þannig að þörfin fyrir sendiráð er örugglega til staðar. að hafa sendiráð staðsett á Spáni, er örugglega mun nauðsynlegra en sums staðar annars staðar. Kannski Utanríkisráðherra hefði átt að fela Utanríkismálanefnd að kanna þörf fyrir sendiráð á Spáni þegar hún "lét" loka sendiráðinu í Rússlandi og lét svo Utanríkismálanefnd bara vita af ákvörðuninni og lét eins og Utanríkismálefnd kæmi málið ekki við. KANNSKI ER UTANRÍKISMÁLANEFND BARA KOMIN Í "SENDLAHLUTVERK" HJÁ UTANRÍKISRÁÐHERRA???????????
![]() |
Til skoðunar að opna sendiráð í Madríd |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Utanríkismál/alþjóðamál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
13.5.2024 | 10:17
ENN ER VERIÐ AÐ NOTA "SKOÐANAKANNANIR" SEM EKKERT ER Á BAKVIÐ TIL AÐ "TEYMA" FÓLK ÁFRAM Á "ASNAEYRUNUM.....
Hversu MARGIR voru spurðir, hversu stórt var SVARHLUTFALLIÐ, hvernig var úrtakið valið og hver er ÁREIÐANLEIKI könnunarinnar? Það virðist ekki vera fyrir hvern sem er að nálgast þessar upplýsingar og þaðan af síður einhverjar tölfræðilegar upplýsingar, sem eru undirstaða þess að skoðanakönnun geti kallast VÍSINDALEG. ÆTLAR ÞJÓÐIN ENDALAUST AÐ LEYFA "ELÍTUNNI" AÐ SPILA SVONA MEÐ SIG???????
![]() |
Kappræður setja strik í reikninginn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Hvað ætli hafi valdið því að Ísland GAF því ekki 12 stig??????
![]() |
Ísland gaf Ísrael 8 stig |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
11.5.2024 | 17:54
HÚN HEFUR VERIÐ MEÐ TIL "SKOÐUNAR" MARGAR BREYTINGAR Í MÁLAFLOKKI HÆLISLEITENDA ALVEG FRÁ ÞVÍ AÐ HÚN KOM Í RÁÐUNEYTIÐ....
En það hafa ekki orðið neinar breytingar landamærin eru eins og "GATASIGTI" og ekkert gerist. Margir bundu miklar vonir við þessa manneskju en hún hefur ekkert gert af viti þarna, enda er ekki talað um hana sem næstu vonarstjörnu flokksins lengur........
![]() |
Kynnir nýja stefnu í málefnum landamæra í sumar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
10.5.2024 | 14:49
NOKKUÐ LJÓST HVAÐA LEIK VG ER AÐ LEIKA.........
Það er ÖLLUM sem vilja vita, AÐ MARKMIÐI ER BARA AÐ STÖÐVA HVALVEIÐAR ANNAÐ ÁRIÐ Í RÖÐ og ráðherrastólarnir eru bara svo ÞÆGILEGIR að Sjálfstæðismenn og Framsóknarmenn LÁTA þetta yfir sig ganga. Þetta er kallað að "PISSA Í SKÓINN SINN" það getur verið þægilegt á meðan hlandið er volgt en það kólnar og þá eru þægindin úr sögunni. Menn verða líka að minnast þess að MJÖG styttist í KOSNINGAR og ekki öruggt að ALLIR verði búnir að gleyma hvalamálinu.......
![]() |
Þetta þarf að fara að gerast |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
10.5.2024 | 10:20
HALDA RÁÐHERRA OG ÞINGMENN AÐ STJÓRNARSKRÁIN SÉ BARA EITTHVERT GRÍN (endurbirt blogg frá 21.02.2024)
Nú er heldur betur komið að því að Alþingis-menn/konur fari að fara eftir stjórnarskránni okkar og virði hana í hvívetna EINS OG ÞEIR HAFA SVARIÐ AÐ GERA ÞEGAR SEST ER Á ÞING OG AÐ SJÁ TIL ÞESS AÐ LÖG SEM ALÞINGI SETUR STANDIST STJÓRNARSKRÁNA . Nú er tækifærið til þess að fara eftir stjórnarskránni að einhverju leyti. Málið er að ráðherrarnir eiga EKKERT erindi á Alþingi (það er nánar fjallað um þetta síðar í greininni). Þegar ráðherrar hafa verið skipaðir verður að kalla inn varamenn fyrir þá, en þá verður engin FÆKKUN á Alþingi. Þá er helsta ráðið að gerð verði breyting á lögum um fjölda Alþingismanna á þessu kjörtímabili þar, sem lagt yrði til að Alþingismönnum yrði FÆKKAÐ úr 63 í 40 (Það þarf ekki fleiri þingmenn til að samþykkja þau lög og reglugerðir sem koma frá ESB og þar að auki eru mjög margir þingmenn komnir með einn eða fleiri aðstoðarmenn). Það verður að fara fram að minnsta kosti endurskoðun á EES samningnum og uppsögn á Schengen samkomulaginu.
Allt frá okkar fyrstu árum í skóla hefur okkur verið sagt að hin svokallaða þrískipting ríkisvaldsins sé grundvöllurinn að stjórnskipun lýðveldisins Íslands. Eins og allir vita skiptist valdið í: LÖGGJAFARVALD, FRAMKVÆMDAVALD og DÓMSVALD.
En eftir að stöðuveitingar ráðherra komust í hámæli, þá fór ég nú að skoða þessa þrískiptingu ríkisvaldsins betur og miðað við þá skoðun þá komst ég að því að skilin þarna á milli eru orðin afskaplega óskýr og sum staðar eru þau bara alveg horfin, hafi þau einhvern tíma verið til staðar.
LÖGGJAFARVALD er samkvæmt stjórnarskránni í höndum Alþingis og forseta. Alþingismenn og konur fá umboð sitt frá þjóðinni, til fjögurra ára í senn, þeirra hlutverk er að setja lög sem þjóðin á að fara eftir og forseti veitir þessum lögum samþykki sitt.
FRAMKVÆMDAVALD er ráðherra viðkomandi málaflokks og staðfestir forsetinn skipan viðkomandi ráðherra. Viðkomandi ráðherra á að sjá um framkvæmd þeirra laga sem Alþingi setur.
DÓMSVALD er í höndum dómara.
Þannig er þrískiptingu ríkisvaldsins háttað þessum ÞREMUR þáttum á að halda algjörlega aðskildum til að tryggja sem best lýðræði og réttláta meðferð þegna landsins gegn hinu opinbera.
En eitthvað virðist þetta hafa skolast til á undanförnum árum og jafnvel áratugum og hægt er með nokkuð góðri samvisku að fullyrða það að þrískipting ríkisvaldsins hafi aldrei að fullu verið til framkvæmdar hér á landi. Þessa fullyrðingu verður að skoða nánar og mun ég gera tilraun til þess hér á eftir.
Við skulum byrja á því að skoða LÖGGJAFARVALDIÐ: Á Alþingi sitja 63 fulltrúar kjörnir af þjóðinni, það er óumdeilt, en af þessum 63 þingmönnum eru 12 ráðherrar, Þarna er strax komin skörun. Það er þannig að þegar kjörnir þingmenn, verða tilnefndir sem ráðherrar, þá eiga þeir að segja af sér þingmennsku og kalla inn varamenn sína. Það er svo tilhögunin á Alþingi, að svokölluð ráðherrafrumvörp njóta forgangs í störfum þingsins, en þetta þýðir að þau frumvörp sem eru borin upp af ráðherra hafa forgang framyfir svokölluð þingmannafrumvörp. Ég tel að þarna sé um að ræða brot á stjórnarskránni. Samkvæmt þrískiptingu ríkisvaldsins eiga ráðherrar ekki að hafa atkvæðisrétt á Alþingi og spurning hvort þeir eigi yfirhöfuð nokkuð að eiga sæti þar. Það er spurning hvort störf Alþingis yrðu ekki bara skilvirkari ef ráðherrar myndu bara mæta einu sinni í viku eða sjaldnar í fyrirspurnartíma niður á þing? Það er erfitt að skrifa nokkuð sérstaklega um FRAMKVÆMDAVALDIÐ vegna þess að þessi grein fjallar um það hvernig það hefur smám saman verið að taka yfir LÖGGJAFARVALDIÐ og DÓMSVALDIÐ. Það verður ekki um það deilt að FRAMKVÆMDAVALDIÐ er alltaf að verða fyrirferðarmeira í stjórnsýslu okkar Íslendinga. Þá er eftir að fara yfir DÓMSVALDIÐ. Ekki hefur það orðið útundan í þessari þróun. DÓMSVALDIÐ á samkvæmt stjórnarskránni að standa alveg sjálfstætt. En er það alveg sjálfstætt? Ég verð að viðurkenna vankunnáttu mína þar en ég veit ekki hvenær ráðherra byrjaði að skipa dómara, en í stjórnarskránni stendur í 59 grein Skipun dómsvaldsins verður eigi ákveðin nema með lögum (Tilvitnun líkur, leturbreytingar eru mínar), þá er það skilningur minn, samkvæmt þessu,að ráðherra eigi EKKI að skipa dómara og er þá ekki með góðu móti hægt að segja að stjórnarskráin hafi verið brotin í mörg ár eða jafnvel áratugi? Ekki einvörðungu hefur framkvæmdavaldið seilst til áhrifa í löggjafarvaldinu heldur er það einnig komið með puttana í dómsvaldið (samanber Það að flestir dómarar, bæði í Héraðsdómi og Hæstarétti, eru orðnir pólitískt skipaðir) og ALLIR MUNA EFTIR FARSANUM Í SAMBANDI VIÐ SKIPUN DÓMARA Í LANDSRÉTT. En í því máli tel ég að hafi verið gerð AFDRIFARÍK MISTÖK. Í dómi mannréttindadómstóls Evrópu kom fram að ALLIR DÓMARAR LANDSRÉTTAR VÆRU ÓLÖGLEGA SKIPAÐIR, EKKI BARA FJÓRIR, VEGNA ÞESS AÐ ALÞINGI HAFI EKKI STAÐIÐ RÉTT AÐ SKIPAN ÞEIRRA. ALÞINGI ÁTTI AÐ KJÓSA UM HVERN OG EINN ÞEIRRA Í STAÐ ÞESS AÐ KJÓSA UM ALLAN HÓPINN Í EINU. þá kom einnig fram ádeila á FORSETA LÝÐVELDISINS fyrir hans afgreiðslu á málinu. En minnsta ádeilan var á störf Dómsmálaráðherra, sem samt var sú eina í þessu máli, sem var látin sæta ábyrgð.
Það er mín skoðun að stjórnarskráin, sem slík sé mjög gott plagg og hefur hún þolað mjög vel tímans tönn en aftur á móti hef ég meiri áhyggjur af þeim sem eru á Alþingi og eiga að sjá til þess að það sé unnið í samræmi við stjórnarskrána meðal annars á að gæta þess að lög sem eru sett séu í samræmi við stjórnarskrána á því vill nú vera misbrestur. Það er tími til kominn að stjórnarskráin verði virt og fyrsta skrefið í þá átt er að MOKA RÁÐHERRUNUM út af Alþingi enda eiga þeir alls ekki heima þar. Sem dæmi má geta þess að það getur ekki verið eðlilegt að ráðherrarnir sitji heilu og hálfu dagana niðri á Alþingi og bori bara í nefið á sér. Maður hefði haldið að það væri full vinna að stjórna landinu í það minnsta er ekki mjög trúverðugt að menn og konur geti bara gert þetta með annarri hendinni. Það er ekki skrítið að hver ráðherra skuli hafa minnst tvo aðstoðarmenn, því ráðherrann þarf að eiða tímanum niðri á þingi, þar sem hann á EKKERT ERINDI. Svo eru þingmenn orðnir allt of margir. Með því að henda ráðherrunum út úr Alþingishúsinu, væri stigið fyrsta skrefið í því að FÆKKA alþingismönnum, en þar væri einungis komið FYRSTA skrefið af mörgum. Alþingismenn þurfa alls ekki að vera fleiri en 40, það sem þarf að gera er að störf Alþingis verði gerð markvissari og einfaldari. Þegar sjónvarpað er frá þingfundi (nema Eldhúsdagsumræðu hvers vegna hún hefur fengið þetta nafn er mér algjörlega hulin ráðgáta), er þingsalur yfirleitt hálftómur. Þetta vekur þá spurningu hvort ekki væri hagstæðara að hafa þingfundi tvisvar í viku og þar af yrði annar dagurinn þar sem ráðherra tækju þátt og svöruðu fyrir embættisfærslur sínar. Þrír dagar yrðu svo teknir í nefndastörf og önnur störf þingsins. Áður en fólk fer að tala um að það vanti nýja stjórnarskrá er lágmark að sú stjórnarskrá sem er nú þegar til staðar sé virt. Það hefur verið alveg með ólíkindum að horfa upp á starfsemi þingsins og oft hefur það hvarflað að manni að þingið sé með öllu stjórnlaust, ég er alveg viss um að það væri búið að reka forseta þingsins fyrir stjórnleysi og handvömm ef hann væri að vinna í einkageiranum. Ég minntist EKKI á ÞINGSÁLYKTUNARTILLÖGURNAR í þessari samantekt minni, en að mínu áliti standast lögin um þingssköp Alþingis númer 55/1991 þar sem þingsályktunartillögur ber fyrst á góma við stjórnarskrárbreytingar árið 2001, EKKI stjórnarskrána. Það var svo ekki fyrr en árið 2020, sem skrifstofa Alþingis gaf út leiðbeiningar um HVERNIG vinna skyldi þingsályktunartillögur, fram að þeim tíma höfðu þær víst verið nokkuð skrautlegar margar hverjar. Fyrst þegar var verið að verja það að bera skyldi fram mál sem þingsályktunartillögur, var því borið við að þar yrði aðeins um SMÁMÁL að ræða sem væru það lítilvæg að ekki tæki því að fara með þau til forsetans til undirskriftar. Fyrstu árin eftir árið 2001, eftir að þessu ákvæði var laumað inn héldu menn sig við að smærri málin voru afgreidd með þingsályktunartillögum, en í júní 2009 urðu ákveðin tímamót í þessum efnum; ÞÁ VAR SAMÞYKKT ÞINGSÁLYKTUNARTILLAGA UM AÐILDARUMSÓKN ÍSLANDS AÐ ESB yrði útbúin og send (Þingsályktunartillaga 1/137 frá júní 2009). Og ekki er hægt að segja að þarna sé um eitthvað SMÁMÁL að ræða, en samkvæmt mínum athugunum gerist það þarna að þingsályktunartillögum fjölgar alveg gífurlega. En svo við förum aftur að ESB umsóknin í júní 2009 þá er þarna ekki um neitt SMÁMÁL að ræða. Eftir óstaðfestum heimildum sem ég hef undir höndum, þá var þarna um að ræða ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur og Steingríms Jóhanns Sigfússonar og þar var Utanríkisráðherra Össur Skarphéðinsson. Þegar umsóknin kom til tals, strandaði alltaf á því að Jóhanna og flokksmenn hennar höfðu þá staðföstu trú að þáverandi forseti lýðveldisins myndi ALDREI skrifa undir þessa umsókn, sem þýddi að þá yrði þjóðaratkvæðagreiðsla og það væri alveg einsýnt að þar yrði umsóknin FELLD og þar með yrði umsóknin dauð. Þá datt einhverjum snillingi í hug (sagt er að sá snillingur hafi verið Össur Skarphéðinsson) að leggja aðildarumsóknina að ESB, fram sem þingsályktunartillögu því þá þyrfti ekki að hafa ÁHYGGJUR AF FORSETANUM. Hvort gjörningurinn væri brot á lögum væri seinni tíma vandamál. Eftir þetta fóru mörg STÆRRI mál í gegnum þingið sem þingsályktunartillögur. Alls hafa 1.287 mál farið í gegn sem þingsályktunartillögur og er það vel merkjanlegt hvað þessum málum hefur fjölgað mikið síðan 2009og þröskuldurinn á stærð málanna hefur hækkað mikið. Ég fór lauslega yfir þennan lista af þingsályktunartillögum frá upphafi og af þessum 1.287þingsályktunartillögum eru 246, sem varða BREYTINGAR á viðaukum EES samningsins og ég sem hélt að ekki væri hægt að breyta gerðum samningi jafnvel þó aðeins sé um að ræða viðauka. Ég er ansi hræddur um að margt athugavert kæmi í ljós ef allar þessar þingsályktunartillögur yrðu skoðaðar.
Nú er sem dæmi eftir nokkra daga að hefjast fundur, þar sem verður ákveðið HVORT ÍSLAND OG 193 ÖNNUR RÍKI AFSALI SÉR ÖLLU VALDI TIL WHO (ALÞJÓÐA HEILBRIGÐISMÁLASTOFNUNARINNAR) OG ÞÁ FARI WHO MEÐ ÖLL VÖLD Í HEILBRIGÐISMÁLUM ÞJÓÐARINNAR. Þarna er óumdeilt að um sé að ræða FRAMSAL Á VALDI TIL ERLENDRA AÐILA, SEM ER MEÐ ÖLLU ÓHEIMILT SAMKVÆMT STJÓRNARSKRÁNNI. Ég veit ekki til þess að þetta mál hafi verið rætt á Alþingi og eina umræðan sem ég hef heyrt um þetta mál e rá útvarpi Sögu og þingmenn konur hafa ekki fengist í viðtal þar og bera þeir því við að þeir hafi ekki haft tíma til að setja sig inn í málið. Ætla þeir (þingmennirnir) að setja sig inn í málið EFTIR að búið er að skrifa undir og hvað á þá að gera??????
Nú reynir heldur betur á ALLA þá sem sitja á Alþingi Íslendinga. Nú á að leggja fram á Alþingi LANDRÁÐAFRUMVARP, sem nefnt er BÓKUN 35, það er ekki minnsti vafi að þetta felur í sér VALDAFRAMSAL. ÉG VEIT EKKI BETUR EN AÐ ALLIR SEM SETJAST Á ÞING (þar með taldir ráðherrar, sem ég tel að eigi alls ekki að sitja á þingi þar sem þeir tilheyra FRAMKVÆMDAVALDINU en ég fjalla aðeins um þetta annars staðar í pistlinum) SVERJI EIÐ AÐ STJÓRNARSKRÁNNI OG STJÓRNARSKRÁIN HEIMILAR EKKI VALDFRAMSAL. Ég reikna nú ekki með að þingmenn eigi að rifja þennan eið upp við upphaf hvers þings, EN KANNSKI VÆRI EKKI VANÞÖRF Á ÞVÍ..............